Fotbolti.net
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
Ægir
Ægir
Lengjudeild karla
GeoSalmo völlurinn
Þokkalegar í flottu veðri
1 - 3
Þróttur R.
Þróttur R.
Jordan Adeyemo 8'1 - 01 - 149' Sigurður Egill Lárusson (víti)1 - 263' Adam Árni Róbertsson1 - 393' Aron Snær Ingason
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Halda sér á toppnum og gleðileg innkoma

Hvað réði úrslitum?

Vítaspyrnan og markið sem það skilaði réði úrslitum í kvöld. Eftir að Sigurður Egill skoraði úr henni var mjög ljóst hvert stigin ætluðu.

Bestu leikmenn

1. Aron Snær Ingason

Það gera margir tilkall til en Aron Snær fær þetta, fiskar vítið og skorar síðan síðasta markið eftir að hafa spilað virkilega vel og af fullum krafti. Frábær leikur hjá honum

2. Adam Árni Róbertsson

Velkominn tilbaka segi ég nú. Trúi því samt alveg að hann sé ósáttur að hafa ekki gert ennþá meira, fékk helling af færum og skapaði mikið eftir að hann kom inná.

Atvikið

Innkoma Adams Árna Róbertsson er bara BRAVÓ stuff! Rölti inná teiginn eftir skiptinguna, boltinn í átt að honum og skallinn inn 2-1. Fyrsta snerting hans í Lengjudeildinni með Þrótti í netinu.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur heldur í toppsætið með þessum endurkomu sigri en Ægir mistekst að koma sér úr fallsæti og er ennþá í næst neðsta sæti Lengjudeildarinnar

Vondur dagur

Seinni hálfleikur Ægis er vonda dagsefni í kvöld. Eftir mjög "solid" fyrri hálfleik fer allt á verri hlið í seinni og þeir sáu nánast aldrei til sólar eftir vítaspyrnu markið. Ekki eitthvað sem þeir vilja meira af en geta tekið eitthvað úr fyrri hálfleik í fallbaráttuna sem blasir við þeim um þessar mundir.

Dómarinn - 5

Ég er á báðum áttum, það var nóg um að vera og vítadómurinn spilaði stórt hlutverk. Mikill pirringur í mönnum og brot um allan völl.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.