Maggi: Ákall á Mosfellinga


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding sigraði Grindavík 1 - 3 á Stakkavíkurvelli í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Magnús Má Einarsson, þjálfara Aftureldingar, eftir leikinn.
„Fyrri hálfleikurinn var ekki góður hjá okkur og við tókum okkur taki í seinni hálfleik og spiluðum betur, þó að tvö mörk hafi komið í fyrri hálfleik var það alls ekki góður hálfleikur hjá okkur. Við þurfum að gera betur en þetta í komandi leikjum og bara heppnir að vera með þetta forskot í hálfleik. Seinni hálfleikurinn fannst mér vera betri og var sáttur með varnarleikinn þannig ég var bara mjög ánægður með strákana."
Elmar Kári leikmaður Aftureldingar átti að byrja en tók ekki þátt í leiknum.
„Hann fann eitthvað smá til og við ákváðum að taka enga sénsa hérna á grasinu en ég er vongóður um að hann verði klár í næsta leik."
Næsti leikur Aftureldingar er á sunnudaginn gegn Fylki sem sitja í toppsætinu eftir sex umferðir.
„Ég geri ákall til allra Mosfellinga að fjölmenna, ég vill fá sömu stemningu og hefur verið í bestu leikjunum undanfarin ár, það hjálpar þeim gríðarlega í baráttunni. Ég hvet alla til að taka frá sunnudagskvöldið og mæta og styðja strákana."
Lengjudeild karla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 22 | +32 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 22 | +25 | 43 |
| 3 | Fylkir | 22 | +13 | 40 |
| 4 | HK | 22 | +12 | 38 |
| 5 | Njarðvík | 22 | +9 | 38 |
| 6 | Leiknir R. | 22 | +1 | 28 |
| 7 | ÍR | 22 | -6 | 28 |
| 8 | Grótta | 22 | -7 | 27 |
| 9 | Vestri | 22 | -13 | 27 |
| 10 | Völsungur | 22 | -12 | 26 |
| 11 | Grindavík | 22 | -10 | 25 |
| 12 | Ægir | 22 | -44 | 9 |
