Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Besta deildin
KR
17:30 0
0
Þór
Besta deildin
KA
17:30 0
0
Víkingur R.
Besta deildin
Valur
16:30 0
0
ÍBV
KA
0
0
Víkingur R.
17.04.2026  -  17:30
Greifavöllurinn
Besta deildin
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Dómarateymið Gunnar Oddur Hafliðason er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Arnþór Helgi Gíslason. Elías Ingi Árnason er fjórði dómari og Vilhelm Adolfsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Oddur
Fyrir leik
Spáir fimm marka leik Tónlistamaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson er spámaður umferðarinnar.

KA 2 - 3 Víkingur R.
Það er bara ekki annað hægt en að spá Víkingnum sigri með þetta lið sitt, þetta verður tæpt því KA menn verða sprækir, fáum líklegast mörk frá Jakobunum tveimur í liði KA og Valdimar hjá Vikes opnar markareikninginn þetta sumarið.
Mynd: Úr einkasafni
Fyrir leik
Djuric býður Víkinga velkomna í heimsókn Það verður að teljast líklegt að Danijel Dejan Djuric hefur merkt sérstaklega við þennan leik á dagatalinu sínu. Sóknarmaðurinn litríki átti frábæran tíma í Víkinni og fór þaðan með aragrúa af fallegum minningum í farteskinu.

En það virðist hreinlega innbyggt í flest íþróttafólk að vera staðráðið í því að gera vel gegn sínum gömlu liðum og telur undirritaður það sérstaklega eiga við í tilfelli Danijel Djuric - ef mið er tekið af þeim skemmtilega persónuleika sem að hann hefur að geyma. Það verður því afar fróðlegt að sjá hann kljást við sína g0mlu liðsfélaga.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Átti góða spretti gegn Stjörnunni og hlakkar líklega mikið til að mæta Víkingum.
Fyrir leik
Smávægilegar breytingar Eins og áður hefur komið fram má Sveinn Margeir ekki spila í dag, en ósennilegt verður að þykja að Jakob Snær Árnason verði heldur með KA liðinu í dag. Hann átti að byrja fyrsta leik tímabilsins gegn Stjörnunni, en þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og inn í hans stað kom Jakob Héðinn Róbertsson en Húsvíkingurinn ungi skoraði í leiknum sitt fyrsta mark fyrir KA.

Þá kemur Færeyingurinn Jóan Símun Edmundsson að öllum líkindum inn fyrir Svein Margeir. Jóan Símun átti erfitt uppdráttar fyrri hluta móts síðasta sumar, líkt og venja hefur verið hjá flestum í KA liðinu, en spilaði vel seinni hlutann.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Jakob Héðinn vonast til þess að fylgja eftir öflugri byrjun í KA treyjunni.
Fyrir leik
Heimkoma Daníels og Sveinn má ekki spila Uppaldi KA maðurinn Daníel Hafsteinsson mætir aftur á sinn gamla heimavöll í Víkingstreyju, en hann yfirgaf Brekkuna fyrir Fossvoginn eftir að hafa tekið þátt í að vinna fyrsta bikarmeistaratitil KA árið 2024. Sögur herma að freistandi samningstilboð frá KA hafi verið á borðinu, en miðjumaðurinn hæfileikaríki ákvað að söðla um. Hann átti svo stóran þátt í að hjálpa Víkingum að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn á síðasta ári.

Á sama tíma og Víkingar tilkynntu komu Daníels, þá tilkynntu þeir einnig komu Dalvíkingsins og fyrrum/núverandi KA-mannsins Sveins Margeirs Haukssonar. Sveinn Margeir hefur átt við erfið hnémeiðsli að stríða og töldu Víkingar þjóðráð að lána leikmanninn til KA svo að hann nái vopnum sínum á ný og fái nægan spiltíma. En þar sem að umrædd lið spila innbyrðis í dag verður spiltíminn ekki fyrir hendi - og þar af leiðandi þarf Sveinn að horfa á leikinn úr Greifavallarstúkunni eða í sjónvarpinu heima.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel, Sveinn Margeir og Hrannar Björn Steingrímsson á góðri stundu.
Fyrir leik
Gult og blátt varð fyrir valinu KA menn styrktu framlínu sína verulega með komu Olivers Heiðarssonar og voru hlutskarpastir í kapphlaupinu um sóknarmanninn kraftmikla. Valur, Breiðablik og Keflavík voru einnig á höttunum á eftir Oliver, en honum leist best á verkefnið fyrir norðan. Oliver kemur frá króatíska liðinu Lokomotiva Zagreb, en þrátt fyrir að hafa fengið að njóta góða veðursins í botn að þá fékk hann aldrei tækifæri til þess að sýna raunverulega hvað í sér býr.

Oliver sagði í viðtali við Sæbjörn Steinke að aðdragandinn hefði verið með þeim hætti að Keflvíkingar hefðu haft samband og tilkynnt Oliver að hann væri laus.

,,Ég fæ þau skilaboð frá Keflavík að ég sé orðinn laus og svo fæ ég eiginlega að velja mitt lið og ég er ánægður að velja KA á endanum,'' sagði Oliver.

Oliver sagði að það hefði verið pæling að fara aftur til Vestmannaeyja og spila með ÍBV, en hann hefði á endanum viljað nýja áskorun. Hann sagðist ekki reiðubúinn í alvöru mínútur, en reiknaði með því að spila einhverjar mínútur. Í öllu falli verður hann valmöguleiki fyrir Hallgrím Jónasson í dag.

Mynd: KA

Gulur og blár.
   15.04.2026 23:30
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn! Hér mun fara fram textalýsing á leik KA og Víkings R. í Bestu-deild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hart tekist á í leik liðanna á síðustu leiktíð.

föstudagur 17. apríl
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: