Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
ÍBV
ÍBV
Besta-deild karla - Neðri hluti
Hásteinsvöllur
1 - 1
Afturelding
Afturelding
Alex Freyr Hilmarsson 66'1 - 01 - 186' Aron Jóhannsson
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Afturelding sótti stig í Eyjum

Hvað réði úrslitum?

Eyjamenn voru með yfirhöndina allan leikinn og voru sterkari á öllum sviðum. Sköpuðu sér urmul af færum og góðum stöðum og hefðu átt að loka leiknum mikið fyrr. Þeir náðu ekki að nýta færin sín og Afturelding nýtti sér það í lok leiks og náðu að jafna leikinn með frábæru marki beint úr aukaspyrnu.

Bestu leikmenn

1. Alex Freyr Hilmarsson

Hefur oft verið betri en er alltaf stjórnandi á miðjunni hjá Eyjamönnum og vinnur svakalega vel fyrir liðið. Hann gerir svo auðvitað mark af gulli beint úr aukaspyrnu og kom ÍBV í 1-0.

2. Jökull Andrésson

Jökull átti nokkrar mikilvægar vörslur í marki Aftureldingar og hélt þeim inn í leiknum. Þeir geta líklega þakkað honum fyrir að Eyjamenn voru einungis með eins marks forystu þegar þeir ná að jafna leikinn undir lokin.

Atvikið

Það hlítur að vera aukaspyrnan sem Afturelding fékk undir lok leiks. Hrannar Snær hafði þá átt gott upphlaup og komist upp að teig Eyjamanni. Sigurður Arnar brýtur af sér og Afturelding fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Aron Jóhannsson tók spyrnuna og skoraði framhjá markverði ÍBV. Eyjamenn vilja meina að brot hafa átt sér stað þegar leikmaður Aftureldingar hljóp inn í varnarvegg Eyjamanna þegar spyrnan var tekin.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Afturelding eru enn þá neðstir með 22 stig, þremur stigum frá öruggu sæti. Eyjamenn eru í fínum málum með 30 stig.

Vondur dagur

Georg Bjarnason fékk að líta rauða spjaldið á 95. mínútu leiksins þegar Arnar Breki Gunnarsson var við það sleppa einn í gegn. Hann verður því í banni í næsta leik í þessari mikilvægu baráttu sem framundan er.

Dómarinn - 8

Fínn leikur hjá dómaranum og lítið sem ekkert út á hann að setja. Erfitt að meta þetta með aukaspyrnu Aftureldingar. Hvort að leikmaðurinn sem hljóp inn í vegginn hafi brotið af sér eða ekki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.