Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Elmar Atli spáir í 9. umferð Lengjudeildarinnar
Lengjudeildin
Elmar Atli, fyrirliði Vestra.
Elmar Atli, fyrirliði Vestra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Er að blómstra innan sem utan vallar.
Er að blómstra innan sem utan vallar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld hefst níunda umferð Lengjudeildar karla. Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra sem komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins í gær, spáir í leikina að þessu sinni.

Þróttur R. 3 - 1 Fjölnir (19:15 í kvöld)
Þægilegur kvöldleikur fyrir Þróttara. Ásgeir Frank spilar sínar fyrstu mínútur í sumar og kemur Fjölni yfir en Þróttur snýr þessu við í seinni.

Leiknir R. 1 - 1 Njarðvík (19:15 á morgun)
Leiknir eru að taka við sér eftir þjálfarskipti og Njarvík taplausir í deildinni. Jafnteflislykt af þessum leik. Aron Snær ver vítaspyrnu í leiknum og bæði lið ósátt í leikslok.

Fylkir 2 - 1 HK (19:15 á morgun)
Trúi ekki öðru en Fylkir rífi sig í gang eftir slaka byrjun á mótinu. Fullkominn leikur fyrir þá til að snúa þessu við. Dramatík og sigurmark í uppótartíma.

Grindavík 0 - 1 Völsungur (16:00 á laugardag)
Bragðdaufur leikur. Mikil harka og mörg spjöld. Stórvinur minn Elvar Baldvinsson er að blómstra þessa dagana innan sem utan vallar. Hann setur sigurmarkið með skalla eftir horn og fagnar með því að bóka sér ferð til Tyrklands í hárígræðslu.

Þór 3 - 2 Selfoss (16:00 á sunnudag)
Bjarni Jóh var mættur alla leið Vestur til að fylgjast með Þór spila en það dugir því miður ekki til. Selfoss kemst tvisvar yfir í leiknum, Nacho með bæði mörkin. Ibra mætir ferskur eftir að hafa tekið út bann í bikarnum og skorar þrennu.

Keflavík 0 - 2 ÍR (18:15 á sunnudag)
ÍR heldur áfram að safna stigum og halda hreinu. Það verður þreyta í Keflvíkingum eftir bikarleikinn og ÍR tekur þennan nokkuð þægilega. Sé rautt spjald í þessum leik.

Fyrri spámenn:
Ásgeir Marteins (2 réttir)
Sævar Atli (2 réttir)
Hrafnkell Freyr (4 réttir)
Júlíus Mar (4 réttir)
Bjarki Björn (3 réttir)
Guðjón Pétur (1 réttur)
Oliver Heiðars (1 réttur)
Elmar Kári (1 réttur)
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 8 5 3 0 12 - 4 +8 18
2.    Njarðvík 8 4 4 0 20 - 8 +12 16
3.    HK 8 4 2 2 15 - 8 +7 14
4.    Þróttur R. 8 4 2 2 15 - 11 +4 14
5.    Keflavík 7 3 2 2 15 - 9 +6 11
6.    Grindavík 7 3 2 2 20 - 15 +5 11
7.    Þór 8 3 2 3 18 - 17 +1 11
8.    Völsungur 8 3 1 4 11 - 17 -6 10
9.    Fylkir 8 1 4 3 9 - 12 -3 7
10.    Leiknir R. 8 2 1 5 9 - 21 -12 7
11.    Selfoss 8 2 0 6 6 - 17 -11 6
12.    Fjölnir 8 0 3 5 7 - 18 -11 3
Athugasemdir
banner
banner
banner