Fotbolti.net
Besta deildin
Alexander Tonini
Alexander Tonini
Besta karla
Meistaravellir
Kalt, hvasst og blautt.
KR
KR
4 - 2
FH
FH
Aron Sigurðarson 6'1 - 01 - 18' Tómas Orri RóbertssonEiður Gauti Sæbjörnsson 18'2 - 1Amin Cosic 28'3 - 1Aron Sigurðarson 33'4 - 14 - 243' Tómas Orri Róbertsson
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 1007
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
KR ingar með aðra sýningu og ótrúlegt að þeir hafi ekki skorað fleiri

Skýrla og viðtöl á leiðinni
91. mín
Amin með dauðafæri
Skoraði úr erfiðu færi í fyrri hálfleik en inn vill boltinn ekki úr betri færum í þeim seinni

Sá verður svekktur að vera bara eitt mark hér í kvöld
91. mín
Þremur bætt við
KR
87. mín
InnGaldur Guðmundsson
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
86. mín
Stefán með dauðafæri
Amin Cosic er búinn að vera rosalegur í þessum leik, en og aftur að valda usla og kemur Stefáni í dauðafæri en Jökull ver vel frá honum
KR
83. mín
Gult spjald

Orri Hrafn Kjartansson

FH
81. mín
Gult spjald

Ísak Óli Ólafsson

FH
79. mín
InnBenjamín Bæring Þórsson
ÚtKjartan Kári Halldórsson
KR
76. mín
InnGyrðir Hrafn Guðbrandsson
ÚtÁstbjörn Þórðarson
KR
76. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtAron Sigurðarson
FH
74. mín
KR fékk hagnaðinn áðan og FH gult núna

Adolf Daði Birgisson

72. mín
Amin Cosic í dauðafæri
Fær boltann inni í teig og alveg galopinn, en skotið hans í stöngina og út.

Fimmta markið vill ekki inn hjá KR
72. mín
1007 manns á vellinum
FH
70. mín
InnAdolf Daði Birgisson
ÚtKristján Snær Frostason
Kristján Snær tekinn út af til öryggis er stálheppinn að vera ennþá inná. Tvö atvik sem hefðu geta leitt til seinna gula.
FH
70. mín
InnKári Kristjánsson
ÚtViktor Nói Vidarsson
67. mín
Liggur mark í loftinu hjá KR
Vinstri kanturinn enn og aftur allt í öllu
FH
65. mín
InnGils Gíslason
ÚtTómas Orri Róbertsson
Til öryggis held ég þar sem Tómas er á gulu spjaldi, búinn að vera besti maður FH í dag.
61. mín
Kristján Snær heppinn að fá ekki annað gult og rautt
Ég sá ekki betur en að varamaðurinn hafi notað hendurnar til að stöðva Amin Cosic. Ekkert dæmt þarna og Kristján á gulu spjaldi nú þegar.
59. mín
6 hornspyrnur á skömmu kafla hjá KR
En ekkert komið úr þeim þrátt fyrir ákall stuðningsmanna KR um að fá þær á pönnuna á Eið
52. mín
Vinstri kanturinn verið allt í öllu í sóknarleik KR í kvöld
Enn og aftur vinstri kanturinn opnast á gátt en FH bjargar í horn.

Kristján Snær sem leysti Grétar af í hægri bakverðinum er strax kominn með gult og verður að teljast áhyggjuefni fyrir FH.
FH
50. mín
Gult spjald

Kristján Snær Frostason

FH
49. mín
Gult spjald

Arngrímur Bjartur Guðmundsson

46. mín
KR byrjar
Seinni er hafinn
FH
46. mín
InnKristján Snær Frostason
ÚtGrétar Snær Gunnarsson
45. mín
Nokkrar myndir úr fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikstölfræðin (af Sýn)
Marktilraunir: 11-6
Á mark: 8-4
Með boltann: 59% - 41%
Heppnaðar sendingar: 191-104
45. mín
XB

Í hálfleik þá skulum við minna okkur á þá staðreynd að þessi leikur væri ekki að fara fram hér í dag ef Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar hefði ekki keyrt framkvæmdir við nýja gervigrasið áfram í tíð sinni sem borgarstjóri. Í þokkabót setti hann byggingu knatthúss á íþróttasvæði félagsins af stað. XB


Það munar um 800 milljónir

- Auglýsing -
45. mín
Hálfleikur
Rosalegur leikur og nóg eftir
Tökum okkur 15
FH
43. mín
Gestirnir minnka muninn

Tómas Orri Róbertsson (stoðsending: Baldur Kári Helgason)

Þetta skrifast smá á Finn Tómas. Er of aggressívur á Úlf sem á þarna eina snögga snertingu og þá er Baldur Kári sloppinn í gegn sem sendir hann á Tómas sem þarf ekki annað en að renna honum í netið.
41. mín
Eiður næstum því búinn að skora 5. markið
Já ég endurtek þarna munaði engu að Eiður hefði skorað fimmta mark KR.

Flottur sprettur hjá Luke hægra megin og aftur föst fyrirgjöf á milli varnar og markmanns en Eiður aðeins og seinn og nær ekki til hans.
38. mín
Luke Rae skorar
En rangstaða dæmd, réttur dómur að mér sýndist.

En FH virkar þreytt og er í alls konar vandræðum með hraða, orku og hápressu heimamanna.
34. mín
Varamannaskýlin voru færð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vegna vinds í Vesturbænum voru varamannaskýlin færð stúkumegin fyrir þennan leik. Þar sem skýlin eru ekki föst við jörðina þá var hætta á að þau myndu fjúka!
KR
33. mín
Varamaðurinn með stoðsendingu með fyrstu snertingu

Aron Sigurðarson (stoðsending: Orri Hrafn Kjartansson)

Finnur Aron um leið rétt fyrir utan teig og hann staðsetur boltann fast niðri í hægra hornið, óverjandi fyrir Jökul.

FH martröðin heldur áfram
33. mín
Í Henson treyjum en Nike stuttbuxum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH er ekki komið með varatreyjur fyrir tímabilið og fékk því Henson til að redda sér tímabundnum treyjum. Liðið er því í Henson treyjum en Nike stuttbuxum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR
33. mín
InnOrri Hrafn Kjartansson
ÚtArnór Ingvi Traustason
Meiðsli því miður
KR
28. mín
Veislan heldur áfram

Amin Cosic (stoðsending: Gabríel Hrannar Eyjólfsson)

Geggjuð sending hjá Gabríel á Amin sem er sloppin í gegn en nóg eftir enda færið þröngt.

En Amin afgreiðir hann snyrtilega á milli fóta Jökuls og kemur KR í 3-1.
25. mín
Alexander með dauðfæri
Loksins ákveður Dóri að sparka langt og boltinn skoppar yfir alla og Alexander Rafn var einn á móti Jökli.

Jökull gerir hins vegar vel og kemur út og minnkar markið og Alexander tekst ekki að stýra boltanum framhjá honum.
FH
25. mín
Gult spjald

Tómas Orri Róbertsson

Braut þarna á Alexander sem var kominn framhjá honum og á leiðinni í skyndisókn
23. mín
Ofboðslega mikill hraði í leiknum
Luke Rae einn á móti Grétar þarna á vinstri og fer framhjá honum og á fínan bolta inn í teig en sóknin rennur í sand.

FH vörnin og svo sem KR vörn einnig í talsverður vandræðum hér í byrjun leiks.
KR
18. mín
Jóhannes Karl brjálaður

Aron Sigurðarson

FH fékk hagnaðinn og missti boltann. Í kjölfarið fær Aron hann og úr því verður mark.

En réttur dómur sýndist mér þar sem FH fékk hagnaðarregluna.
KR
18. mín
MAAAARK!

Eiður Gauti Sæbjörnsson (stoðsending: Aron Sigurðarson)

Þetta var athyglisvert og Jóhannes Karl er brjálaður.

Aron Sig með augljóst peysutog en ekkert dæmt þar sem FH fær hagnaðarregluna en missir af boltanum.Næsta sending er á Aron og hann á flotta stungu sem sendir Eið í gegn einan og hann rennir boltanum framhjá Jökli í markinu.
18. mín
Góður sprettur hjá Amin Kosic
Geysist upp vinstri og fær góða sendingu frá Aroni, gerir það hárrétta í stöðunni og sendir fastan bolta á milli varnar og markmans. En engin nær til hans.
FH
15. mín
Gult spjald

Grétar Snær Gunnarsson

FH
8. mín
Gestirnir ekki lengi að jafna

Tómas Orri Róbertsson

Dóri í marki KR inga nær ekki að grípa skot Kjartans sem fór þó beint á hann.

Gestirnir fá í kjölfarið horn og eftir smá dans inni í teig dettur boltinn fyrir fæturnar á Tómasi sem gerir virkilega vel og kemur boltanum yfir á vinstri og þrumar honum í netið óverjandi fyrir Dóra.
KR
6. mín
Klaufagangur í vörn FH

Aron Sigurðarson (stoðsending: Luke Morgan Conrad Rae)

Róbert Hugi af óskiljanlegum ástæðum ákveður að tvöfalda á Amin og skilur sinn mann Luke eftir einan.

Amin sendir á hann og Luke sendir út í teig á Aron sem tekur eina gabbhreyfingu og rennur honum í autt markið.
4. mín
Gott færi hjá Eiði
Aukaspyrna dæmd rétt fyrir ofan miðju og Aron Sig tekur hana og sendir inn í teig og beint á kollinn á Eiði.

Skallinn af nokkuð löngu færi og þægilega yfir.
1. mín
Úlfur Ágúst í dauðfæri
Ótrúleg byrjun en KR vörnin gleymir Úlfi sem er slopinn í gegn alveg einn á móti Halldóri.

En vel varið hjá Dóra sem ver hann með löppunum, þarna hefði Úlfur geta komið FH í 1-0.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir sem sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Styttist í fjörið
Liðin eru að labba inn á völlinn

Það er blautt kalt og hvasst.
Fyrir leik
Skýlin færð vegna veðurs
Það var í þessu töluðu orðum verið að færa varamannaskýlin vegna veðurs, það er athyglisvert.

Mynd:
Vindurinn er ekki svona rólegur í vesturbænum í kvöld

Að leik loknum og logni verður skýlin færð aftur á sinn stað hinum megin á vellinum. En núna eru þau sömu megin og áhorfendur.
Fyrir leik
Sigurður Breki er í hóp í fyrsta skipti á tímabilinu
Stórar fréttir fyrir KR Sigurður Breki Kárason er í hóp í fyrsta skipti á núverandi móti, en hann er búinn að glíma við höfuðmeiðsli.

Eins og er sagt stundum, þeir ríku verða ríkari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miklar væntingar eru gerðar til Sigurðs Breka þrátt fyrir ungan aldur
Fyrir leik
KR hefur skorað 14 mörk í þremur leikjum
Fyrir leik
Glugginn lokar núna á mivðikudaginn
Af þessum tveimur liðum verður að teljast líklegt að FH leggi í meira vinnu en KR við að styrkja hópinn.

Stundum getur vinnan tengst fjölskylduböndum en hér er athyglisverð frétt um Jóhannes Kristinn Bjarnason frænda Jóhannesar Karls Guðjónssonar.

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
Óskar gerir engar breytingar á sínu liði á meðan Jóhannes Karl gerir hvorki meira né minna en fjórar breytingar hjá FH

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Úlfur Ágúst er í byrjunarliðinu


Fyrir leik
FH eftir þrjár umferðir
Eins gaman og tímabilið er að byrja hjá KR þá er alls ekki óviðeigandi að segja að tímabilið er að byrja leiðinlega í Hafnarfirðinum. FH er í ellefta sæti með aðeins eitt stig.

Vissulega eru margar breytingar á hópnum og ber þar helst að nefna Böðvar Böðvarsson sem fór til ÍA, Björn Daníel Sverrisson sem hætti og Sigurð Bjart Hallsson sem var seldur til Spánar fyrir tímabilið.

Þetta voru allt lykilmenn í liðinu í fyrra og þar að auki er nýr þjálfari í brúnni en fyrrum atvinnumaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson er nýr þjálfari liðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl spilaði 34 landsliðsleiki á sínum glæsta ferli

Í fyrstu umferð gerði FH 1-1 jafntefli í Eyjum og náðu að bjarga stigi á 80. mínútu með marki frá Kára Kristjánssyni sem kom til liðsins frá Þrótti fyrir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Kristjánsson hefur verið einn besti leikmaður Lengjudeildarinnar undanfarin ár

Í annari umferð tapaði FH 2-3 á móti Stjörnunni á Samsungvellinum og í síðustu umferð tapaði FH 0-3 á móti Val á Hlíðarenda.

Ekki er nú verkefnið auðveldara í 4. umferð þegar liðið mætir á Meistarvöll.

En það er alls ekki öll von úti enn og þá sérstaklega í ljósi þess að liðið byrjar tímabilið með fjórum útileikjum í röð á meðan grasið grænkar á Kaplakrika.

En FH liðið var þekkt fyrir að spila sinn langbesta fótbolta í fyrra á alvöru grasi.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nýleg mynd af grasinu á Kaplakrika
Fyrir leik
KR eftir þrjár umferðir
KR er einfaldlega heitasta liðið í deildinni og er hápressuboltinn að skila sér á þessu ári í glimmrandi sóknarbolta. Hins vegar eru KRingar líka að fá á sig mörk og þá sérstaklega í lok leikja.

Í fyrstu umferð sigraði KR nýliða Keflavíkur 3-2 með sigurmarki frá hinum bráðefnilega Alexander Rafni Pálmassyni á 88. mínútu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Alexander Rafn fer til Danmerkur í sumar

Í annarri umferð komu aftur nýliðar á Meistaravelli þegar KR sigraði Þór 5-2.

Í þriðju umferð gerði KR góða ferð til Eyja og unnu 6-2 og skoraði fyrirliði liðsins Aron Sigurðarson tvennu.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Sigurðarson er einn allra besti leikmaður deildarinnar
Fyrir leik
Spámaður vikunnar
Það er enginn annar en Stefán Þór Pálsson leikmaður ÍR sem er spámaður vikunnar. Sá átti leik í fyrstu umferð lengjudeildarinnar og kom að fjórum mörkum þegar ÍR sigraði Aftureldingu 7-4.

Og spáin hans er í djarfari kantinum en hann spáir 7-4 sigri KR:

KR 7-4 FH
Skemmtilegasti leikur umferðarinnar. Minnir á leik sem var spilaður í Mosfellsbæ nýlega.

Fyrir leik
Spáin fyrir mót FH
FH endaði í efra hluta í fyrra eftir skiptingu en það voru talsverðar breytingar á liðinu og spáin gerði ráð fyrir einu skrefi afturábak.

Hins vegar er byrjunin í ár undir pari og liðið situr í 11. sæti með aðeins eitt stig eftir 3 leiki.

Fyrir leik
Spáin fyrir mót KR
Flesta grunaði að KR yrði betra en í fyrra en gengið í ár hefur svo sannarlega komið á óvart og KR situr eitt á toppnum og ekkert lið hefur skorað eins mikið af mörkum síðan árið 1959.



Fyrir leik
Dómgæslan í kvöld
Dómarinn í kvöld verður Arnar Þór Stefánsson.
Þórður Arnar Árnason og Jovan Subic eru aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Pétur Guðmundsson á meðan Viðar Helgason er eftirlitsdómari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kæru áhorfendur.

Verið velkomin í beina textalýsingu frá Meistaravöllum þegar KR fær FH í heimsókn 4.umferð Bestu deildar karla.

Leikurinn hefst á slaginu klukkan 18.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


mánudagur 27. apríl

Besta karla
17:30 Fram-ÍBV (Lambhagavöllurinn)
18:00 KR-FH (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Þór (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-ÍA (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.