Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Kórinn
HK
HK
4 - 1
Grótta
Grótta
0 - 130' Jónatan Ari BragasonTumi Þorvarsson 42'1 - 1Karl Ágúst Karlsson 53'2 - 1Dominik Radic 67'3 - 1Jóhann Þór Arnarsson 82'4 - 1
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: HK sigrar í markaleik

Hvað réði úrslitum?

Þessi leikur var á köflum mjög jafn. Grótta var kröftug í fyrri hálfleik og í byrjun þess seinni, en eftir annað mark HK tók HK nánast yfir leikinn og Grótta virtist ekki eiga mikla möguleika á að jafna metin aftur.

Bestu leikmenn

1. Karl Ágúst Karlsson

Algjörlega magnaður í leiknum í dag. Skoraði fyrstu mörk HK og annað markið var hreint ótrúlegt mark.

2. Ólafur Örn Ásgeirsson

Ólafur var frábær á milli stangana í dag og var stór ástæða fyrir því Grótta skoruðu aðeins 1 mark. Varði mörg flott skot og greip boltann í nánast öllum föstum leikatriðum. Annar sem var mjög sprækur í dag og þá sérstaklega í fyrri hálfleik var Tumi Þorvars hjá HK.

Atvikið

Svo sannarlega þegar Sigurður Gunnar hjá HK fær aðeins gult fyrir að taka Kristófer niður sem var þá kominn einn í gegn. Bæði leikmenn og stuðningsmenn Gróttu voru alls ekki sáttir við þennan dóm hjá Elíasi og fannst mér að þetta hefði alveg geta verið rautt spjald á Sigurð fyrir brotið.

Hvað þýða úrslitin?

Nú er 1. umferð Lengjudeildarinnar lokin og HK endar í 2. sæti á meðan Grótta liggur í 11. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Það er sárt að segja, því þessi leikmaður var flottur í fyrri hálfleik, en Guðmundur Rafn í marki Gróttu var alls ekki góður í tveim af mörkunum í seinni hálfleik. Það var líka oft mjög létt fyrir Tuma og Karl Ágúst inn í teiginn frá hægri og vinstri kanti og var þá vörnin bara alls ekki nógu góð hjá Gróttu.

Dómarinn - 5

Ekki mikið hægt að segja um dómararteymið í dag. Eina sem mér fannst skrítið sem ég nefndi í atvik leiksins, sem var að Elías gaf Sigurði aðeins gult eftir að Kristófer var kominn einn í gegn og skil ég Grótta menn að hafa verið ósáttir við þann dóm. Svo var annað brot þar sem HK hefðu átt að fá víti að mínu mati þegar Grímur hjá Gróttu tekur niður Þorstein hjá HK eftir að HK tekur hornspyrnu. Annars var þetta þokkalega dæmdur leikur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.