SKÝRSLAN: Markalaust jafntefli á Samsungvellinum í kvöld
Hvað réði úrslitum?
Markalaust jafntefli var að lokum mjög sanngjörn niðurstaða. Hvorugt lið fékk mikið af færum en leikurinn einkenndist af mikilli stöðubaráttu og líkamlegri baráttu milli liðanna en FH gat mögulega stolið þessu í lokin.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Kristjánsson
Klettur í vörninni. Hann og svo sem Caulker líka höfðu gætur á Sigurði Bjarti Hallssyni sem er ekki auðvelt verkefni.
2. Kjartan Kári Halldórsson
Kjartan Kári var líflegasti leikmaður FH í leiknum og bjó til færi en þeir náðu ekki alveg að fylgja því eftir. Gæðin skína í gegn.
Atvikið
Ekki mikið úrval en ef eitthvað að þá var það færið sem Bjarni Guðjón Brynjólfsson fékk undir lok leiks. Hann hefði geta tryggt sigurinn með því marki.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Stjarnan situr enn í öðru sæti og þá fjórum stigum á eftir Víkingi. FH er í fimmta sæti, þremur stigum á eftir Breiðabliki en þeir eiga leik til góða.
Vondur dagur
Að vissu leyti var þetta vondur dagur fyrir Stjörnuna í toppbaráttunni. Víkingur vann sinn leik og breikkaði bilið milli liðanna en það eru fjögur stig sem skilja liðin að. Þeir geta hins vegar sett verulega pressu á Víking í næstu umferð en það er einmitt andstæðingur þeirra næstkomandi mánudag.
Dómarinn - 7
Helgi Mikael dæmdi þennan leik heilt yfir vel en það má alveg spyrja sig hvort hann hefði mátt dæma víti, þegar Örvar Eggertsson féll við í teignum í fyrri hálfleik.



