Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Afturelding
0
0
Fylkir
31.05.2026  -  19:15
Malbikstöðin að Varmá
Lengjudeild karla
Dómari: Pétur Guðmundsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Dómaratríóið Pétur Guðmundsson er með flautuna í kvöld, Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú verða með flöggin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lærisveinar Heimis á toppnum Í síðustu umferð unnu Fylkir á móti Leikni 3-0 á Tekk vellinum. Gummi Tyrfings með tvö mörk og Guðfinnur Leó með eitt.

Gummi Tyrfings meiddist í byrjun móts, en er núna búin að skora þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn gegn Leikni og þá var spurt um leikinn í dag.

"Næst er það erfiður leikur á móti Aftureldingu í Mosfellsbæ og þeir hafa verið að spila vel upp á síðkastið þannig að við fögnum aðeins í kvöld og byrjum að undirbúa okkur á morgun."


Fyrir leik
Maggi vill sjá stemmingu á leiknum Í síðustu umferð fór Afturelding til Grindavíkur og unnu 1-3 úti sigur. Holtan, Aron Elí og Óðinn Bjarka með mörkin þrjú fyrir Aftureldingu. Eftir leik ræddi þjálfari liðsins Magnús Már Einarsson við Fotbolta.net um leikinn gegn Fylki.

„Ég geri ákall til allra Mosfellinga að fjölmenna, ég vill fá sömu stemningu og hefur verið í bestu leikjunum undanfarin ár, það hjálpar þeim gríðarlega í baráttunni. Ég hvet alla til að taka frá sunnudagskvöldið og mæta og styðja strákana."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elmar Kári Cogic, leikmaður Aftureldingar er búin að spila vel á tímabilinu. Elmar er með 4 mörk og 2 stoðsendingar, tvö af mörkum Elmars komu beint úr aukaspyrnu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elmar spilaði ekki gegn Grindavík þrátt fyrir að hann átti að byrja.

„Hann fann eitthvað smá til og við ákváðum að taka enga sénsa hérna á grasinu en ég er vongóður um að hann verði klár í næsta leik."


Fyrir leik
Stórleikur umferðarinnar! Það er komið að sjöundu umferð Lengjudeildarinnar.

Afturelding sem situr í öðru sæti tekur á móti Fylki sem er í fyrsta sætinu, leikurinn verður spilaður á heimavelli Aftureldingar í Mosfellsbæ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Umferðin

sunnudagurinn 31. maí
14:00 ÍR - Vestri
14:00 Völsungur - Ægir
14:00 Njarðvík - Grótta
17:00 Leiknir R. - HK
19:15 Afturelding - Fylkir

mánudagurinn 1. júní
19:15 Þróttur R. - Grindavík
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: