PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Lengjudeild karla
HK
LL 4
1
Grótta
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 1
1
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 2
0
Njarðvík
Lengjudeild karla
Vestri
LL 1
1
Grindavík
Besta kvenna
Valur
LL 2
1
Grind/Njarð
Besta kvenna
Þór/KA
LL 1
1
FH
Besta kvenna
Fram
LL 3
4
ÍBV
Þór/KA
1
1
FH
0-1 Thelma Lóa Hermannsdóttir '9
Erin Flurey '90 1-1
25.04.2026  -  16:00
VÍS völlurinn
Besta kvenna
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Byrjunarlið:
12. Allesandra Doherty Augur (m)
4. María Dögg Jóhannesdóttir
7. Amalía Árnadóttir ('84)
9. Karen María Sigurgeirsdóttir
10. Elísa Bríet Björnsdóttir ('90)
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir ('84)
14. Margrét Árnadóttir
18. Bríet Jóhannsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir ('57)
23. Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('57)
24. Hulda Björg Hannesdóttir (f)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
2. Angela Mary Helgadóttir
5. Karen Hulda Hrafnsdóttir
6. Hildur Anna Birgisdóttir ('84)
8. Birgitta Rún Finnbogadóttir ('57)
13. Erin Flurey ('57)
19. Agnes Birta Stefánsdóttir ('84)
25. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir
27. Aníta Ingvarsdóttir ('90)

Liðsstjórn:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Hannes Bjarni Hannesson
Ísey Ragnarsdóttir
Sigurbjörn Bjarnason
Aron Birkir Stefánsson
Jóhann Hilmar Hreiðarsson

Gul spjöld:
Amalía Árnadóttir ('57)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
1 - 1 Sanngjörn úrslit

Skýrsla væntanleg
90. mín
Fjör Bæði lið reyna að ná sigurmarki. Karen komst í gegnum vörn FH en boltinn framhjá
90. mín
Inn:Aníta Ingvarsdóttir (Þór/KA) Út:Elísa Bríet Björnsdóttir (Þór/KA)
90. mín
Markið Mark Þórs / KA kom upp úr þurru. Aldís hélt að boltinn væri á leið framhjá.
90. mín
Tilraun Ída Marín reynir skot en yfir.
90. mín MARK!
Erin Flurey (Þór/KA)
Jöfnunarmark 800 hundraðasta mark Þórs/KA í efstu deild og fyrsta mark sumarsins og fyrsta mark þeirra á nýjum velli skorar Erin eftir að Katla María rennur á vellinum og dettur og missir boltann fyrir fætur Erin.
87. mín
Horn Þór/KA fær horn frá vinstri og boltinn berst að markinu þar sem Aldís ræður ríkjum.
84. mín
Inn:Agnes Birta Stefánsdóttir (Þór/KA) Út:Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Tvöföld skipting hjá Þór/KA
84. mín
Inn:Hildur Anna Birgisdóttir (Þór/KA) Út:Amalía Árnadóttir (Þór/KA)
Tvöföld skipting hjá Þór/KA
84. mín
Inn:Jónína Linnet (FH) Út:Anna Heiða Óskarsdóttir (FH)
tvöföld skipting FH
84. mín
Inn:Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir (FH) Út:Thelma Lóa Hermannsdóttir (FH)
tvöföld skipting FH
82. mín
FH sókn Ingibjörg geystist upp hægri vænginn og kom boltanum inn á Thelmu sem átti skot en hitti ekki markið. Þarna hefðu FH getað tryggt stigin þrjú.
80. mín
Inn:Helena Maree Errington (FH) Út:Mackenzie Elyze Smith (FH)
FH skiptir
77. mín
Hættulegt færi Birgitta kemst upp hægra megin og á fyrirgjöf sem berst til Amelíu sem á hörkuskot en í varnarmann. Þarna skall hurð nærri hælum.
75. mín
Fyrirgjöf - skot Erin vinnur boltann út við hornfána vinstra megin og á skot - fyrirgjöf sem siglir rétt framhjá fjærstöng
67. mín
horn FH FH fær horn frá hægri og Andrea tekur það. Hún kemur með fína sendingu en Allie nær boltanum eftir smá bras
63. mín
177 áhorfendur
61. mín
Hættulegt færi Margrét með geggjaða sendingu á Birgittu sem lendir í samstuði við Aldísi og boltinn upp í loft. Hann er skallaður frá og þær liggja eftir. Karen María fær boltann utan við teiginn og engin í markinu en skotið fer framhjá. - Aðhlynning.
58. mín
hættulegt færi Erin vinnur skallabolta og kemur honum á Margréti sem er við teiginn. Margrét laumar boltanum inn á Birgittu sem er of sein að rjúka af stað. Ekkert verður því úr þessu
57. mín
Inn:Erin Flurey (Þór/KA) Út:Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Þór/KA)
Skiptingar hjá Þór/(KA Þór/KA gerir tvöfalda skiptingu
57. mín
Inn:Birgitta Rún Finnbogadóttir (Þór/KA) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Skiptingar hjá Þór/(KA Þór/KA gerir tvöfalda skiptingu
57. mín Gult spjald: Amalía Árnadóttir (Þór/KA)
Stöðvar sókn
53. mín
Horn Ég er ekki sofnaður. Það er bara lítið að frétta. Þór/KA á horn frá vinstri og Elísa snýr boltann á nærstöng en Aldís kemst í hann og slær í burtu.
52. mín
Inn:Ingibjörg Magnúsdóttir (FH) Út:Nia Raisa Christopher (FH)
Skipting hjá FH
47. mín
Skot yfir FH vinnur boltann við vítateig Þórs/KA og Mackenzie á skot yfir markið
46. mín
Inn:Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH) Út:Hafrún Birna Helgadóttir (FH)
Skipting í hálfleik hjá FH
46. mín
Leikur hafinn
Seinni Seinni hálfleikur byrjaður.
46. mín
Horn Andrea á gott horn, sem ekkert verður úr og þá er flautað til hálfleiks.
45. mín
Hálfleikur
hálfleikur Staðan er 0 - 1 í kaflaskiptum leik. Ekkert mikið um dauðafæri en góðar tilraunir beggja liða.

Kaffi og svo seinni hálfleikur.

West Ham vann í dag svo allir eru kátir.
44. mín
Dauðafæri Nia fær stungusendingu inn fyrir vörnina og fer í kapphlaup við Örnu Sif. Arna nær að stýra boltanum til Allie sem bjargar í horn.
Hornið tekið á nær af Deju sem fær boltann aftur og á skot sem Arna skallar frá. FH fær aftur horn og nú frá hægri
41. mín
Thelma með fyrirgjöf Thelma kemst framhjá Bríet og á góða sendingu fyrir markið en Ída nær ekki að hæla hann að marki og boltinn fer í gegnum teiginn.
39. mín
Efnileg sókn Þórs/KA Elísa á góða sendingu upp hægra megin á Huldu Ósk en hún er "étin" af Deju sem hefur haft góðar gætur á Huldu
38. mín
Skot framhjá Thelma fær boltann hægra megin fyrir utan teig og á skot langt framhjá
37. mín
Aukaspyrna Þór KA fær aukaspyrnu sem endar beint í fangi Aldísar
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Ída með sprett Ída María leikur í gegnum vörn heimamanna og kemst upp að marki en þar mætir Allie og tæklar boltann í horn. Deja tekur hornið eins og hin fyrri vinstra megin og snýr boltann að marki en hann er skallaður frá. Ída stórhættuleg þegar hún fær að komast á ferðina.
29. mín
Góð tilraun Margrét fær óvænt boltann 10 m fyrir utan teig og sér að Aldís er framarlega. Hún reynir skot sem fer yfir Aldísi en framhjá.
26. mín
Sókn Margrét Árna með frábæra sendingu upp vinstra megin á Bríet sem er ekki nógu ákveðin. Með smá ákveðni hefði hún komist í gegn og ein á móti markmanni. Vantaði smá frekju.
24. mín
Hröð sókjn Ída María kemur hratt upp vinstra megin, leikur inn á völlinn og reynir skot sem Hulda Björg stöðvar.
20. mín
STungusending Langur bolti fram hjá heimamönnum og Margrét fór í kapphlaup við Aldísi markmann FH en tapaði og Aldís náði að hreinsa fram.
18. mín
Horn Andrea tekur frábært horn. Allie missir af boltanum en Katla snýr baki að boltanum í stað þess að skalla og missir því af færinu.
17. mín
Horn FH á enn eitt hornið og eins og áður tekur Deja það. Enn reynir hún að skrúifa boltann að marki en Arna Sif skallar aftur fyrir og nú er horn frá hægri.
16. mín
Jafnræði FH hefur náð að koma sér betur inn í leikinn og á nú hverja sóknina á fætur annarri. Nú náði Hafrún að koma boltanum á fjærstöng á Thelmu en Allie í markinu greip skallann.
14. mín
horn FH fær horn frá vinstri. Boltinn berst með snúningi að markinu en er skallað frá í horn. Annað horn. Aftur reynir sú hafnfirska að skjóta á markið en aftur er skallað en nú frá markinu.
13. mín
Vandræði hjá FH Pressan hjá heimamönnum heldur áfram og varnarmenn FH eiga stundum í vandræðum með að koma boltanum á markmanninn. Núna snerist boltinn út úr teignum og urðu gestirnir örlítið á undan í boltann og komu honum af hættusvæði.
11. mín
Hröð sókn FH FH vinnur boltann við miðju og komast fjórar gegn þremur varnarmönnum. Hafrún tekur skotið en beint á markmann.
9. mín MARK!
Thelma Lóa Hermannsdóttir (FH)
Thelma skorar Eftir frekar góða pressu Þórs/KA náði FH góðri sókn upp vinstra megin og skildu varnarmenn heimamanna svolítið eftir á hælunum. Komu boltanum inn í teig hægra megin, inn fyrir Bríet þar sem Thelma var ein og renndi hún boltanum framhjá Allessöndru.
3. mín
Pressa Þór/KA pressar FH vel á þeirra vallarhelming og er við það að skapa góð færi en FH hefur náð að bjarga sér út úr þessu hingað til.
1. mín
Færi Elísa Bríet kemst inn í slaka sendingu til baka til markmanns. Varnarmaður kemst fyrir skotið og Þór/KA fær horn. Eftir hornið fær Hulda Ósk boltann og á gott skot sem varið er í horn. Ekkert verður úr horninu.
Fyrir leik
Leikurinn er byrjaður Þórsarar leika til suðurs, frá Boganum og byrja með boltann.
Fyrir leik
Spáin FH er í flestum spám spáð 2. sætinu og að þær muni berjast við Breiðablik um titilinn.

Þór/KA er spáð frá 4. sæti til 7. sæti eftir því hverjir spá. Ég spái þeim þó ofar og í 3ja sæti. Þær eiga eftir að gera þennan völl að gryfju (eða vona það að minnsta kosti). Það á að vera erfitt að koma norður og ná í þrjú stig, eða eitt.

Þór/KA þarf að feta í fótspor Þórsara og byrja tímabilið vel og með sigri í fyrsta heimaleik á þessum fagra velli.
Fyrir leik
Leikurinn fer að hefjast - áhorfendur streyma að Veðrið í þorpinu er fínt. Smá gola en nokkuð hlýtt. Áhorfendur mega vera fleiri og hvet ég þá sem lesa þetta að drífa sig út og á völlinn.
Fyrir leik
Félagsskipti Fh FH fékk Mackensie Smith frá Fram og Nia og Helena frá Bandaríkjunum. Þær tvær fyrrnefndu eru í byrjunarliðinu en Helena er á bekknum.

Thelma, Arna og Elísa eru allar farnar í atvinnumennsku, Margrét Brynja í Val og útlendingarnir, Macy og Maya fóru aftur heim.
Fyrir leik
Styrkingar Þar sem ekkert er að finna á heimasíðu KSÍ reyni ég eftir bestu getu að rifja upp leikmannakaup og sölur.

Þór/KA missti fyrir tímabilið Söndru Maríu til liðs Kölnar þar sem hún hefur staðið sig gríðarlega vel. Sonja Björg og Kimberley Dóra fóru til Vals. Ellie Moreno og Jessica Berlin yfirgáfu Akureyri eftir síðasta tímabil. Einnig fór þjálfarinn Jóhann Kristinn til Þróttar.

Þetta þýddi að Þór/KA þurfti að styrkja sig og náði í þær Erin Flurey og Allie Augur að utan. Ein allra besta knattspyrnukona frá Akureyri sneri aftur norður eftir að hafa skilað nokkrum titlum á Hlíðarenda því Arna Sif er komin til að hjálpa liðinu í baráttunni í sumar. Þrjár stelpur af Króknum og ein frá Völlurum styrkja hópinn að auki.

Ein skipti eru þó enn ónefnd en liðið mætir nú til leiks með nýjan þjálfara. Jóhann Kristinn Gunnarsson, sem þjálfað hefur liðið undanfarin ár, er tekinn við Þrótti og í stað hans samdi Þór/KA við Aðalstein Jóhann Friðriksson. Aðalsteinn hefur þjálfað Völsung á Húsavík undanfarin ár, bæði karla- og kvennalið, og náð eftirtektarverðum árangri.
Fyrir leik
Fyrri leikir KSÍ síðan er því miður ekki með neinar upplýsingar um leiki liðanna en FH vann báða deildarleikina í fyrra og einnig bikarleikinn.

Fyrir leik
Fyrsti leikur Þórs/KA á nýjum velli Fyrsti leikur Þórs/KA á nýja vellinum í þorpinu er gegn FH. FH endaði í öðru sæti í fyrra á meðan Þór/KA endaði í neðri hlutanum og varð þar efst. Báðir forsetabikararnir komu því norður í fyrra.

Völlurinn lítur frábærlega út, annað en hægt er að segja um aðstöðuna fyrir blaðamenn. Héðan sjáum við varla völlinn. Þannig að ég missi eflaust af öllu nema því sem er í kringum miðjuna. :-)
Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir
3. Anna Heiða Óskarsdóttir ('84)
5. Mackenzie Elyze Smith ('80)
6. Katla María Þórðardóttir (f)
7. Nia Raisa Christopher ('52)
10. Ída Marín Hermannsdóttir
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir ('84)
13. Deja Jaylyn Sandoval
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
42. Hafrún Birna Helgadóttir ('46)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Steinunn Erna Birkisdóttir (m)
8. Helena Maree Errington ('80)
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir ('46)
15. Hrönn Haraldsdóttir
19. Hildur Katrín Snorradóttir
23. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('84)
36. Unnur Thorarensen Skúladóttir
37. Jónína Linnet ('84)
41. Ingibjörg Magnúsdóttir ('52)

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Dagur Óli Davíðsson
Brynjar Sigþórsson
Harpa Finnsdóttir
Steven Lennon
Valur Elli Valsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: