SKÝRSLAN: FH með sterkan sigur gegn Fram á heimavelli
Hvað réði úrslitum?
FH mættu bara grimmari til leiks og pressuðu hátt og virkuðu bara eins og þær væru með miklu meiri orku.
Bestu leikmenn
1. Maya Hansen
Maya var öflug í dag og var nálægt því að setja þrennu hér í dag.
2. Thelma Karen
Flott í dag, mikill kraftur í henni og alltaf hætta þegar hún fékk boltann og skorar svo flott mark til að loka leiknum 3-1.
Atvikið
Fyrsta mark FH klaufalegt hjá Fram sem voru í sókn og fá svo mark beint í andlitið og voru eiginlega aldrei líklegar eftir fyrsta markið þrátt fyrir að hafa skorað og minkað muninn í 2-1
Hvað þýða úrslitin?
FH fer í 2.sætið með 25 stig við hlið Þróttar en FH eru með betri markatölu
Fram eru ennþá í 6.sæti með 15 stig
Vondur dagur
Fram liðið fannst mér bara frekar slakar í dag FH átti ekki í miklum vandræðum með þær.
Fram tapaði boltanum oft neðarlega á vellinum og áttu ekki mörg færi en nýttu eitt færi sem Murielle fékk.
Dómarinn - 7
Bara góður í dag, dæmdi vítið rétt að mínu mati og leyfði leiknum að fljóta vel. spurning með aukaspyrnuna sem Fram skorar markið úr en hann sá þetta vel þannig treysti á að það hafi verið rétt hjá honum.



