SKÝRSLAN: Baráttusigur ÍBV gegn Stjörnunni
Hvað réði úrslitum?
ÍBV sýndu meiri baráttu og vilja en Stjarnan. Þessi leikur var lítið fyrir augað og hefði getað dottið báðum megin. Eyjamenn höfðu betur í baráttunni og voru ögn markvissari í sóknaraðgerðum sínum sem skilaði þeim sigri.
Bestu leikmenn
1. Vicente Valor
Leysti stöðu miðjumanns vel í dag. Tapar fáum boltum og virðist oftar en ekki finna lausnir. Spilaði loks allar 90 mínúturnar. Átti svo hörkuskot beint úr aukaspyrnu sem Árni Snær varði vel í horn.
2. Sigurður Arnar Magnússon
Var eins og klettur í vörn Eyjamanna og skilaði sínu eins og svo oft áður. Kláraði leikinn eftir þungt höfuðhögg fimm mínútum fyrir leikslok og hélt áfram að verjast vel.
Atvikið
Seinna vítið sem Eyjamenn vildu fá þegar Omar var sloppinn einn í gegn og var nánast dreginn niður í þann mund sem hann skaut á markið. Augljóst víti að mínu mati. Verð líka að nefna höfuðhöggið sem Sigurður Arnar fékk og var hann augljóslega vankaður. Eyjamenn voru búnir með skiptingar sínar og á Íslandi er ekki aukaskipting ef leikmaður fær höfuðhögg. Eitthvað sem mætti skoða betur.
Hvað þýða úrslitin?
Eftir ellefu leiki eru bæði lið með 11 stig, ÍBV í níunda sæti og Stjarnan í því áttunda. Stjarnan með betri markatölu vegna fjölda skoraðra marka.
Vondur dagur
Birnir Snær Ingason átti ekki sinni besta dag. Getur verið að maður sé kannski full dómharður á hann en mér fannst lítið til hans sjást í leiknum. Fékk svo nokkuð gott tækifæri til að skora seint í leiknum en skot hans fór hátt yfir. Róbert Elís hefur einnig átt betri daga en það fór lítið fyrir honum í þessum leik. Einnig er hægt að nefna dómara leiksins sem átti afar slakan leik.
Dómarinn - 3
Arnar Þór Stefánsson var alls ekki í takt við leikinn. Dæmdi oft ekki aukaspyrnur þegar það var nokkuð augljóst og dæmdi svo aukaspyrnur fyrir minni hluti. Sleppir svo að dæma vítaspyrnu þegar Omar er sloppinn í gegn og dreginn niður þegar hann er að skjóta á markið. Hin vítaspyrnan sem Eyjamenn vildu fá er spurningamerki.



