Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
Besta kvenna
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
3 - 4
ÍBV
ÍBV
Taylor Marie Hamlett 2'1 - 01 - 14' Fridrikka Marie Clementsen1 - 220' Emma Kate Young (sjm)1 - 343' Allison Grace LowreyAlda Ólafsdóttir 75'2 - 32 - 480' Allison Grace LowreyTaylor Marie Hamlett 90'3 - 4
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai

SKÝRSLAN: Sigur í fyrsta leik hjá nýliðunum

Hvað réði úrslitum?

Það mátti búast við skemmtun strax á fyrstu mínútum. Endalaust af hornspyrnu sem ÍBV fengu og nýttu sér. 3-1 í hálfleik fyrir gestina. Þegar spenna virtist fara koma í leikinn eru klaufaleg mistök sem skiluðu ÍBV fjórða markinu sínu og þá var of mikið búið fyrir Fram til að sækja eitthvað úr leiknum.

Bestu leikmenn

1. Allison Grace Lowrey

Óða markadrottningin frá Lengjudeildinni í fyrra heldur áfram. 2mörk í fyrsta leiknum og gaf allt í sölurnar í dag.

2. Taylor Marie Hamlett

Einnig með tvo mörk og var allt í öllu í sókn Framara. Gerði vel að koma sér í boltann og flottur leikur almennt hjá henni

Atvikið

3-1 í hálfleik virtist nokkuð öruggt en að lokum var það fjórða mark ÍBV sem þurfti til að innsigla 3stigin. Það getur verið dýrt að klikka sem hafsent á sendingu sérstaklega með svona marksjúkan sóknarmann nálægt

Hvað þýða úrslitin?

Sigur hjá ÍBV í fyrsta leik er sem nýliðar og heimaleikur framundan gegn Víking. Flott byrjun sem liðið vill eflaust byggja á. Fram þarf að bíta í það súra epli að fá ekkert úr þessum leik og næsti leikur heldur betur verðugt verkefni gegn Breiðablik.

Vondur dagur

Hornspyrnur og klaufagangur í öftustu línu. Sárt að fá á sig þrjú mörk eftir hornspyrnur og síðasta markið var algjör óþarfi sem klúðraði svolítið sénsinum á endurkomu.

Dómarinn - 5

Fékk alveg nóg af köllum frá stúkunni. Einhverji dómar sem voru spes en ekkert sem hefði getað gjörsamlega breytt leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.