PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Lengjudeild karla
HK
LL 4
1
Grótta
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 1
1
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 2
0
Njarðvík
Lengjudeild karla
Vestri
LL 1
1
Grindavík
Besta kvenna
Valur
LL 2
1
Grind/Njarð
Besta kvenna
Þór/KA
LL 1
1
FH
Besta kvenna
Fram
LL 3
4
ÍBV
Þróttur R.
2
0
Njarðvík
Örn Bragi Hinriksson '60 1-0
Hlynur Þórhallsson '73 2-0
25.04.2026  -  14:00
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Sigurður Egill Lárusson
Byrjunarlið:
12. Aron Dagur Birnuson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
3. Stefán Þórður Stefánsson
4. Njörður Þórhallsson
8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
10. Sigurður Egill Lárusson
21. Brynjar Gautur Harðarson
25. Hlynur Þórhallsson ('89)
27. Örn Bragi Hinriksson ('72)
32. Aron Snær Ingason ('85)
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson ('85)
6. Jakob Ocares Kristjánsson ('89)
7. Tryggvi Snær Geirsson ('72)
19. Leó Hrafn Elmarsson
20. Viktor Steinarsson
24. Daníel Karl Þrastarson

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Valgeir Einarsson Mantyla
Hans Sævar Sævarsson
Alexander Máni Curtis
Amir Mehica
Orri Sigurjónsson
Björn Sigurbjörnsson

Gul spjöld:
Sigurður Egill Lárusson ('55)

Rauð spjöld:
@ Bogi Sigurbjörnsson
Skýrslan: Þróttur byrjar á þremur stigum gegn sterkum Njarðvíkingum
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikurinn var alveg rosalega rólegur og lítið að gerast, maður bjóst nú við aðeins meiri skemmtun miðað við hvað þetta eru sterk lið en seinni hálfleikurinn var mun betri. Þróttarar byrjuðu seinni betur þangað til að þeir skora fyrsta mark, en Njarðvíkingar stigu aðeins upp eftir það, svo eftir seinna markið dró svolítið úr þessu.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Egill Lárusson
Það var mikið talað um fyrir tímabil að Sigurður Egill væri alltof góður í þessa deild og á köflum sást það klárlega. Hann var mikið að flakka á milli kanta en var reyndar með nokkra slæma bolta snemma í leiknum. En þegar það leið á leikinn varð hann hættulegri og hann gerði frábærlega í fyrra markinu , og uppskar þar stoðsendingu.
2. Tryggvi Snær Geirsson
Tryggvi kom nú frekar seint inn á en hann kom strax inn á með áhrif, hann var mikið á boltanum og var hættulegur og hann tók síðan aukaspyrnuna sem leiddi að seinna marki Þróttara.
Atvikið
Það var nú ekkert magnað atvik í dag, seinna mark Þróttara var nú samt mjög huggulegt mark úr föstu leikatriði, Tryggvi með mjög góðan bolta á fjær á Aron Snæ sem skallar hann á Hlyn sem leggst eiginlega á boltann til að koma honum inn.
Hvað þýða úrslitin?
Þessi úrslit þýða svo sem ekki mikið í fyrstu umferð, þetta eru tvö spennandi lið og þeim báðum spáð í toppbaráttunni, Þróttarar klárlega sáttir með að ná í þrjá punkta en þetta er enginn heimsendir fyrir Njarðvíkinga.
Vondur dagur
Mér fannst nú enginn hræðilegur í þessum leik, Jóhann Ægir var í smá brasi snemma leiks eins og hann væri stressaður, en datt síðan í meiri gír þegar leið á. Það er búið að vera mikið ritað og rætt um Leandro Fernandes fyrir tímabil en mér fannst hann hanga alltof mikið á boltanum í dag, hélt mikið í hann með bakið í varnarmann og var ekki mikið að horfa fram á við.
Dómarinn - 6
Mér fannst dómarinn fínn í dag, leyfði leiknum að ganga vel og lítið hægt að kvarta. Það kom reyndar upp atvik þegar Sigurjón Már lítur út fyrir að toga Vilhjálm Kaldal niður þegar hann er að sleppa einn á móti markmanni og vildu Þróttarar fá aukaspyrnu og pottþétt rautt í leiðinni, væri áhugavert að sjá þetta aftur.
Byrjunarlið:
1. Guy Smit (m)
3. Sigurjón Már Markússon
5. Arnar Helgi Magnússon ('72)
6. Arnleifur Hjörleifsson
7. Bragi Karl Bjarkason
8. Leandro Fernandes
10. Valdimar Jóhannsson ('40)
14. Aron Einarsson
22. Stefán Gísli Stefánsson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson (f)
27. Jóhann Ægir Arnarsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Daði Fannar Reinhardsson (m)
4. Viðar Már Ragnarsson
16. Hrafn Guðmundsson
17. Símon Logi Thasaphong ('40)
29. Haraldur Smári Ingason
33. Haraldur Ágúst Brynjarsson
77. Guðmundur Magnússon ('72)

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Jaizkibel Roa Argote
N/A
Halldór Geir Heiðarsson

Gul spjöld:
Aron Einarsson ('59)
Sigurjón Már Markússon ('78)
Guðmundur Magnússon ('90)

Rauð spjöld: