SKÝRSLAN: Stórmeistarajafntefli á Meistaravöllum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var hreinlega það að KR klúðraði of mörgum færum og Hauka konur náðu að vinna sig inn í leikinn að harðfylgi, 1-1 og þar við sat!
Bestu leikmenn
1. Rakel Grétarsdóttir
Ekki nema 16 ára! Hún var frábær á kantinum í dag, dældi boltum inn á teiginn sem KR konur hefðu átt að nýta betur en ekki við Rakel að sakast, hún stóð heldur betur fyrir sínu. Náði ótrúlega vel saman við Kötlu, fann hana trekk í trekk inn í teignum.
2. Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir
Hjá Haukum var það hin efnilega Viktoría Sólveig sem hélt sínum konum algjörlega inn í leiknum þegar KR hótuðu hvað mest að tvöfalda forystu sína. Átti margar góðar vörslur og greip vel inn í. Shoutout fær Berglind Þrastardóttir fyrir markið sem hún skoraði og tryggði stig fyrir sitt lið.
Atvikið
Set það á fyrsta markið sem Katla Guðmundsdóttir skoraði á 6. mínútu leiksins. Þvílíkur BANGER sem hún setti! Það setti strax tóninn fyrir leikinn, þar sem allt stefndi í að KR myndi skora fullt í viðbót eeeeen allt kom þó fyrir ekki.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Haukakonur halda toppsætinu og eru nú með 17 stig og KR konur stigi á eftir þeim í 2. sætinu og stigi á undan nágrönnum sínum í Gróttu
Vondur dagur
Enginn sem átti eitthvað slæman leik í dag, Haukakonur voru ólíkar sjálfum sér í spilamennsku en engin sem átti áberandi slakan dag. Get trúað að Katla nagi sig í handarbökin fyrir að hafa ekki klárað fleiri færi en hún hins vegar spilaði að öðru leyti vel.
Dómarinn - 6
Fínasta frammistaða hjá Elmari og co. hef lítið út á þá að setja, helst kannski að uppbótartíminn sem varð ansi lengri en gefið var út en ég gat ekki séð tafir sem það átti að covera.


