Leik lokið!
Frábærum leik lokið!
120. mín
+2
Tveimur mínútum bætt við
118. mín
Kári lokar þessu!
Kári Sigfússon
Komst einn inn fyrir vörn Gróttu þegar þeir voru allir komnir fram, komst framhjá Guðmundi Rafni og lagði boltann í autt netið. Snyrtilega gert og tryggir Fylkismenn áfram í undanúrslitin117. mín
3 mínútur eftir
Fáum við enn meiri dramatík í þetta?
117. mín
Fyrir brot
Guðmundur Tyrfingsson
116. mín
Gult spjald
Axel Sigurðarson
112. mín
Fylkismenn taka forustuna aftur!
Orri Sveinn Segatta
Fylkismenn fá aukaspyrnu á vítateigshorninu. Kári sendir boltann fyrir markið og þar er Orri Sveinn réttur maður á réttum stað og neglir boltanum í þaknetið111. mín
Fylkismenn aftur!
Kári Sigfússon var skyndilega kominn fyrir aftan alla vörn Gróttu, tók sprettinn og skýtur að marki en Guðmundur Rafn, eina ferðina enn, varði vel.
109. mín
Dauðafæri!
Máni Austmann fær boltann á vítapunktinum og skýtur beint á Guðmund.
109. mín
Fylkismenn nálægt því að taka forustuna á nýjan leik
Frábær fyrirgjöf sem Aron Snær skallar en boltinn rennur meðfram marklínunni áður en Gróttumenn hreinsa frá
107. mín
Þvílíkar sviptingar í þessum leik!
Gróttumenn jafna!
Caden Robert McLagan
Gróttumenn fá tvö horn í röð. Upp úr því seinna berst boltinn til Caden McLagan sem bætir upp fyrir mistökin og leggur boltann í netið! Allt jafnt!Þvílíkar sviptingar í þessum leik!
106. mín
Síðasta korterið
105. mín
Hálfleikur framlengingar
105. mín
+2
Máni Austmann með tvö skot inni í teig. Fyrra ver Guðmundur, beint til hans aftur, því næst verja Gróttumenn á línu og senda boltann í horn.
Upp úr horninu fá Fylkismenn annað dauðafæri en aftur vörðu Gróttumenn á línu
Upp úr horninu fá Fylkismenn annað dauðafæri en aftur vörðu Gróttumenn á línu
105. mín
+2
Tveimur bætt við
105. mín
InnElmar Freyr Hauksson
ÚtMattías Kjeld
Tvöföld breyting Gróttu
Síðasta skipting þeirra í dag
105. mín
InnBjörgvin Stefánsson
ÚtEmil Skúli Einarsson
104. mín
Gult spjald
Viktor Orri Guðmundsson
102. mín
Fylkismenn leiða!
Aron Snær Guðbjörnsson
Þetta er ekkert nema sanngjarnt! Kári Sigfússon bætir upp fyrir klúðrið og á hárnákvæma sendingu fyrir markið, beint á ennið á Aroni Snæ sem skallar boltann þéttingsfast í markhornið!99. mín
Kári Sigfússon gerðu betur!
Gróttumenn komast hvorki lönd né strönd og Fylkismenn éta þá ítrekað á eigin vallarhelmingi. Í einu slíku skipti vinna þeir boltann, boltinn berst á Kára Sigfússon sem er aleinn inni á teig og skýtur hann boltanum hátt yfir.
98. mín
Fylkir!
Þvílíkt færi. Kom langur bolti upp allan völlinn sem Gróttumenn láta vera. Boltinn berst til Theodórs sem á fast skot sem Guðmundur verí horn. Ekkert kom úr horninu
97. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtBirkir Eyþórsson
Síðasta skipting Fylkismanna
94. mín
Fylkismenn hefja framlenginguna betur
Eru mun aðgangsharðari hér í upphafi
91. mín
Fylkismenn hefja leik í framlengingu
90. mín
Það verður framlengt!
Smá tæknilegir örðugleikar hér á lokamínútum venjulegs leiktíma.
Fylkismenn vildu fá víti þegar þeir töldu á sér brotið innan teigs. Strax í kjölfarið af því áttu þeir frábært skot sem Guðmundur Rafn varði glæsilega í stöng og út. Skömmu síðar flautar Jóhann til leiksloka og við verðum því að framlengja hér!
Þvílík skemmtun sem boðið er uppá hér!
Fylkismenn vildu fá víti þegar þeir töldu á sér brotið innan teigs. Strax í kjölfarið af því áttu þeir frábært skot sem Guðmundur Rafn varði glæsilega í stöng og út. Skömmu síðar flautar Jóhann til leiksloka og við verðum því að framlengja hér!
Þvílík skemmtun sem boðið er uppá hér!
90. mín
Fylkismenn jafna!
Caden Robert McLagan (sjm)
Ég var að fara að skrifa að Fylkismenn að ekkert benti til þess að þeir væru að fara að skora en þá kemur Númi með fyrirgjöf fyrir markið sem varnarmaður Gróttu, að mér sýndist Caden McLagan sem setur boltann í eigið mark.85. mín
Fyrir brot hátt á vellinum
Aron Snær Guðbjörnsson
84. mín
InnViktor Orri Guðmundsson
ÚtKristófer Dan Þórðarson
Síðasta skipting Gróttu
Í venjulegum leiktíma
83. mín
Kristófer Dan í færi hinu megin
Fær stunguna inn fyrir vörn Fylkis en Ólafur ver vel í horn
81. mín
Dauðafæri Fylkir!
Aron Snær gerir sig gildandi strax með fyrstu snertingu! Góð fyrirgjöf inn á markteig og Aron rís upp en skallar framhjá. Jóhann dómari hefur séð snertingu varnarmanns Gróttu og dæmir horn
80. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtGuðfinnur Þór Leósson
Síðasta skipting Fylkis
Í venjulegum leiktíma hið minnsta
78. mín
InnJónatan Ari Bragason
ÚtBjörgvin Brimi Andrésson
Tvöföld skipting Gróttu
78. mín
InnPatrik Orri Pétursson
ÚtNökkvi Már Nökkvason
76. mín
DAUÐAFÆRI GRÓTTU
Sókn sem hófst á innkasti við miðlínu. Axel Sigurðarson kemur boltanum upp að endalínu og sendir fyir. Þar er Mattías Kjeld með boltann og Ólafur markvörður fer á móti honum. Mattías leggur boltann á Kristófer sem skýtur boltanum yfir. Þarna hefðu Gróttumenn átt að gera betur.
74. mín
InnGuðmundur Tyrfingsson
ÚtEyþór Aron Wöhler
Önnur tvöföld skipting
74. mín
InnMáni Austmann Hilmarsson
ÚtDagur Traustason
73. mín
Fínn sprettur Theodórs
Fær boltann út á kantinum, keyrir á vörn Gróttu og vinnur horn.
70. mín
InnTumi Fannar Gunnarsson
ÚtBjarki Steinsen Arnarsson
Tvöföld breyting Fylkismanna
70. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtArnór Breki Ásþórsson
67. mín
InnAxel Sigurðarson
ÚtAndri Freyr Jónasson
Fyrsta skipting Gróttu í dag
65. mín
Sláin!
Fylkismenn eiga skalla í slá! Dagur Traustason stekkur manna hæst í teignum og á góðan skalla í slánna. Hann tekur frákastið sjálfur og skallar aftur að marki en laust var það og Guðmundur grípur.
64. mín
Gult spjald
Björgvin Brimi Andrésson
Fyrir að láta boltann ekki vera í kjölfar þess að vera dæmdur rangstæður63. mín
Fylkismenn vilja víti!
En Jóhann dómari telur að Gróttumenn hafi tæklað boltann fyrst og gefur hornspyrnu
61. mín
Fylkismenn sækja
.. og vinna hornspyrnu. Spyrnan fer inn á markteig og grípur Guðmundur hann og kemur boltanum hratt í leik.
60. mín
453 áhorfendur á Tekk-Vellinum í dag
57. mín
Gult
Tristan Freyr Ingólfsson
Fyrir peysutog55. mín
Björgvin Brimi í góðu færi
Björgvin Brimi fékk góða stungusendingu og gerði vel allt fram að skotinu sem var rétt framhjá
52. mín
Fyrirliðinn fær gult spjald
Orri Sveinn Segatta
Líklega fyrir mótmæli í kjölfar aukaspyrnu sem Gróttumenn fengu50. mín
Fylkismenn beittari
Líkt og í fyrri hálfleiknum eru Fylkismenn meira með boltann en Gróttumenn sitja og reyna að beita skyndisóknum.
46. mín
Gróttumenn sparka seinni hálfleiknum af stað
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur
Þetta var það síðasta sem gerðist hér í þessum fyrri hálfleik. Tökum okkur korter
45. mín
Glæsilegt mark!
MAAAARK
Tristan Freyr Ingólfsson
Það er Tristan Freyr sem skorar fyrsta markið hér í dag! Það kemur langur bolti frá Guðmundi Rafni markverði út á vinstri kantinn þar sem Tristan tekur boltann, tekur menn á og skýtur rétt fyrir utan teig framhjá Ólafi í markinu.Glæsilegt mark!
45. mín
+2
Tvær mínútur í viðbót í dag
44. mín
Björgvin Brimi með skot
Fékk boltann á D-boganum en skýtur boltanum hátt yfir.
40. mín
Flott fyrirgjöf Kára Sigfússonar inn á teig er skölluð aftur fyrir endamörk.
Það hefur aðeins lækkað tempóið í þessu, enda var það í hæstu hæðum hérna fyrstu 30 mínúturnar.
Það hefur aðeins lækkað tempóið í þessu, enda var það í hæstu hæðum hérna fyrstu 30 mínúturnar.
35. mín
Guðmundur Rafn liggur
Eftir góða fyrirgjöf frá hægri rekast þeir Guðmundur Rafn og Eyþór Wöhler saman og liggur Guðmundur eftir.
Guðmundur er staðinn upp eftir að hafa fengið aðhlynningu og við höldum áfram með leikinn
Guðmundur er staðinn upp eftir að hafa fengið aðhlynningu og við höldum áfram með leikinn
31. mín
Gróttumenn aðeins að minna á sig
Þeir eru að færa sig aðeins ofar á völlinn og eru aðeins að lyfta sér upp úr skotgröfunum
29. mín
Gult spjald
Arnór Breki Ásþórsson
23. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað
Fylkismenn eiga aukaspyrnu um 10 metrum fyrir utan teig. Arnór Breki stendur yfir boltanum.
En það var Kári Sigfússon sem tók spyrnuna en Guðmundur Rafn var vandanum vaxinn og varði vel.
En það var Kári Sigfússon sem tók spyrnuna en Guðmundur Rafn var vandanum vaxinn og varði vel.
21. mín
Enn pressa Fylkismenn
Það skilar sér í því að þeir fá hornspyrnu.
Arnór Breki tekur spyrnuna, boltinn drepst á markteig og verður mikill darraðadans þar sem einir 10 leikmenn stóðu í kringum boltann og reyndu að ná til hans. Hver það var sem gerði það svo sá ég ekki en skotið var framhjá.
Arnór Breki tekur spyrnuna, boltinn drepst á markteig og verður mikill darraðadans þar sem einir 10 leikmenn stóðu í kringum boltann og reyndu að ná til hans. Hver það var sem gerði það svo sá ég ekki en skotið var framhjá.
14. mín
Skyndisókn Fylkis
Thedór vinnur boltann á miðjunni, tekur á rás upp hægri kantinn og setur boltann fyrir á Kára Sigfússon sem hittir boltann ekki nógu vel og skotið slakt. Gott færi og Kári hefði átt að gera betur.
12. mín
Fylkismenn aðeins að taka yfir
Það er meiri ákefð í Fylkismönnunum þessar síðustu mínútur eftir að Gróttumenn byrjuðu eilítið betur.
7. mín
Fyrsta skot Fylkis
Theodór Ingi skeiðar upp allan völlinn á miklum hraða og boxanna á milli og endar á að eiga hörkuskot á nærstöng sem Guðmundur Rafn ver vel í horn!
Þetta fer skemmtilega af stað!
Þetta fer skemmtilega af stað!
5. mín
Fyrsta hornið er Gróttumanna
En lítil hætta skapaðist út frá henni. Boltinn skallaður út í teig og kom laflaust skot framhjá í kjölfarið
2. mín
Fyrsta skotið
Það eru Gróttumenn sem eiga það. Nökkvi á það en það er laust og á Ólafur ekki í vandræðum með það
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað hjá okkur!
Það eru Fylkismenn sem sparka þessu af stað!
Fyrir leik
Korter í leik
Það er hörkustemning hérna í Árbænum - lifandi tónlist og mikill fjöldi fólks mættur á völlinn. Veðrið eins og best verður á kosið, um 18° hiti smá gola og léttskýjað. Allir á völlinn!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru dottin inn
Byrjunarliðin eru komin og má sjá þau hér til hliðar
Byrjunarlið Fylkis og Gróttu - Eyþór Wöhler byrjar
Byrjunarlið Fylkis og Gróttu - Eyþór Wöhler byrjar
Fyrir leik
Búið að draga í undanúrslitin
Búið er að draga í næstu umferð bikarsins en sigurliðið hér í dag mun taka á móti Aftureldingu í undanúrslitum.
Bikardrátturinn
Grótta hefur aldrei komist í undanúrslit bikarsins og geta þeir því skrifað nýjan kafla í sögu Gróttu slái þeir Fylkismenn út í dag.
Fylkismenn hafa átta sinnum komist í undanúrslit bikarsins í sinni sögu og farið alla leið tvisvar sinnum í sinni sögu, tvö ár í röð árin 2001 og 2002.
Bikardrátturinn
Grótta hefur aldrei komist í undanúrslit bikarsins og geta þeir því skrifað nýjan kafla í sögu Gróttu slái þeir Fylkismenn út í dag.
Fylkismenn hafa átta sinnum komist í undanúrslit bikarsins í sinni sögu og farið alla leið tvisvar sinnum í sinni sögu, tvö ár í röð árin 2001 og 2002.
Fyrir leik
Hátíð á Tekk-vellinum fyrir leik
Núna klukkan 12 hefst leikdagshátíð á Tekk vellinum. Hoppukastalar, trúbador og Fan-zone! Það er frábært veður á höfuðborgarsvæðinu og því tilvalið að mæta snemma á völlinn með alla fjölskylduna!
Hátíð í Árbænum fyrir bikarleik Fylkis og Gróttu
Hátíð í Árbænum fyrir bikarleik Fylkis og Gróttu
Fyrir leik
Leið Gróttu
Leið Gróttu að 8-liða úrslitunum hófst með 0-2 sigri gegn Þrótti Vogum. Í annarri umferð tóku þeir á móti á Úlfunum á Vivaldivellinum og lauk leik með 2-1 sigri Gróttu í spennuleik. Í 32-liða úrslitum sigruðu þeir lið Álftaness 1-0 sömuleiðis á Vivaldivellinum og í 16-liða úrslitum gerðu Gróttumenn góða ferð á Ísafjörð og slógu út heimamenn í Vestra þar sem lokatölur voru 0-4.
Fyrir leik
Leið Fylkis
Fylkismenn hófu leik í bikarnum í annarri umferð þar sem þeir slógu út KV með öruggum 6-0 sigri á Tekk-vellinum. Í þriðju umferð voru það KFA sem komu í heimsókn í Árbæinn og lauk leik með 2-0 sigri Fylkis. Því næst var það Bestu deildar lið FH sem þurfti að lúta í gras á Tekk vellinum þegar Fylkismenn tóku þá í bakaríið með 5-0 sigri.
Fyrir leik
Lokaleikur 8-liða úrslita
Verið velkomin í Árbæinn þar sem heimamenn í Fylki taka á móti Gróttu í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins



Skýrsla og viðtöl innan tíðar!