SKÝRSLAN: ÍR er komið á toppinn í Lengjudeildinni
Hvað réði úrslitum?
ÍR byrjaði þennan leik frábærlega og komust yfir eftir 40 sekúndur eftir það tóku Þróttur yfir leikinn og voru nálægt því að jafna leikinn. Þróttur komu inn í seinni hálfleikinn og jöfnuðu snemma í síðari hálfleik og eftir það var þetta mjög jafnt en ÍR náði inn sigurmarki leiksins og héldu út, þrátt fyrir nokkur dauðafæri Þróttar undar lokin
Bestu leikmenn
1. Ágúst Unnar Kristinsson
Lokaði hægri hliðinni mjög vel og lagði upp sigurmark leiksins sem Óðinn Bjarkason skoraði
2. Jakob Gunnar Sigurðsson (Þróttur)
Skoraði jöfnuarmark Þróttar og var gríðalega ógnandi í sóknarleik gestanna í kvöld.
Atvikið
Byrjunin - ÍR komst yfir eftir 40 sekúndur þegar Arnór Sölvi skoraði. Arnór slapp í gegn og átti skot sem Þórhallur varði. Emil nær til boltans og á skot sem Þórhallur ver beint í fætur Arnórs sem klárði færið.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR er komið á topp Lengjudeildarinnar með 14.stig. Þróttur Reykjavík fer niður um eitt sæti og er liðið nú í fimmta sæti deildarinnar með 10.stig
Vondur dagur
Það var enginn eitthvað áberandi slakur í dag en ætla setja þetta á Þórhall í marki Þróttar. Fékk boltann undir sig í sigurmarki ÍR
Dómarinn - 8
Gunnar Oddur og hans menn dæmdu þennan leik vel.



