Fotbolti.net
Einar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
Völsungur
Völsungur
2 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 114' Bragi Karl Bjarkason (víti)Arnar Pálmi Kristjánsson 58'1 - 1Elfar Árni Aðalsteinsson 88'2 - 1
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Leik lokið!
Leik lokið með frábærum sigri heimamanna og þeirra fyrsta á tímabilinu. Vegna tæknilegra örðugleika náðist ekkert að uppfæra síðasta korter leiksins. Njarðvíkingar voru mun betri í fyrri hálfleik en mun meira jafnræði var í þeim seinni. Elfar Árni skoraði sigurmarkið þegar hann stýrði sendingu Gests glæsilega upp í þaknetið. Þvílíkur baráttu og karakter sigur hjá Völsungi!
Völsungur
88. mín
MAAAARK!

Elfar Árni Aðalsteinsson

Njarðvík
77. mín
InnLeandro Fernandes
ÚtBjörn Aron Björnsson
Njarðvík
76. mín
Gult spjald

Sigurjón Már Markússon

75. mín
Jochum með svaka vörslu
Sigurjón á góðan sprett upp vinstri kantinn og leggur boltann út á Valdimar sem á gott skot sem Jochum ver frábærlega.
71. mín
Darraðadans! Völsungar eiga hornspyrnu sem Arnar tekur og við tekur mikill darraðadans en Njarðvíkingar ná að bægja hættunni frá.
69. mín
Njarðvíkingar nálægt því. Arnar Helgi með fína fyrirgjöf á Omar Diouck sem skallar rétt framhjá.
66. mín
Enn ein hornspyrna Njarðvíkinga. Í þetta skiptið er hún stórhættuleg en Elfar Árni nær að skalla frá.
Njarðvík
64. mín
InnOumar Diouck
ÚtHrafn Guðmundsson
Völsungur
60. mín
InnAndri V. Bergmann Steingrímsson
ÚtÝmir Hjálmsson
Völsungur
60. mín
InnGestur Aron Sörensson
ÚtAron Bjarki Kristjánsson
Völsungur
58. mín
Völsungar jafna!

Arnar Pálmi Kristjánsson (stoðsending: Elmar Örn Guðmundsson)

Elmar á fyrirgjöf frá hægri sem fer í gegnum allan pakkann og berst á Arnar Pálma á víteigshorninu vinstra megin. Fyrirliðinn leggur hann fyrir sig og neglir boltanum niður í hornið fjær!
54. mín
Enn ein hornspyrna Njarðvíkur. Þær eru orðnar 10 talsins segir mér tölfræðigúru hér í stúkunni. Kemur ekkert úr henni þó.
51. mín
Njarðvíkingar eru byrjaðir aftur að fá hornspyrnur. Þær eru orðnar helvíti margar í þessum leik. En sem áður ná þeir ekki að skora úr þeim.
49. mín
Heimamenn byrja seinni hálfleikinn ágætlega. Elfar og Arnar spila vel sín á milli og Arnar vinnur hornspyrnu sem þó ekkert kemur úr.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur er hafinn. Náði að kíkja á atvikið milli Elfars og Eiðs í háfleik og Eiður traðkar á bringunni á Elfari. Alveg ótrúlegt að Eiður hafi sloppið með þetta.
45. mín
Hálfleikur
Völsungar vildu fá víti hér í blárestina en dómarinn flautar til hálfleiks. Njarðvíkingar verið heilt yfir miklu betri en hér undir lok hálfleiks kviknaði eitthvað lífsmark með heimamönnum.
Njarðvík
45. mín
Gult spjald

Eiður Aron Sigurbjörnsson

Eiður fær gult fyrir að sparka í Elfar eftir að hafa brotið á honum. Ótrúlegt að þetta hafi ekki verið rautt! Allt orðið brjálað eftir þetta.
41. mín
Arnar Pálmi missir boltann á hættulegum stað en nær að redda sér með tæklingu en boltinn berst á Valdimar sem er í góðri stöðu rétt utan teigs en Jochum ver vel í horn. Eiður Aron skallar svo rétt framhjá eftir hornspyrnuna.
Völsungur
36. mín
InnModoumatarr Mbye
ÚtDavíð Leó Lund
Taktísk breyting hjá Borja þjálfara.
34. mín
Enn eru Njarðvíkingar að skapa mikinn usla eftir hornspyrnu en hafa ótrúlegt en satt ekki enn náð að skora eftir slíka.
27. mín
Nú er Bragi nálægt því að bæta við. Á gott skot utan teigs en aftur ver Jochum vel í horn. Boltinn speglast svo í slánna eftir hornspyrnuna. Tímaspursmál hvenær gestirnir bæta við
25. mín
Valdimar svo nálægt því að tvöfalda forystuna. Leikur á varnarmann úti vinstra megin og köttar út og á gott skot sem stefnir í fjærhornið en Jochum ver vel.
24. mín
Ágætis séns hjá heimamönnum. Ýmir dansar í teignum og leggur boltann svo út á Elfar sem lætur vaða en framhjá fór boltinn.
Völsungur
18. mín
Gult spjald

Elfar Árni Aðalsteinsson

Ja hérna. Heimamenn eiga hornspyrnu, áður en hún er tekin slær Guy Smit Tómas en dómarinn sá það ekki. Guy Smit grípur svo spyrnuna og hleypur á Elfar Árna og hendir sér niður og Elfar fær gult. Merkilegt.
15. mín
Er í smá veseni með að breyta og bæta við færslur en þegar vítið var dæmt slapp Valdimar í gegn og Indriði braut á honum. Pjúra víti.
Njarðvík
14. mín
Mark úr víti!

Bragi Karl Bjarkason

Bragi fer á punktinn og skorar af miklu öryggi! Njarðvíkingar leiða og sanngjarnt er það.
12. mín
VÍTI Njarðvík
10. mín
Aron Bjarki missir boltann fyrir framan eigin teig, Bragi Karl fær boltan í fínni stöðu en skýtur rétt framhjá. Þarna hefðu gestirnir átt að gera betur.
5. mín
Fyrsta sókn heimamanna er álitleg. Arnar Pálmi á fína fyrirgjöf frá vinstri en Elmar nær ekki til boltans.
3. mín
Njarðvíkingar eru mikið meira með boltann hér í upphafi og hafa reynt þrisvar sendingar í gegnum vörn heimamanna en alltaf verið rangstæðir.
1. mín
Leikur hafinn
Stefán dómari flautar í flautu sínu og leikurinn er hafinn.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
Byrjunarliðin eru komin inn og má sjá þau hér til hliðar.

Það er ævintýralega gott veður á Húsavík í dag, enda eins og Gunnar Sigurður Jósteinsson sagði við Ólaf Ragnar Grímsson, þáverandi forseta, um árið: "Það er alltaf sól á Húsavík"
Fyrir leik
Gengi liðana
Eftir tvö jafntefli hjá Völsungi í fyrstu tveimur leikjunum hefur hvorki gengið né rekið. Þeir grænu hafa tapað 6 leikjum í röð og sitja sem fastast á botni deildarinnar.

Gengi Njarðvíkinga hefur verið upp og niður. Liðið situr í 8. sæti deildarinnar með 11 stig. Hafa unnið 3 leiki, 2 jafntefli og 3 töp. Njarðvík rústaði ÍR 5-1 í síðustu umferð en hafa hins vegar ekki náð að vinna tvo leiki í röð á tímabilinu. Spurning hvort að það gerist hér í dag?
Fyrir leik
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá GPG-vellinum á Húsavík. Hér í dag fer fram viðureign Völsungs og Njarðvíkur í 9. umferð Lengjudeildar karla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.