Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 2
4
Völsungur
Besta-deild kvenna
Þór/KA
45' 1
1
Víkingur R.
Besta-deild kvenna
FH
LL 1
2
Valur
Besta-deild kvenna
Stjarnan
LL 0
3
Breiðablik
FH
1
2
Valur
0-1 Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir '60
0-2 Helena Ósk Hálfdánardóttir '83
Ingibjörg Magnúsdóttir '84 1-2
21.06.2025  -  14:00
Kaplakrikavöllur
Besta-deild kvenna
Dómari: Jens Elvar Sævarsson
Áhorfendur: 387
Byrjunarlið:
24. Sandra Sigurðardóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir ('76)
5. Arna Eiríksdóttir (f)
6. Katla María Þórðardóttir
7. Thelma Karen Pálmadóttir
11. Ída Marín Hermannsdóttir
13. Maya Lauren Hansen
17. Elísa Lana Sigurjónsdóttir
22. Hildur Þóra Hákonardóttir ('76)
23. Deja Jaylyn Sandoval
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('45)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
3. Erla Sól Vigfúsdóttir
8. Valgerður Ósk Valsdóttir ('76)
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir
10. Alma Mathiesen
36. Harpa Helgadóttir ('76)
41. Ingibjörg Magnúsdóttir ('45)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Dagur Óli Davíðsson
Guðmundur Jón Viggósson
Aldís Guðlaugsdóttir
Brynjar Sigþórsson
Harpa Finnsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valsarar hafa sigur hér á FH og fara með þessum 3 stigum upp í 6. sæti deildarinnar. Viðtöl og skýrsla væntanleg
90. mín
+1 Mikil stöðubarátta þessar síðustu mínútur og Valsarar virðast ætla að harka þetta út
84. mín MARK!
Ingibjörg Magnúsdóttir (FH)
Stoðsending: Maya Lauren Hansen
Maya gerir vel hægra megin í teignum og setur boltann svo fyrir markið. Þar vinnur Ingibjörg Bryndísi í einvíginu og kemur boltanum yfir línuna
83. mín
Inn:Arnfríður Auður Arnarsdóttir (Valur) Út:Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
83. mín MARK!
Helena Ósk Hálfdánardóttir (Valur)
Fær boltann hægra megin á vellinum, keyrir inn og setur hann langt utan af velli í fjær
81. mín
Og enn og aftur er spyrnan ekki að fara yfir fyrsta mann
80. mín
FH fá enn eitt hornið
78. mín
Aftur er Thelma Karen að fara illa með varnarmenn og setja góða bolta inn í teig en í þetta skiptið hittir Maya Hansen ekki boltann
76. mín
Inn:Harpa Helgadóttir (FH) Út:Hildur Þóra Hákonardóttir (FH)
76. mín
Inn:Valgerður Ósk Valsdóttir (FH) Út:Birna Kristín Björnsdóttir (FH)
75. mín
Spyrnan er ekki góð og fer ekki yfir fyrsta mann
75. mín
Ingibjörg vinnur horn fyrir FH
70. mín Gult spjald: Natasha Anasi (Valur)
Straujar HIldi Þóru á miðjum velli
70. mín
Ingibjörg gerir vel úti vinstra megin og á skot sem sleikir fjærstöngina
69. mín
FH fá aukaspyrnu á fyrirgjafarstað en Elísa Viðars skallar frá
67. mín
Ekkert kemur svo upp úr horninu
67. mín
Ida Marín gerir vel hægra megin í teignum og kemur með bolta fyrir beint á pönnuna á Maya Hansen sem á skalla í varnarmann og afturfyrir
63. mín
DAUÐAFÆRI Ída Marín vinnur kapphlaup við Natöshu úti hægra megin og kemur með frábæran bolta fyrir markið á Elísu Lönu sem er í dauðafæri ein fyrir framan markið en hittir ekki rammann.
60. mín MARK!
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir (Valur)
0-1 Valur!! Hornið er tekið inn á teiginn og FH eru í vandræðum með að koma honum í burtu. Á endanum lendir boltinn fyrir lappirnar á Ragnheiði og hún klárar af öryggi.
59. mín
Valsarar fá horn.
56. mín
Thelma Karen gerir frábærlega úti á hægri kantinum og kemur svo með góðan bolta fyrir markið þar sem Elísa Lana á skot í varnarmann. Boltinn berst svo aftur út í teiginn, fyrir Birnu Kristínu, sem á afleitt skot langt fram hjá
54. mín
Fanndís með langskot hinum megin sem er beint á Söndru
53. mín
FH fá annað horn sem Elísa Lana tekur stutt, fær hann aftur frá Maya Hansen og setur hann svo fyrir en Tinna grípur þá fyrirgjöf þægilega
53. mín
FH fá horn sem Elísu Lana setur beint ofan á slána og yfir. FH að sækja í sig veðrið hér í seinni hálfleik.
51. mín
TINNA BRÁ FH sækja hratt og Elísa Lana finnur Thelmu Karen í gegn sem er ein á Tinnu en Tinna gerir stórvel og lokar á hana, FH fá horn.

Það verður svo ekkert úr horninu
49. mín
Regnheiður Þórunn með góða takta og á skot sem fer rétt fram hjá
49. mín
Maya með góða fyrirgjöf sem ratar í gegn um allan pakkann og á Thelmu Karen hinum megin, hún tekur við honum og á svo slakt skot
47. mín
Spyrnan hjá Elísu Lönu ekki góð og fer ekki yfir fyrsta mann.
46. mín
FH byrjar þennan seinni hálfleik af krafti og vinna horn
46. mín
Birna Kristín sparkar þessu aftur í gang
45. mín
Inn:Sóley Edda Ingadóttir (Valur) Út:Berglind Rós Ágústsdóttir (Valur)
Berglind Rós búin að vera eitthvað tæp í dag
45. mín
Inn:Ingibjörg Magnúsdóttir (FH) Út:Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (FH)
45. mín
Hálfleikur
Jens Elvar flautar til hálfleiks þrátt fyrir að vallarklukkan hafi ekki slegið 45 mínútur. 0-0 í hálfleik og ég bið um meiri skemmtun í þeim seinni.
42. mín
Góð sókn hjá FHingum endar með fyrirgjöf frá Maya Hansen frá vinstri en það er enginn í teignum og Valsarar koma boltanum frá.
38. mín
Arna Eiríks missir boltann klaufalega undir sig og Jordyn Rhodes er ein í gegn en Birna Kristín gerir ver í að covera undir Örnu, gerir skotvinkilinn þröngan og skotið er svo nokkuð þægilegt fyrir Söndru
35. mín
Birna Kristín með skemmtilegan bolta inn fyrir á Kötlu Maríu en flaggið á loft
34. mín
Thelma Karen með skot fyrir utan teiginn en það er hátt yfir
33. mín
Hildigunnur með slakt skot fyrir utan teig sem er beint á Tinnu Brá
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Valsarar sækja hratt upp hinum megin og Ragnheiður í ágætis færi en skotið er beint á Söndru í markinu
29. mín
Hildigunnur setur hornið innarlega í teiginn en Natasha rís hæst og skallar frá
29. mín
Fín sókn hjá FH sem endar með því að Maya Hansen vinnur hornspyrnu
28. mín
Valsarara fá aukaspyrnu sem er tekin inn á teiginn en í annars tilraun ná FHingar að hreinsa
23. mín
Fín fyrirgjöf inn á teig Vals frá hægri en Tinna Brá gerir vel, kemur út úr markinu og handsamar boltann
18. mín
Valsarar eru komnar í 3 á 2 stöðu en Berglind Rós tekur vonda ákvörðun og setur boltann beint á Söndru í markinu, mjög illa farið með þetta!
17. mín
Valsarar fá svo aukaspyrnu úti á velli sem er tekin inn á teiginn en boltinn ratar svo í hendurnar á Söndru
16. mín
SANDRA! Fanndís Friðriks í DAUÐAFÆRI eftir klaufagang hjá Thelmu Karen eftir hornið en Sandra Sig ver vel!
15. mín
Jordyn Rhodes með skot innan í teig sem fer í Örnu og aftur fyrir, fyrsta hornspyrna leiksins.
11. mín
Valsarar sækja svo upp hinum megin en FH verjast því
10. mín
SLÁIN Fyrsta skot leiksins er frá Elísu Lönu lengst utan af velli og fer beint í þverslána
8. mín
Ansi tíðindalitlar fyrstu mínútur í þessum leik, leikurinn hefur eiginlega allur farið fram á miðjuþriðjungnum.
4. mín
Deja Sandoval með ágætis bolta í gegn á Maya Hansen en hann er aðeins of fastur og Tinna Brá er vel vakandi í markinu og hirðir boltann
2. mín
Það er auðvitað systraslagur hér í þessum leik en Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH, og Bryndís Eiríksdóttir mætast hér í dag
1. mín
Valsarar byrja með boltann og sækja í átt að Skessunni
Fyrir leik
Besta stefið ómar í Krikanum Liðin ganga inn á völlinn, þetta er að byrja
Fyrir leik
Síðasta umferð fyrir EM pásu Þessi 10. umferð er sú síðasta fyrir mánaðar langa pásu í Bestu deildinni. Ef Valsarar tapa hér í dag og Víkingar sækja 3 punkta á Akureyri seinna í dag fara Valsarar inn í þessa löngu pásu í fallsæti sem væri mikið áfall og spurning hvort að pása yrði nýtt til þess að skoða þjálfarateymið eitthvað. Ef að FH sigrar hér í dag jafna þær stigafjölda Þróttar sem eru á toppnum og færu því inn í pásuna á toppnum jafnar Þrótti og mögulega Breiðablik sem eiga leik á sama tíma við Stjörnuna. Enginn vill fara inn í svona langa pásu með óbragð í munninum eftir vont tap og því mikið undir hér í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spáð í spilin Orri Rafn Sigurðarson er spámaður umferðarinnar og hann spáir FH sigri og neyðarfundi:

FH 2 - 0 Valur
Það er allt í blóma hjá FH en á sama tíma er sterkur fnykur af slæmu móral innan sem utan vallar og erfiðleikum á Hlíðarenda. Ída Marín er mætt og hefur heldur betur frískað upp á þetta FH lið sem voru andskoti góðar fyrir. Litlu gæðin sem hún hefur. Við fáum rautt spjald í þessum leik það verður mikill hasar og hiti en Hafnfirðingar taka heim 3 stig með 2-0 sigri og það verður neyðarfundur á Hlíðarenda um helgina.

Spain í heild sinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Í upphafi leiktíðar hefði maður búist við sannfærandi sigri Vals í þessum leik en FH stúlkur hafa komið skemmtilega á óvart það sem af er móti á meðan Valur hefur valdið vonbrigðum.
Gras leikur á blautum Kapplakrika og stuðullinn á FH er 2,70 hjá Epic. Áhugavert
Mate Dalmay
Fyrir leik
Byrjunarliðin Það eru tvær breytingar á byrjunarliði FH frá sigrinum gegn Tindastól. Inn koma Birna Kristín Björnsdóttir og Hildur Þóra Hákonardóttir og Erla Sól Vigfúsdóttir og Berglind Freyja Hlynsdóttir fá sér sæti á bekknum.

Valsarar gera tvær breytingar sömuleiðis. Inn koma Natasha Anasi og Helena Ósk Hálfdánardóttir og út fara Sóley Edda Ingadóttir, sem er á bekknum, og Nadía Atladóttir, sem er ekki í leikmannahópnum í dag.
Fyrir leik
Dómarateymið Jens Elvar Sævarsson er maðurinn með flautuna í dag og honum til halds og trausts eru þeir Arnþór Helgi Gíslason og Kristofer Bergmann sem eru með sitthvort flaggið. Ólafur Ingi Guðmundsson er eftirlitsmaður og Atli Björn E Levy er varadómari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Valur Valsarar eru að berjast á hinum enda töflunnar þegar 9 leikir eru búnir en þær sitja í 8. sæti deildarinnar með 9 stig. Lítið hefur gengið upp hjá þeim og fáir leikmenn sem eru að finna taktinn. Þær fengu Fram í heimsókn í síðustu umferð í leik sem tapaðist 1-2. Eftir að hafa komist yfir seint í fyrri hálfleik fengu þær tvö mörk á sig á tíu mínútna kafla í seinni hálfleik og þar við stóð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FH FHingar hafa heldur betur komið á óvart á þessu tímabili og eru í toppbaráttu þegar mótið fyrir tvískiptingu er hálfnað. Margir leikmenn eru að blómstra í Kaplakrika og verður spennandi að sjá hvað þær gera á móti vængbrotnum Völsurum. FH fengu Tindastól í heimsókn í síðustu umferð en eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik gjörsamlega völtuðu þær yfir Norðankonur í seinni og leikurinn endaði 5-1.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik FH og Vals í Bestu deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
5. Bryndís Eiríksdóttir
6. Natasha Anasi
7. Elísa Viðarsdóttir (f)
10. Berglind Rós Ágústsdóttir ('45)
14. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir ('83)
27. Helena Ósk Hálfdánardóttir
28. Kolbrá Una Kristinsdóttir
30. Jordyn Rhodes
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
20. Björk Björnsdóttir (m)
3. Sóley Edda Ingadóttir ('45)
16. Elín Metta Jensen
17. Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('83)
32. Ágústa María Valtýsdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)
Kristján Guðmundsson (Þ)
Jóhann Emil Elíasson
María Hjaltalín
Fjalar Þorgeirsson
Helgi Freyr Þorsteinsson
Jónas Breki Kristinsson

Gul spjöld:
Natasha Anasi ('70)

Rauð spjöld: