Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Lengjudeild karla
JBÓ völlurinn
Kaldur vindur
Njarðvík
Njarðvík
1 - 1
Fjölnir
Fjölnir
Arnleifur Hjörleifsson 7'1 - 01 - 121' Árni Steinn Sigursteinsson
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson

SKÝRSLAN: Fjölnir sækir sterkt stig í leiðinlegum leik í Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Stutta svarið er vindurinn. Hann á stærstan þátt í báðum mörkum. Annars var þetta hrútleiðinlegur leikur með fáum færum, engu spili og bolta mikið úr leik. Hvorugu liði tókst að búa til einhvern alvöru spilkafla og það endaði bara á endanum í þokkalega sanngjörnu jafntefli.

Bestu leikmenn

1. Arnleifur Hjörleifsson (Njarðvík)

Vinsti bakvörðurinn var öflugastur í kvöld. Skoraði gott mark og átti aukaspyrnu í slá. Flott vinnsla allan leikinn og hefur komið virkilega vel inn í þetta Njarðvíkurlið.

2. Brynjar Gauti Guðjónsson (Fjölnir)

Var öflugur í öftustu línu Fjölnis. Stýrði sínu liði vel aftast og hleyptu Njarðvíkingum aldrei í nein alvöru færi.

Atvikið

Vindurinn átti stórann þátt í báðum mörkum leiksins. Fyrirgjöf sem endar í netinu og svo hornspyrna sem fellur niður á nærstöng og Fjölnir jafna. Leikurinn fékk fá tækifæri á einhverjum öðrum atvikum. Smá hiti kannski þegar Amin Cosic og Daníel Ingvar Ingvarsson lentu eitthvað saman og fengu báðir gult fyrir.. Annað er ekki hægt að nefna.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvíkingar sitja í öðru sætinu nú tveimur stigum á eftir toppliði ÍR. Fjölnir eru nú eftir umferðina eina liðið sem á eftir að koma sigri á töfluna og sitja í næst neðsta sætinu með þrjú stig.

Vondur dagur

Vondur dagur fyrir þá sem héldu að þeir væru að fara sjá skemmtilegan leik hér í kvöld.

Dómarinn - 4

Alltof mikið óþarfa stopp. Boltinn var nógu mikið úr leik vegna veðurs til að það þurfti ekki að tefja enn meira. Furðuleg lína sem var lögð og óþarflega mikið spjall bæði í brotum og ekki brotum. Hallaði ekki á annað liðið heldur fengu bæði lið að smakka á þessu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.