Besta-deild karla
ÍA

LL
0
3
3

Besta-deild karla
KA

LL
0
2
2

Lengjudeild karla
Keflavík

LL
0
0
0

Lengjudeild karla
Þór

LL
2
0
0


Þór
2
0
Selfoss

Sigfús Fannar Gunnarsson
'33
1-0
Ragnar Óli Ragnarsson
'74
2-0
Sigfús Fannar Gunnarsson
'80

22.06.2025 - 16:00
Boginn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Blankalogn
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Boginn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Blankalogn
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
3. Juan Guardia Hermida
('13)

5. Yann Emmanuel Affi
6. Ibrahima Balde
7. Orri Sigurjónsson
('42)

9. Rafael Victor
('46)

10. Aron Ingi Magnússon
11. Clement Bayiha
('85)

19. Ragnar Óli Ragnarsson


20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson
37. Sigfús Fannar Gunnarsson
- Meðalaldur 26 ár



Varamenn:
12. Franko Lalic (m)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson
('42)


8. Einar Freyr Halldórsson
18. Sverrir Páll Ingason
('13)

24. Ýmir Már Geirsson
('46)

30. Peter Ingi Helgason
('85)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Sveinn Leó Bogason
Gestur Örn Arason
Stefán Ingi Jóhannsson
Gul spjöld:
Sigfús Fannar Gunnarsson ('28)
Ragnar Óli Ragnarsson ('45)
Hermann Helgi Rúnarsson ('53)
Rauð spjöld:
Sigfús Fannar Gunnarsson ('80)
Leik lokið!
Báðir bekkirnir ósáttir. Þórsarar eiga aukaspyrnu en Ívar Orri flautar bara til leiksloka. Þór vinnur 2-0 sigur á Selfyssingum.
93. mín
Harley Willard með tilraun í varnarmann og svo á Frosti skot sem stefnir í innkast en Þórsarar hreinsa upp völlinn.
92. mín
Atgangur inn á vítateig Þórs
Alfredo með skot sem Aron Birkir ver, Elías svo með tilraun sem Aron Birkir slær í burtu og Elías fellur svo við en það var aldrei neitt í þessu. Tvær mínútur eftir.
90. mín
Jón Vignir með utanfótarsnuddu, boltinn fellur fyrir Frosta en hann hittir boltann mjög illa og skotið fer ekki átt að marki.
88. mín
Selfoss á horn sem Sesar tekur. Alls ekki galinn bolti en Þórsarar ná að hreinsa eftir eitt skopp.
87. mín
Jón Vignir kominn í sóknina og reynir að finna samherja á fjær, skemmtilegur bolti, en enginn tók hlaupið á fjær.
84. mín
Aron Ingi fellur við inn á vítateig Selfyssinga eftir návígi við Alfredo, Ívar Orri bendir á hornfánann, metur það þannig að Alfredo hafi komist í boltann. Mér sýndist það líka við fyrstu sýn, en þetta var tæpt.
81. mín
Fyrirgjöf inn á vítateig Þórsara en Aron Birkir handsamar þennan bolta.
Þórsarar manni færri það sem lifir leiks.
Þórsarar manni færri það sem lifir leiks.
80. mín
Rautt spjald: Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór )

Seinna gula spjaldið á Sigfús í þessum leik. Ekki hans fyrsta brot á gulu spjaldi, ekki mikið en eflaust hægt að rökstyðja þessa niðurstöðu.
78. mín
Alexander Clive með skot fyrir utan vítateig Þórsara en það fer vel yfir. Hitti boltann ágætlega upp á kraftinn að gera, en miðið skakkt.
74. mín
MARK!

Ragnar Óli Ragnarsson (Þór )
Stoðsending: Aron Ingi Magnússon
Stoðsending: Aron Ingi Magnússon
Blakala í brasi!!!
Aron Ingi með hornspyrnuna, setur boltann á fjær, Robert Blakala kemur út í teiginn en misreiknar þennan bolta algjörlega og Ragnar Óli þarf bara að stýra þessum bolta yfir línuna og gerir það með fætinum.
2-0!! Ekki það sem var í kortunum miðað við síðustu 10 mínútur, en það spyr enginn að því.
2-0!! Ekki það sem var í kortunum miðað við síðustu 10 mínútur, en það spyr enginn að því.
71. mín
Bjarni lætur dómarann heyra það
Bjarni Jó ósáttur við Ívar Orra.
,,Vertu sanngjarn maður," segir reynsluboltinn á hliðarlínunni. Vildi sjá Balde fá gult spjald fyrir brot sitt, en ekkert spjald fór á loft.
,,Vertu sanngjarn maður," segir reynsluboltinn á hliðarlínunni. Vildi sjá Balde fá gult spjald fyrir brot sitt, en ekkert spjald fór á loft.
65. mín
Dauðafæri - Besta færi Selfoss
Nacho með flotta vippu í hlaupið fyrir Frosta sem sker boltann til baka og finnur Sesar sem er í algjöru dauðafæri en hittir ekki markið. Selfyssingar farnir að sækja í sig veðrið.
61. mín

Inn:Sesar Örn Harðarson (Selfoss)
Út:Aron Fannar Birgisson (Selfoss)
Fyrsta breyting Selfyssinga.
60. mín
Sigfús Fannar gerir sig líklegan á fjærstönginni eftir langt innkast en Eysteinn nær að hreinsa í innkast.
57. mín
Clement fellur við inn á vítateig Selfyssinga og kallar eftir víti en ekkert dæmt. Fannst hann fara auðveldlega niður þarna.
55. mín
Frosti í mjög góðri stöðu, gerði vel í aðdragandanum, lætur svo vaða vinstra megin úr teignum en Hermann Helgi hendir sér fyrir og kemur í veg fyrir að þessi bolti fari í átt að marki Þórsara. Fórnaði sér fyrir liðið.
53. mín
Gult spjald: Hermann Helgi Rúnarsson (Þór )

Stöðvar skyndisókn og uppsker réttilega gult spjald.
52. mín
Sigfús Fannar fellur í tvígang inn í vítateig Selfyssinga og kallað eftir vítaspyrnum úr stúkunni, mjög lítið um köll hins vegar inn á vellinum, sýndist Ívar meta þetta hárrétt.
50. mín
Núna fá Þórsarar að byrja með boltann eftir að Selfyssingar setja hann upp í loftið. Annað hvort er Ívar Orri búinn að kynna sér regluna eða þetta er ekki eins klippt og skorið og ég hélt að þetta væri, og mismunandi eftir staðsetningu hvernig þetta er.
49. mín
Fínt spil úti hægra megin hjá Þórsurum og þeir vinna fyrstu hornspyrnu seinni hálfleiksins.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Selfoss byrjar með boltann, engin mannabreyting hjá gestunum.
46. mín

Inn:Ýmir Már Geirsson (Þór )
Út:Rafael Victor (Þór )
Þriðja breyting Þórsara í leiknum
Rafael tekur bara fyrri hálfleikinn í fyrsta byrjunarliðsleiknum sínum á tímabilinu.
45. mín
Hálfleikur
45+4
Selfyssingar fengu innkast hátt uppi á vellinum og Ívar Orri flautar til hálfleiks. Selfyssingar smá pirraðir að það var flautað.
Aron Lucas lætur eitthvað út úr sér og Reynir Freyr segir honum að passa sig, hann sé á spjaldi.
Selfyssingar fengu innkast hátt uppi á vellinum og Ívar Orri flautar til hálfleiks. Selfyssingar smá pirraðir að það var flautað.
Aron Lucas lætur eitthvað út úr sér og Reynir Freyr segir honum að passa sig, hann sé á spjaldi.
45. mín
45+3
Alexander Clive með hornspyrnuna og Aron Fannar kemst í boltann en skallinn fer framhjá.
Alexander Clive með hornspyrnuna og Aron Fannar kemst í boltann en skallinn fer framhjá.
45. mín
45+3
Selfyssingar vinna hornspyrnu, komust inn á vítateig í gegnum hægri vænginni.
Selfyssingar vinna hornspyrnu, komust inn á vítateig í gegnum hægri vænginni.
45. mín
45+2
Eysteinn með fyndið innkast, kallað eftir 'vitlausu innkasti' en dómararnir leyfa leiknum að fljóta. Virtist missa boltann upp í loftið.
Eysteinn með fyndið innkast, kallað eftir 'vitlausu innkasti' en dómararnir leyfa leiknum að fljóta. Virtist missa boltann upp í loftið.
45. mín
45+1
Þórsarar við það að komast í gott skotfæri við vítateig Selfyssinga en Alfredo og Reynir Freyr leysa úr þessari hættu.
Þórsarar við það að komast í gott skotfæri við vítateig Selfyssinga en Alfredo og Reynir Freyr leysa úr þessari hættu.
40. mín
Orri Sigurjóns fær högg og þarf að jafna sig, fær aðhlynningu. Hann fór í návígi við Frosta og fékk mögulega högg á andlitið. Orri er með sína meiðslasögu, sérstaklega í fyrra þegar kemur að höfuðhöggum.
37. mín
Gult spjald: Aron Lucas Vokes (Selfoss)

Brýtur á Sverri Páli sem er að keyra upp völlinn í skyndisókn. Nacho og Bjarni Jó ekki kátir með þetta spjald, finnst vanta samræmi.
36. mín
Frosti með fína fyrirgjöf en Affi les þessa stöðu vel og skallar boltann aftur fyrir. Selfoss á horn.
33. mín
MARK!

Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór )
Stoðsending: Aron Ingi Magnússon
Stoðsending: Aron Ingi Magnússon
Áttunda deildarmark Fúsa í sumar!
Sigfús Fannar með glæsilegt mark. virkilega gott spil við vítateig Selfoss, Balde og Fúsi með boltann fyrir utan teiginn, sending á Aron Inga sem leggur hann út fyrir teiginn og Sigfús Fannar smellhittir boltann sem fer í fjærhornið, óverjandi fyrir Blakala í marki Selfyssinga.
Áttunda mark Sigfúsar í deildinni.
Áttunda mark Sigfúsar í deildinni.

32. mín
Ívar Orri lætur Selfyssinga skila boltanum til baka eftir að hann fer upp í loft. Ég hélt að reglan væri þannig að Þór myndi bara byrja með boltann þar sem hann fer upp í loftið.
31. mín
Mjög gott færi
Ívan Breki í virkilega góðu færi eftir flotta skyndisókn hjá Selfossi. Frosti gerir mjög vel og leggur hann til hægri á Ívan sem hittir ekki rammann. Aron Birkir í marki Þórsara öskrar á sína menn að taka brotið á sig í aðdragandanum. Þerna var hætta inn á vítateig Þórsara.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Jón Vignir allt í öllu í vörn Selfoss. Sigfús með fyrirgjöf sem Jón skallar í burtu, Orri lætur svo vaða með vinstri og skotið fer í Jón. Hann skallar svo fyrirgjöf frá Clement í burtu.
28. mín
Gult spjald: Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór )

Brýtur af sér, held það hafi verið á Ívani sem var á sprettinum.
Þriðja brotið held ég hjá Fúsa, vel hægt að réttlæta þetta spjald. Mjög slök sending frá Balde í aðdragandanum.
Þriðja brotið held ég hjá Fúsa, vel hægt að réttlæta þetta spjald. Mjög slök sending frá Balde í aðdragandanum.
26. mín
Aron Ingi með skot af vítateigslínunni, skotið með vinstri og er ekkert svakalega fast. Skotið fer í Jón Vigni og þaðan aftur fyrir. Hornspyrna sem Aron tekur sjálfur.
25. mín
Ragnar Óli í brasi, lætur boltann skoppa og Aron Fannar hirðir boltann og keyrir af stað. Affi reddar liðsfélaga sínum en Selfoss fær honr.
24. mín
Sending ætluð inn fyrir á Clement en Eysteinn er mjög vel á verði og nær að komast í boltann áður en kantmaður Þórsara kemst í góða stöðu.
19. mín
Orri Sigurjóns fær aðhlynningu, brotið á honum og Þórsarar fá aukaspyrnu. Hann kemur strax inn á aftur.
19. mín
Þeir Aron Lucas (2004) og Alexander Clive Vokes (2005) eru frændur. Þeir leika saman inn á miðju Selfyssinga.
15. mín
Frosti með flotta takta á vinstri vængnum, kemur boltanum fyrir og Ívan Breki á fína tilraun en boltinn fer yfir mark Þórsara. Fyrsta færi Selfyssinga.
13. mín
Fyrirgjöf frá hægri sem Affi hreinsar aftur fyrir. Selfoss fær sitt fyrsta horn.
9. mín
Aron Lucas fær tiltal eftir að Ívar Orri dæmdi aukaspyrnu eftir brot á Aroni sjálfum. Eitthvað tuð hlýtur að vera.
6. mín
Aron Ingi með skot rétt framhjá marki gestanna, tók niður lausan bolta eftir innkast og lét vaða frá vítateigslínunni en hitti ekki rammann.
5. mín
Dauðafæri
Sigfús með góða fyrirgjöf af vinstri vængnum, Clement skallar boltann sem fellur fyrir Rafael Victor en honum eru algjörlega mislagðir fætur og hittir ekki markið af stuttu færi. Fyrsta færi leiksins var mjög gott.
3. mín
Selfoss
Blakala
Alfredo - Reynir - Jón Vignir - Eysteinn
Aron - Nacho - Alexander
Ívan - Aron Fannar - Frosti
Alfredo - Reynir - Jón Vignir - Eysteinn
Aron - Nacho - Alexander
Ívan - Aron Fannar - Frosti
2. mín
Boltinn upp í loftið eftir hreinsun Selfyssinga en Ívar lætur Selfyssinga samt byrja með boltann, smá seremónía, skrítið atvik.
2. mín
Þór
Aron Birkir
Juan - Ragnar - Affi - Vilhelm
Orri - Aron Ingi
Clement - Balde - Sigfús
Rafael
Juan - Ragnar - Affi - Vilhelm
Orri - Aron Ingi
Clement - Balde - Sigfús
Rafael
Fyrir leik
Þriðja liðið
Ívar Orri Kristjánsson er með flautuna í dag. Tomasz Piotr Zietal og Óliver Thanh Tung Vú eru aðstoðardómarar og Bragi Bergmann er eftirlitsmaður KSÍ.
Ívar Orri

Ívar Orri
Fyrir leik
Bjarni Jó gerir eina breytingu
Aron Fannar Birgisson kemur inn í lið Selfoss frá 0-2 tapinu gegn Þrótti um síðustu helgi. Harley Willard, fyrrum leikmaður Þórs, tekur sér sæti á bekknum.
Einar Karl Heiðarsson kemur inn í hópinn í stað Raul Gomez Martorell sem er ekki með í dag.
Aron Fannar
Einar Karl Heiðarsson kemur inn í hópinn í stað Raul Gomez Martorell sem er ekki með í dag.

Aron Fannar
Fyrir leik
Þórsarar endurheimta leikmenn
Framherjinn Rafael Victor lék sínar fyrstu mínútur á tímabilinu í leiknum gegn Vestra og er hann kominn í byrjunarlið Þórsara. Aron Ingi og Ibrahima Balde voru í banni í bikarnum og koma inn í liðið og þeir Clement Bayiha og Sigfús Fnnar Gunnarsson koma einnig inn í liðið. Ásbjörn Líndal, Hermann Helgi, Ýmir Már og Sverrir Páll taka sér sæti á bekknum en Alexander Már er ekki með í dag. Hann kom óvænt inn í byrjunarliðið gegn Vestra, hjálpaði Þórsurum í mikilli manneklu. U19 landsliðsmaðurinn Einar Freyr er þá mættur aftur í leikmannahópinn eftir meiðsli.
Rafael Victor

Rafael Victor
Fyrir leik
Staðan í deildinni og síðustu leikir
Liðin eru að mætast í fyrra skiptið í deildinni þetta tímabilið. Þau mættust í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins þar sem Þór vann 1-4 sigur á Selfossi.
Þór situr í 8. sæti Lengjudeildarinnar og er án sigurs í síðustu þremur leikjum. Þórsarar töpuðu síðasta deildarleik, 3-1, í Njarðvík fyrir átta dögum síðan. Juan Guardia kom Þórsurum yfir en heimamenn í Njarðvík svöruðu með þremur mörkum. Á miðvikudag sóttu svo Þórsarar Vestramenn heim í bikurum en sá leikur endaði með 2-0 sigri heimamanna á Ísafirði. Þór er með markatöluna 18:17.
Selfoss er í botnsæti Lengjudeildarinnar með sex stig. Selfyssingar töpuðu 0-2 gegn Þrótti í síðustu umferð eftir að hafa unnið Fjölni 0-2 í leiknum á undan. Selfoss er með markatöluna 6:17. Fimm stig skilja liðin að í deildinni eftir átta leiki.
Þór situr í 8. sæti Lengjudeildarinnar og er án sigurs í síðustu þremur leikjum. Þórsarar töpuðu síðasta deildarleik, 3-1, í Njarðvík fyrir átta dögum síðan. Juan Guardia kom Þórsurum yfir en heimamenn í Njarðvík svöruðu með þremur mörkum. Á miðvikudag sóttu svo Þórsarar Vestramenn heim í bikurum en sá leikur endaði með 2-0 sigri heimamanna á Ísafirði. Þór er með markatöluna 18:17.
Selfoss er í botnsæti Lengjudeildarinnar með sex stig. Selfyssingar töpuðu 0-2 gegn Þrótti í síðustu umferð eftir að hafa unnið Fjölni 0-2 í leiknum á undan. Selfoss er með markatöluna 6:17. Fimm stig skilja liðin að í deildinni eftir átta leiki.
Fyrir leik
Elmar Atli spáir
Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra, spáir í 9. umferð Lengjudeildarinnar.
Þór 3 - 2 Selfoss (16:00 á sunnudag)
Bjarni Jóh var mættur alla leið Vestur til að fylgjast með Þór spila en það dugir því miður ekki til. Selfoss kemst tvisvar yfir í leiknum, Nacho með bæði mörkin. Ibra mætir ferskur eftir að hafa tekið út bann í bikarnum og skorar þrennu.
Þór 3 - 2 Selfoss (16:00 á sunnudag)
Bjarni Jóh var mættur alla leið Vestur til að fylgjast með Þór spila en það dugir því miður ekki til. Selfoss kemst tvisvar yfir í leiknum, Nacho með bæði mörkin. Ibra mætir ferskur eftir að hafa tekið út bann í bikarnum og skorar þrennu.
Byrjunarlið:
1. Robert Blakala (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson
('72)

3. Reynir Freyr Sveinsson
5. Jón Vignir Pétursson (f)
9. Aron Fannar Birgisson
('61)

10. Nacho Gil
11. Alfredo Ivan Sanabria
15. Alexander Clive Vokes
('82)

21. Frosti Brynjólfsson
28. Eysteinn Ernir Sverrisson
32. Aron Lucas Vokes
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
7. Harley Willard
('82)

18. Dagur Jósefsson
20. Elvar Orri Sigurbjörnsson
23. Elías Karl Heiðarsson
('72)

25. Sesar Örn Harðarson
('61)

77. Einar Bjarki Einarsson
- Meðalaldur 21 ár
Liðsstjórn:
Bjarni Jóhannsson (Þ)
Ingi Rafn Ingibergsson
Þorkell Ingi Sigurðsson
Arnar Helgi Magnússon
Heiðar Helguson
Helgi Bárðarson
Aron Ingi Heiðmarsson
Gul spjöld:
Aron Lucas Vokes ('37)
Rauð spjöld: