SKÝRSLAN: Leiknir skoraði en HK vann
Hvað réði úrslitum?
HK fékk fleiri og hættulegri færi heilt yfir og eitt þeirra fór inn er Dusan Brkovic gerði sjálfsmark svo einfalt er það. Hefði verið eitthvað ósanngjarnt að lið Leiknis hefði skorað? Nei sennilega ekki en þeir virtust bara ekki hafa nægjanlega trú á því að geta það og því fór sem fór.
Bestu leikmenn
1. Ólafur Örn Ásgeirsson
Varði víti í leiknum (reyndar mjög slakt víti) og var öruggur í sínum aðgerðum og greip inn í þegar á þurfti að halda.
2. Ólafur Íshólm Ólafsson
Á reyndar stóra sök á marki HK sem kemur eftir slaka sendingu frá honum út. En þess utan varði hann í þrígang úr dauðafæri og var ástæða þess að Leiknir var inn í leiknum fram á síðustu sekúndu.
Atvikið
Vítaspyrna Shkelzen Veseli var fádæma slök. Um leið og hann hóf tilhlaup sitt var ég búinn að ákveða að hann væri ekki að fara að skora.
Hvað þýða úrslitin?
HK minnkar bilið í toppliðin og er nú aðeins 2 stigum á eftir toppliði ÍR og stigi á eftir Njarðvík í 2.sætinu, Leiknir fer á sama tíma í botnsætið á lakari markatölu en Fjölnir.
Vondur dagur
Shkelzen Veseli af nokkuð augljósum ástæðum. Sóknarleikur Leiknis var bara ekki nægjanlega beittur í dag svo það komi skilmerkilega fram líka. Voru að finna góðar stöður og fína sénsa en þegar á hólminn var komið virkaði sjálfstraust þeirra ekkiert.
Dómarinn - 9
Skólabókardæmi um vel dæmdan leik. Var með stóru atriðin á hreinu frá mér séð. Þess utan lagði hann mönnum línuna snemma um lagaleg atriði leiksins. Þeir sem ekki tóku það til sín fóru svo í svörtu bókina með gult spjald þegar við átti.


