Veggur í viðræðum Man Utd um Mbeumo - Chelsea vill Rogers - Ekitike og Isak sápuóperan heldur áfram
Besta-deild karla
Afturelding
LL 1
1
Fram
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Víkingur R.
LL 8
0
Malisheva
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Flora Tallinn
LL 1
2
Valur
Víkingur R.
8
0
Malisheva
Nikolaj Hansen '10 1-0
Nikolaj Hansen '21 2-0
Oliver Ekroth '29 3-0
Nikolaj Hansen '36 4-0
Daníel Hafsteinsson '42 5-0
Valdimar Þór Ingimundarson '68 6-0
Xhaka Agon '72
Atli Þór Jónasson '72 , víti 7-0
Sveinn Gísli Þorkelsson '82 8-0
17.07.2025  -  18:45
Víkingsvöllur
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Dómari: Robertas Valikonis (Litáen)
Maður leiksins: Nikolaj Hansen
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth
6. Gunnar Vatnhamar ('46)
7. Erlingur Agnarsson
9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson ('46)
15. Róbert Orri Þorkelsson
20. Tarik Ibrahimagic ('61)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('69)
23. Nikolaj Hansen ('46)
25. Valdimar Þór Ingimundarson
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
35. Jochum Magnússon (m)
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson ('46)
8. Viktor Örlygur Andrason ('61)
10. Pablo Punyed ('46)
12. Ali Basem Almosawe
17. Atli Þór Jónasson ('46)
19. Viktor Steinn Sverrisson
24. Davíð Örn Atlason ('69)
32. Gylfi Þór Sigurðsson
33. Haraldur Ágúst Brynjarsson
34. Ívar Björgvinsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Erlingur Agnarsson ('48)
Atli Þór Jónasson ('78)
Oliver Ekroth ('88)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Hann bætir engu við dómarinn. 8-0 sigur er nýtt met hjá íslenskum liðum í Evrópu. Stórkostleg frammistaða hjá Víkingum!
88. mín Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Full seinn þarna.
86. mín
Inn:Omer Bajraktari (Malisheva) Út: Laurent Xhylani (Malisheva)
82. mín MARK!
Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Pablo Punyed
GEGGJUÐ AFGREIÐSLA! Pablo með frábæra sendingu á Svein sem tekur þetta utanfótar upp í hornið.
78. mín Gult spjald: Atli Þór Jónasson (Víkingur R.)
Víkingar skora en dæmt af! Vel klárað hjá Atla, en dæmt brot á hann þar sem hann og markmaðurinn koma saman.
74. mín
Inn: Emir Zogaj (Malisheva) Út: Altin Aliu (Malisheva)
72. mín Mark úr víti!
Atli Þór Jónasson (Víkingur R.)
Fyrsta mark hans í Evrópu! Ef Víkingar fá ekki mark á sig þá eru þeir búnir að tryggja stærsta sigur í sögu íslensks lið í Evrópu.
72. mín Rautt spjald: Xhaka Agon (Malisheva)
71. mín
VÍTI OG RAUTT Hann ver boltann á línunni! Víkingar eiginlega klaufar að skora bara ekki úr þessu færi en þeir fá allavega víti.
69. mín
Inn:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) Út:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
68. mín MARK!
Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Sveinn Gísli Þorkelsson
Þeir jafna metið um stærsta sigur í Evrópu hér! Boltinn skýst af Sveini Gísla á miðsvæðinu og Valdimar er bara sloppinn í gegn. Hann er einn gegn markmanni og klára þetta snyrtilega.
61. mín
Inn: Mark Bushaj (Malisheva) Út: Robert Mathieu Ndjigi (Malisheva)
61. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Út:Tarik Ibrahimagic (Víkingur R.)
61. mín
Gestirnir með aukaspyrnu og þeir lyfta boltanum inn í teig. Xhylani nær skallanum en yfir markið.
59. mín
DAUÐAFÆRI! Fyrirgjöf inn í teig á fjær þar sem Atli skallar boltann aftur fyrir teiginn. Valdimar er þar í góðri stöðu en Avdyli ver vel. Atli nær svo frákastinu og er í þröngu færi, og endar á að skjóta í innkast.
58. mín
Víkingar enda á að fá tvö horn. Í því seinna ná gestirnir að skalla frá en Tarik kemst í boltann fyrir utan teig. Hann tekur skotið en í varnarmann.
56. mín
Atli í góðri stöðu inn í teig og tekur skotið, en í varnarmann og aftur fyrir. Víkingar fá horn.
54. mín
Erlingur með hættulega fyrirgjöf sem rétt missir af Atla. Væri gaman að sjá hann setja mark sitt á leikinn.
49. mín
Gestirnir sloppnir í gegn! Víkingar missa boltann á miðjum vellinum og þá er Berisha bara sloppinn í gegn. Hann keyrir upp hálfan völlinn, en Róbert gerir vel í að elta hann uppi. Hann tekur svo skotið en Ingvar sér við honum.
48. mín Gult spjald: Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
Missir boltann og brýtur svo af sér til að stöðva skyndisókn.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn! Fimm skiptingar í hálfleik
46. mín
Inn: Valmir Berisha (Malisheva) Út: Dzemal Ibishi (Malisheva)
46. mín
Inn: Besnik Ferati (Malisheva) Út: Etnik Brruti (Malisheva)
46. mín
Inn:Atli Þór Jónasson (Víkingur R.) Út:Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
46. mín
Inn:Pablo Punyed (Víkingur R.) Út:Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
46. mín
Inn:Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.) Út:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
45. mín
Hafliði mættur með myndavélina á lofti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Enginn uppbótartími enda algjör óþarfi. Það er í raun óþarfi að spila seinni hálfleikinn, en Víkingar geta stefnt á að taka stærsta Evrópu sigur í sögu Íslands. Það er 6-0 og 7-1 sem er metið.
42. mín MARK!
Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
Þetta er orðið vandræðalegt fyrir gestina Erlingur með boltann á hægri kantinum og kemur með fyrirgjöfina. Varnarmaður nær að hæla boltann frá en hann fer bara beint á Daníel sem hamrar boltann upp í þaknetið!
39. mín
Helgi með fast skot fyrir utan teiginn, alls ekki galin tilraun rétt framhjá markinu.
38. mín Gult spjald: Donart Vitija (Malisheva)
Fer glæfralega í Erling.
36. mín MARK!
Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Stoðsending: Erlingur Agnarsson
ÞARNA KOM ÞRENNAN! Mjög svipað færinu sem kom tveimur mínútum áður. Víkingar spila vel saman á hægri kantinum og Erlingur kemur svo með fyrirgjöfina. Niko með gott hlaup og núna stýrir hann boltanum betur í fjærhornið!
34. mín
Dauðafæri!! Erlingur með boltann á hægri kantinum og gefur fastan bolta fyrir á Nikolaj. Hann er bara örfáum metrum frá markinu þegar hann tekur skotið en núna ver Avdyli virkilega vel frá honum.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
Þriðja vitlausa innkastið! Vel gert hjá dómaranum að dæma á þetta. Það er víst ekki kennt að taka innköst í Kósavó.
29. mín MARK!
Oliver Ekroth (Víkingur R.)
MARKMAÐURINN MISSIR BOLTANN Í MARKIÐ Víkingar eiga hornspyrnu og boltinn kemur til Daníels sem tekur fast skot í varnarmann. Þá fær Oliver boltann fyrir utan teig, og á í raunninni bara lélegt skot, en Avdyli markvörður gestanna missir bara boltann í eigið net.

Þetta var Youtube mark.
26. mín
Daníel kemur aftur inn á með úlnliðinn vel teipaðann.
24. mín
Daníel Hafsteins tekur hérna hné á miðjum vellinum og sjúkraþjálfararnir koma inn á að hlúa að honum. Þetta er eitthvað í úlnliðnum hjá honum.
21. mín MARK!
Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Stoðsending: Daníel Hafsteinsson
Aftur tengja þeir!! Víkingar fá aukaspyrnu rétt hjá hægri hornfánanum. Daníel tekur spyrnuna, fastur bolti inn í teig og Niko tekur frábært hlaup. Skallar boltann í fjær, markmaðurinn er í boltanum en hann lekur inn eftir að hann kemur við hann.
16. mín
Færi hjá Víkingum! Erlingur fær langan bolta til sín á hægri kantinum. Hann kemur með fyrirgjöfina svo inn á teiginn þar sem Helgi nær skallanum. Þetta er erfiiður skalli fyrir Helga sem nær ekki að gera betur en að setja hann frekar hátt yfir markið.
13. mín
Vitija með frábæra sendingu upp á Ibishi sem er í góðri stöðu. Hann hins vegar fer ekki alveg nógu vel með þetta. Klappar aðeins boltanum áður en hann tekur slappt skot framhjá.
10. mín MARK!
Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Stoðsending: Daníel Hafsteinsson
Þeir leiða 2-0! Daníel fær boltann rétt fyrir utan teig og hann fær bara flugbraut inn í teig. Þeir sogast svo allir að Daníel þannig Niko er með svakalega mikið pláss inn í teig. Daníel rennir honum á Niko sem gat ekki annað en klárað þetta.
9. mín
Þeir ráða ekkert við Valdimar á vellinum, eina sem þeir gera er að brjóta á honum. Hann er að snúa af sér mann og annan.
8. mín
Aliu tekus spyrnuna og hann hittiur á Vitija sem tekur skotið, en beint í varnarmann og Víkingar ná boltanum.
8. mín
Malisheva fær horn
7. mín
Framhjá! Víkingar taka þetta stutt á Daníel sem reynir fyrirgjöfina. Gestirnir skalla frá en þá nær Karl Friðleifur boltanum fyrir utan teig og tekur skotið en rétt framhjá.
6. mín
Flottir taktar hjá Valdimar á miðjum vellinum, fer fram hjá einum á meðan það er brotið á honum. Hann stendur það af sér og reynir sendinguna en hún ratar ekki á réttan mann og þá dæmir dómarinn aukaspyrnu. Góður hagnaður þarna.
5. mín
Víkingar halda vel í boltann í byrjun leiks, en þetta er svona frekar rólegt. Einhverjar fyrirgjafir komnar sem hafa ekki ratað á réttan mann.
1. mín
Leikur hafinn
Litáenski dómarinn flautar og við förum af stað!
Fyrir leik
Alveg að fara byrja Leikmenn labba inn á völlinn og fá gott lófaklapp. Upphafsflautið fer að bresta á!
Fyrir leik
Víkingar eru í góðri stöðu eftir fyrri leikinn og eru mun öflugra lið. Andstæðningar þeirra munu þurfa að sækja á þá og færa sig framar og það mun skapa opnanir fyrir sóknarmenn Víkinga sem munu fá úr nægu að moða. Yfir 2.5 mörk á epic er 1.92 og svo lengi sem sóknarmenn Víkings eru ekki í krumma þá skora þeir yfir 3 stykki.
Fyrir leik
Hvert fer Víkingur næst? Það er orðið ljóst hver verður andstæðingurinn í næstu umferð ef Víkingur klárar verkefnið sitt í kvöld. Það verður Vllaznia frá Albaníu, en Breiðablik mætti einmitt líka Albönsku liði í sinni forkeppni en pökkuðu þeim saman.
Mynd: Skjáskot/Valur
Það voru senur þegar þeir mættu síðast en þá spiluðu þeir við Val.
Fyrir leik
Byrjunarliðið Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu frá fyrri leiknum. Gylfi Þór Sigurðsson fær sér sæti á bekknum en Erlingur Agnarsson kemur inn fyrir hann.
Mynd: Haraldur Örn Haraldsson

Fyrir leik
Hansen að renna út á samning Nikolaj Hansen sem skoraði markið í fyrri leiknum er með samning til lok þessa tímabils hjá Víking. Hann hefur eitthvað verið orðaður frá félaginu síðustu daga en Víkingar vonast til að halda honum.
Fyrir leik
Viðtöl fyrir leik Þjálfarinn og fyrirliðinn, Sölvi Geir Ottesen og Oliver Ekroth fóru í viðtal fyrir leik þar sem var tekin staðan á þeim.
Fyrir leik
Víkingur vann úti Fyrri leikurinn fór 1-0 fyrir Víking þar sem Nikolaj Hansen skoraði á 45. mínútu. Víkingar fara því með forskot inn í þennan seinni leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sambandsdeildin heilsar Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Víkings gegn Malisheva í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Leikurinn hefst klukkan 18:45 og verður spilaður á Víkingsvellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
91. Ilir Avdyli (m)
2. Arlind Veliu
5. Dreni Kryeziu
7. Altin Aliu ('74)
10. Etnik Brruti ('46)
14. Laurent Xhylani ('86)
20. Arber Pira
28. Robert Mathieu Ndjigi ('61)
30. Donart Vitija
34. Xhaka Agon
99. Dzemal Ibishi ('46)

Varamenn:
12. Flamur Gashi (m)
3. Omer Bajraktari ('86)
6. Besnik Ferati ('46)
8. Mark Bushaj ('61)
9. Fatjon Bunjaku
10. Emir Zogaj ('74)
33. Arber Prekazi
77. Valmir Berisha ('46)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Donart Vitija ('38)

Rauð spjöld:
Xhaka Agon ('72)