Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta-deild karla - Efri hluti
Víkingsvöllur
Grátt yfir þessu og vægur úði
2 - 1
Fram
Fram
Helgi Guðjónsson (víti) 55'1 - 01 - 170' Jakob ByströmGylfi Þór Sigurðsson 79'2 - 1
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Vítafíaskó, spjaldaveisla og fjögurra stiga forysta

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var framan af fremur bragðdaufur. Víkingur hélt betur í boltann en skipulagðir Framarar létu ekki opna sig. Í síðari hálfleik var það sama upp á teningnum, eftir vítafíaskóið mikla gerðist lítið sem ekkert þar til að Framarar jöfnuðu metin. Við jöfnunarmarkið opnaðist leikurinn til muna og bæði lið reyndu að sækja til sigurs og gekk það eftir hjá heimamönnum. Framarar mega vera svekktir því frammistaða þeirra varnarlega var frábær en lítið gekk framar á vellinum, þar sem þeir sköpuðu varla færi.

Bestu leikmenn

1. Gylfi Þór Sigurðsson

Stígur upp og skorar sigurmarkið. Löðrandi gæði á miðjunni og var mikið í boltanum. Fékk afbragðsfæri í fyrri hálfleik sem hann hefði átt að nýta.

2. Oliver Ekroth

Traustur varnarlega, þegar Framarar ógnuðu með skyndisóknum gátu Víkingar treyst á að Ekroth myndi stöðva þá.

Atvikið

Þegar Helgi Guðjóns fær að taka vítaspyrnuna aftur. Réttlætinu hafði verið fullnægt þegar að Viktor varði spyrnuna en Helgi fékk annan séns.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur er á toppi deildarinnar með fjögurra stiga forskot. Valur á þó leik til góða en þeir mæta Breiðabliki á morgun. Framarar eru í 6. sæti deildarinnar með 29 stig.

Vondur dagur

Erfiður leikur til að velja úr. Enginn áberandi slakur. Verð að setja þetta á framherjana í sitthvorum liðunum þá Má Ægisson og Nikolaj Hansen. Þeir sáust lítið í dag og því fá þeir þessa skemmtilegu nafnbót.

Dómarinn - 3

Sigurður Hjörtur og félagar hafa átt betri daga. Vítið sem Fram fær á sig er kolrangur dómur. Víkingurinn Karl Friðleifur sparkar í Frey en fær þó vítaspyrnu. Þá er hárrétt metið hjá kvartettnum að láta taka vítið aftur því Viktor var farinn af línunni. Síðar í leiknum fannst mér Sigurður missa tökin og hann byrjaði að spjalda nánast alla leikmenn vallarins. Ekki góður dagur hjá þriðja liðinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.