Fotbolti.net
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Lengjudeild karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
1 - 2
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 121' Dagur Ingi Hammer Gunnarsson0 - 259' Þorsteinn Emil JónssonÞóroddur Víkingsson 62'1 - 2
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Það ræður ekki kasti kylfa ef þú kíkir á leik með Gústa Gylfa

Hvað réði úrslitum?

Leiknismenn voru klókir og áttuðu sig á því að þeir voru litla liðið í leiknum í dag þrátt fyrir að bæði lið hafi byrjað illa. Þegar þeir komust yfir fóru þeir strax að tefja og nýttu hvert einasta augnablik til að ganga á klukkuna, hvort sem það var að vera lengi að taka innköst, markspyrnur, liggja meiddir eða þurfa óvænt að reima. Klókara liðið vann leikinn í dag og ljóst að handbragð Ágústar Gylfasonar er fljótt að komast á liðið. Hann tók við liðinu 15:30 í gær og fyrsti sigurinn er strax kominn í hús.

Bestu leikmenn

1. Djorde Vladisavljevic, Leiknir

Algjörlega magnaður í vörn Leiknisliðsins í dag. Henti sér hvað eftir annað fyrir boltann og kom í veg fyrir að Ólafur Íshólm í markinu hefði of mikið að gera. Trompaði svo leik sinn með frábærri vörslu á lokasekúndunni þegar hann varði frá Theódóri Óskarssyni sem var kominn einn í gegn eftir að hafa skilið Dusan eftir í rykinu.

2. Axel Freyr Harðarson, Leiknir

Ég var svolítið tregur til að gefa honum að vera næstbestur enda var Axel Freyr lengi vel ekkert spes í leiknum. Þegar leið á leikinn, og flestir menn í hans stöðu ættu að vera að þreytast, óx honum ásmegin og í tvígang sólaði hann fjóra og kom boltanum fyrir markið. Í fyrra skiptið skilaði það stoðsendingu að seinna markinu sem varð sigurmarkið í leiknum. Virkilega vel gert.

Atvikið

Á lokaandartökum leiksins slapp Theódór Ingi Óskarsson í gegnum vörn Leiknis, fór illa með Dusan Brkovic og var kominn að því að skjóta á markið þegar Djorde kom á fleygiferð, henti sér fyrir boltann og bjargaði í horn. Fylkismenn vildu fá hendi víti en það var aldrei að fara að gerast.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknismenn sóttu sinn fyrsta sigur í sumar og sáu kannski að það er vel hægt að snúa genginu við þrátt fyrir að hafa fengið sex mörk á sig tvo leiki í röð. Þeir lyfta sér ekki bara uppúr botnsætinu heldur úr fallsæti og í 10. sætið með fyrsta sigri sumarsins. Fylkir, liðið sem átti að rúlla yfir þessa deild er bara einu sæti, og einu stigi, fyrir ofan Leikni og hefur valdið miklum vonbrigðum í sumar. Það var fátt sem gladdi augað og ljóst að verkefni Árna Freys Guðnasonar þjálfara er ærið að taka til og laga. Varnarleikurinn er oft á tíðum hörmung og liðið á í miklu basli með að skora mörk.

Vondur dagur

Eyþór Wöhler er fenginn í Fylki sem stjörnuleikmaður, framherji sem ætti að vera í Bestu-deildinni en velur að taka slaginn í Lengjudeildinni. Það á að vera krafa að svoleiðis framherji raði inn mörkunum og sér skemmtikraftur sem eftir er tekið. Eyþór gerði ekkert í þessum leik frekar en fyrri leikjum í sumar. Hann fær að spila mikið og er með 0 mörk í 6 leikjum. Það er bara dapurt.

Dómarinn - 9

Það er gaman að sjá að í fríi Bestu-deildarinnar séu bestu dómarar landsins að taka leiki í Lengudeildinni. Helgi Mikael dæmdi leikinn í dag óaðfinnanlega. Var fljótur að spjalda Leiknismenn fyrir að tefja strax á 25. mínútu, leyfði minni brot á báða bóga sem er jú mun skemmtilegra en stöðugt flaut og stýrði leiknum vel. Kórónaði svo leik sinn með lokaatvikinu þegar Djorde varðist Theódóri í lokin og sá það sem var rétt, það var engin hendi! Frábær frammistaða.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.