Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Besta karla
ÍBV
17:00 0
0
Keflavík
Besta karla
Þór
17:00 0
0
Stjarnan
Lengjudeild karla
Leiknir R.
17:00 0
0
HK
Besta karla
KR
17:00 0
0
KA
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 2
3
Ægir
Lengjudeild karla
Njarðvík
90' 1
2
Grótta
Lengjudeild karla
ÍR
LL 0
1
Vestri
Vináttulandsleikur
Japan
LL 1
0
Ísland
Þór
0
0
Stjarnan
31.05.2026  -  17:00
VÍS völlurinn
Besta karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Fyrir Gedda Þórsarar hafa sett í sölu sérstaka treyju til styrktar Gedda Ara. Geddi er harður Þórsari sem hefur sinnt öflugu félagsstarfi. Hann greindist með bráða hvítblæði í upphafi mánaðar og mun allur ágóði sölunnar renna til hans og hans fjölskyldu.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Stuð hjá Þórsurum í gær Þórsarar héldur sitt árlega herrakvöld í gær og var góð stemning í íþróttasalnum í Síðuskóla.

Þórsarar eru öflugir í því að safna í góðan sjóð á herrakvöldum sínum og í gær fengust t.a.m. sjö milljónir króna fyrir lúxusferð á leik með Alberti Guðmundssyni.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Starfið undir í dag? Mikil umræða hefur verið um framtíð Jökuls Elísabetarsonar, þjálfara Stjörnunnar, út af slæmu gengi liðsins. Einhverjir hafa horft í það að eftir leikinn í dag tekur við landsleikjahlé og það sé mögulegur tímapunktur til að gera breytingar fari illa hjá Garðbæingum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Tvö af köldustu liðum deildarinnar Liðin sem mætast á VÍS vellinum í dag sitja í 9. og 10. sæti Bestu deildarinnar. Stjarnan er með stigi meira og hefur spilað einum leik meira.

Þór er án sigurs í fimm leikjum í röð og Stjarnan hefur einungis fengið eitt stig úr síðustu sjö deildarleikjum sínum. KA er í sætinu fyrir ofan með tíu stig, þremur stigum meira en Stjarnan. Liðin í 11. og 12. sæti eru svo bæði með tvö stig.

Þór tapaði 1-0 í Keflavík í síðasta leik fyrir níu dögum síðan en Stjarnan tapaði gegn Víkingi 1-3 á þriðjudag.
Fyrir leik
Þriðja liðið Twana Khalid Ahmed er með flautuna í dag og honum til aðstoðar eru þeir Kristján Már Ólafs, Jovan Subic og Arnar Ingi Ingvarsson er fjórði dómari. Magnús Sigurður Sigurólason er eftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spáir öruggum útisigri Elmar Kári, leikmaður Aftureldingar, er spámaður umferðarinnar.

Hann spáir öruggum útisigri í dag.

Þór 0 - 3 Stjarnan
Stjörnumenn sýna úr hverju þeir eru gerðir eftir brösulega byrjun og vinna þetta sannfærandi 0-3.

Fyrir leik
Vekomin í Þorpið! Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik Þórs og Stjörnunnar í 9. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og fer fram á VÍS vellinum á Akureyri.
Mynd: Ármann Hinrik
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: