Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
Besta-deild karla
ÍA
LL 0
3
Stjarnan
Besta-deild karla
KA
LL 0
2
Víkingur R.
Lengjudeild karla
Keflavík
LL 0
0
ÍR
Keflavík
0
0
ÍR
Nacho Heras '88
22.06.2025  -  18:15
HS Orku völlurinn
Lengjudeild karla
Áhorfendur: 425
Byrjunarlið:
21. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson ('68)
4. Nacho Heras
6. Sindri Snær Magnússon (f) ('64)
7. Gabríel Aron Sævarsson ('64)
10. Stefan Ljubicic ('81)
11. Muhamed Alghoul
18. Ernir Bjarnason
22. Ásgeir Páll Magnússon
24. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
92. Kári Sigfússon ('81)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Rúnar Gissurarson (m)
5. Stefán Jón Friðriksson ('68)
8. Ari Steinn Guðmundsson ('81)
9. Valur Þór Hákonarson
14. Marin Mudrazija ('81)
23. Eiður Orri Ragnarsson ('64)
25. Frans Elvarsson ('64)
- Meðalaldur 28 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Hólmar Örn Rúnarsson
Luka Jagacic
Guðmundur Árni Þórðarson
Óskar Ingi Víglundsson

Gul spjöld:
Sindri Snær Magnússon ('57)

Rauð spjöld:
Nacho Heras ('88)
Leik lokið!
Markalaust er það! Niðurstaðan markalaust jafntefli.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín
Lofandi sókn hjá Keflavík en Marin Mudrazija missir hann útaf.
93. mín
ÍR ekki langt frá því að skora. Skot sem fer af varnarmanni og dettur rétt framhjá markinu.
91. mín
Eiður Orri með tilraun sem Vilhelm Þráinn grípur.
89. mín
Varsla! Alexander Kostic tekur aukaspyrnuna og hún er góð en Sindri Kristinn ver þetta frábærlega.
88. mín Rautt spjald: Nacho Heras (Keflavík)
Aftasti maður þegar hann tekur Bergvin Fannar niður rétt fyrir utan teig!
87. mín
Inn:Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR) Út:Hákon Dagur Matthíasson (ÍR)
85. mín
Keflavík að spila Ara Stein í frábæra stöðu en flaggið á loft.
84. mín
Er sigurmark í þessum leik? Stóru spurningarnar
81. mín
Inn:Marin Mudrazija (Keflavík) Út:Stefan Ljubicic (Keflavík)
81. mín
Inn:Ari Steinn Guðmundsson (Keflavík) Út:Kári Sigfússon (Keflavík)
78. mín
Hákon Dagur að komst í fínt færi en skotið úr þröngu færi og Sindri Kristinn ver það.
77. mín
HVERNIG SKORA ÞEIR EKKI!? Keflavík fær hornspyrnu sem dettur niður í teignum og úr þvögunni fer boltinn í stöngina og bakið á varnarmanni og ÍR bjarga á línu!
73. mín
Óðinn Bjarkason fór illa með Stefán Jón og kom sér inn á teig en Keflvíkingar ná að sparka þessu frá.
70. mín
Inn:Ísak Daði Ívarsson (ÍR) Út:Jónþór Atli Ingólfsson (ÍR)
68. mín
Inn:Stefán Jón Friðriksson (Keflavík) Út:Axel Ingi Jóhannesson (Keflavík)
Fór niður í annað skiptið í leiknum og núna er honum kippt af velli.
66. mín
Keflavík í stórsókn en þeir komast bara ekki í gegnum þennan varnarmúr ÍR.
65. mín
ÍR verið hættulegri síðustu mínútur.
64. mín
Inn:Frans Elvarsson (Keflavík) Út:Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík)
64. mín
Inn:Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík) Út:Sindri Snær Magnússon (Keflavík)
63. mín
Óðinn Bjarkason að komast í frábært færi en Axel Ingi nær að trufla hann.
61. mín
Marc McAusland með skalla rétt yfir markið eftir hornspyrnu.
60. mín
Gabríel Aron með fínan bolta fyrir markið sem Stefán Ljubicic kassar niður fyrir Kára Sigfússon en skotið ekki gott og framhjá markinu.
57. mín Gult spjald: Sindri Snær Magnússon (Keflavík)
Missti boltann aðeins frá sér og fer fullt seint í Bergvin Fannar.
57. mín
Inn:Alexander Kostic (ÍR) Út:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR)
55. mín
Stefán Ljubicic að komst í flotta stöðu en Sigurður Karl nær að henda sér fyrir.
53. mín
ÍR hættulegir þegar þeir sækja hratt og vinna horn.

Keflavík verst horninu vel.
52. mín
Keflavík að þrýsta ÍR vel niður en ná þó enn sem komið er ekki að komast í alvöru færi ennþá.
50. mín
Axel Ingi með langt innkast og hætta skapast inni á teig ÍR en Keflvíkingar á endum dæmdir brotlegir.
48. mín
Óðinn tekur spyrnuna sjálfur og Sindri Kristinn á flotta vörslu frá honum niðri í markmannshorninu.
47. mín
Óðinn Bjarkason með frábæran sprett þar sem hann hristir af sér hvern Keflvíking á fætur öðrum áður en hann er svo tekinn niður rétt fyrir utan teig og ÍR fær aukaspyrnu á hættulegum stað.
46. mín
Keflavík sparkar okkur af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
+3

Vilhjálmur Alvar flautar til hálfleiks og liðin fara jöfn til búningsklefa.

Keflavík byrjaði betur en ÍR vann sig vel inn í leikinn.

Fáum vonandi einhver mörk í þetta hérna í seinni en við tökum okkur korterspásu þangað til.
45. mín
+1
Muhamed Alghoul dregur inn inn á völlinn og á skot sem er víðsfjarri.
45. mín
Sláin! Frábær fyrirgjöf fyrir mark Keflavíkur og Bergvin Fannar á skalla sem fer í þverslána!
42. mín
Bergvin Fannar fær sendingu fyrir markið en nær ekki að stýra boltanum að marki.
40. mín
Það er líf að vakna í stúkunni ÍR meginn.
36. mín
Kristján Atli með frábæra tæklingu á Stefán Ljubicic sem var við það að komast í hörku færi.
35. mín
Hákon Dagur er utanvallar að fá aðhlýningu en hann fékk boltann í andlitið áðan og fossblæðir virðist vera úr nefinu á honum.

ÍR verið manni færri núna í að verða þrjár mínútur.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
Muhamed Alghoul reynt í tvígang að skrúfa boltann innfyrir í hlaup fyrir Gabríel Aron en Vilhelm Þráinn í bæði skiptin lesið það og mættur út á móti að grípa boltann.
29. mín
Leikurinn er endana á milli og liðin skiptast á hornspyrnum.
22. mín
Muhamed Alghoul tekur spyrnuna og hún er fín en í markmannshornið og Vilhelm Þráinn ekki í teljandi vandræðum.
21. mín Gult spjald: Hrafn Hallgrímsson (ÍR)
Brotlegur í baráttu við Ásgeir Pál.
21. mín
Keflavík fær aukaspyrnu á flottum stað rétt fyrir utan teig.
18. mín
ÍR aðeins náð að vinna sig betur inn í þetta.
17. mín
Keflavík eru að komast nokkuð þægilega upp vængina en vantar svolítið upp á ákvarðanartökur eftir það.
12. mín
Boltinn fellur fyrir Bergvin Fannar eftir að Ásgeir Páll ætlaði að hengja langann upp vænginn en fór af leikmanni ÍR og féll fyrir fætur Bergvins Fannars og hann á skot sem fer framhjá markinu.
11. mín
Leikurinn meira og minna farið fram á vallarhelmingi ÍR hérna í byrjun.
5. mín
Keflavík eru að pressa ÍR virklega vel og komast í allskonar stöður fyrir framan markið þeirra en varnarmúr ÍR heldur.
4. mín
Sindri Snær vinnur boltann af Kristjáni Atla og Keflavík geysist fram. Muhamed Alghoul á sendingu fyrir markið sem er alltof föst og dregur svolítið tennurnar úr þessari sókn.
2. mín
Stöngin! Aukaspyrna sem Keflavík fékk er þrumað í stöngina og ÍR kemur þessu svo í horn sem verður ekkert úr.
1. mín Gult spjald: Sigurður Karl Gunnarsson (ÍR)
Tók ekki langan tíma
1. mín
Leikur hafinn
Það eru ÍR-ingar sem sparka þessu af stað.
Fyrir leik
Boð og bönn Marin Brigic varnarmaður Keflavíkur tekur út leikbann í kvöld eftir að hafa fengið að sjá rauða spjaldið gegn Völsungi í síðustu umferð.

Mynd: Keflavík

Fyrir leik
Spámaðurinn Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra sem komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins í gær, spáir í leikina að þessu sinni.

Keflavík 0 - 2 ÍR
ÍR heldur áfram að safna stigum og halda hreinu. Það verður þreyta í Keflvíkingum eftir bikarleikinn og ÍR tekur þennan nokkuð þægilega. Sé rautt spjald í þessum leik.

Fyrir leik
Keflavík Keflavík hefur aðeins hökktað síðustu umferðir eftir að hafa byrjað tímabilið þokkalega. Keflvíkingar hafa ekki sótt sigur í síðustu þrem leikjum sínum í deild en þeir hafa tapað fyrir HK og gert svo jafntefli við Fylki og Völsung. Þeir vonast til þess að komast aftur á sigurbraut í kvöld.
Keflavík sitja fyrir þessa umferð í 5.sæti deildarinnar með 11 stig.

Keflavík hefur skorað 15 mörk og fengið á sig 9. Mörk Keflavíkur hafa raðast niður á:

Gabríel Aron Sævarsson - 4 mörk
Kári Sigfússon - 3 mörk
Muhamed Alghoul - 2 mörk
Nacho Heras - 1 mark
Stefan Ljubicic - 1 mark
Sindri Snær Magnússon - 1 mark
Ernir Bjarnason - 1 mark
Ari Steinn Gunnarsson - 1 mark

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍR ÍR hafa farið virkilega vel af stað í Lengjudeildinni þetta sumarið og sitja taplausir á toppi deildarinnar með 18 stig fyrir þessa umferð. Í síðustu umferð unnu þeir virkilega sterkan heimasigur á nágrönnum sínum í Leikni R. 1-0 þar sem Óðinn Bjarkason skoraði sigurmarkið.
ÍR hafa unnið fimm leiki og gert þrjú jafntefli í fyrstu átta umferðum deildarinnar.

ÍR hafa skorað 12 mörk í sumar og fengið á sig 4 en mörk ÍR hafa raðast niður á:

Arnór Sölvi Harðarson - 3 mörk
Óðinn Bjarkason - 2 mörk
Sigurður Karl Gunnarsson - 1m mark
Renato Punyed - 1 mark
Marc McAusland - 1 mark
Kristján Atli Marteinsson - 1 mark
Guðjón Máni Magnússon - 1 mark
Bergvin Fannar Helgason - 1 mark

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er dómarinn okkar í dag og honum til aðstoðar verða Smári Stefánsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson.
Eftirlitsmaður KSÍ er Oddur Helgi Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkomin á HS Orku völlinn Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Keflavíkur og ÍR í níundu umferð Lengjudeildar karla sem fram fer á HS Orku vellinum í Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
3. Breki Hólm Baldursson
4. Sigurður Karl Gunnarsson
5. Hrafn Hallgrímsson
6. Kristján Atli Marteinsson
7. Óðinn Bjarkason
9. Bergvin Fannar Helgason
13. Marc Mcausland (f)
14. Víðir Freyr Ívarsson ('57)
19. Hákon Dagur Matthíasson ('87)
22. Jónþór Atli Ingólfsson ('70)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
27. Jóhannes Kristinn Hlynsson (m)
8. Alexander Kostic ('57)
16. Emil Nói Sigurhjartarson ('87)
17. Óliver Andri Einarsson
20. Ísak Daði Ívarsson ('70)
21. Sigurður Orri Ingimarsson
25. Gundur Ellingsgaard Petersen
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Helgi Freyr Þorsteinsson
Andri Magnús Eysteinsson
Sölvi Haraldsson
Davíð Örvar Ólafsson

Gul spjöld:
Sigurður Karl Gunnarsson ('1)
Hrafn Hallgrímsson ('21)

Rauð spjöld: