PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
Thelma eftir fyrsta landsliðsmarkið: Ég er smá fúl samt
Talar um „ógeðslegan leik" - Þarf betri ramma um nýju reglurnar
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
Sævar Atli ræðir brottrekstur Freys - „Fengum ekki að kveðja hann“
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
banner
   mið 15. apríl 2026 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Mynd: KA
Mynd: KA
„Það er gott að vera kominn aftur heim á klakann og ég er spenntur fyrir komandi tímabili," sagði Oliver Heiðarsson, nýjasti leikmaður KA, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Oliver gekk til liðs við KA frá króatíska félaginu Lokomotiva Zagreb í dag. Hann fór til Króatíu frá ÍBV í byrjun árs en hann spilaði ekkert þar og æfði lítið. Hann fékk símtal frá Keflavík og í kjölfarið fóru fleiri lið í kapphlaupið. Hann skrifaði að lokum undir þriggja ára samning við KA.

„Ég fæ þau skilaboð frá Keflavík að ég sé orðinn laus og svo fæ ég eiginlega að velja mitt lið og ég er ánægður að velja KA á endanum," sagði Oliver.

„Ég fæ símtal frá formanni Keflavíkur að það sé samþykkt tilboð. Ég vissi ekki hvort það væri lán eða kauptilboð. Ég skellti á hann og hringdi í umboðsmanninn minn, hann skildi ekkert í því. Hann hringdi í manninn okkar hjá Lokomotiva og hann segir að það sé ekki rétt, tveimur tímum síðar fæ ég símtal um að forsetinn hafi samþykkt tilboðið og ég geti farið frá klúbbnum ef ég vil."

„Ég fékk fullt af flottum símtölum en að lokum ákvað ég að koma norður."

KA hefur lengi haft augastað á Oliver.

„Umgjörðin og samtalið við Hadda var mjög gott. Mig langaði að koma í gott lið sem er að fara keppast um eitthvað. Prófa eitthvað nýtt og langaði að spila fótbolta og hafa gaman af þessu aftur. Ég vildi komast í gott umhverfi sem ég fengi að sýna það sem ég get," sagði Oliver.

„Auðvitað, það skiptir alltaf máli hversu mikinn áhuga liðið hefur áhuga á manni. KA hefur klárlega haft áhuga lengi og hafa reynt að sækja mig áður, það skiptir máli."

Oliver var spurður að því hvort það hafi komið til greina að fara aftur í ÍBV.

„Það var pæling en ég vildi prófa eitthvað nýtt, nýja áskorun," sagði Oliver.

KA fær Víking í heimsókn á föstudaginn. Oliver er klár í að taka þátt í leiknum.

„Einhverjar mínútur. Ég er auðvitað ekki búinn að æfa almennilega í smá tíma og það þarf að koma líkamanum aftur á þann stað að ég geti spilað alvöru mínútur en ég get spilað eitthvað," sagði Oliver.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner