SKÝRSLAN: Sætur sigur á Kópavogsvelli
Hvað réði úrslitum?
Blikar voru meira með boltann. Misstu smá úr sér eftir jöfnunarmarkið og KA pressaði mikið á kafla og fannst mér að þeir hefðu getað bætt öðru við. En sanngjörn úrslit, já ég myndi segja það.
Bestu leikmenn
1. Aron Bjarnason
Aron var frábær í dag. Var allt í öllu, náði stoðsendingu og þær urðu næstum tvær. Skapaði mikið og varnarmenn KA áttu erfitt með hann
2. Birgir Baldvinsson
Hann var gífurlega sterkur í vinstri bakvarðarstöðunni, fullt af tæklingum, gerði frábærlega að ná að pota boltanum inn og var nánast búinn að bæta öðru við þegar hann átti fast skot í hliðarnetið.
Atvikið
Maður verður að gefa Arnari Bjarka það, en hann skoraði sitt fyrsta mark með meistaraflokki Breiðabliks á 85. mínútu og gulltryggði sigurinn fyrir sína menn.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik situr í 4. sæti eftir 11 umferðir með 19 stig. KA situr í 10. sæti eftir 11 leiki með aðeins 10 stig.
Vondur dagur
Enginn átti einhvern slæman dag að mínu mati. Tölfræðin segir Stubbur, en Stubbur var svosem fínn í leiknum. Óheppinn að verja ekki fyrsta markið sem var klobbi.
Dómarinn - 6
ÞÞÞ fínn. Fannst hann stundum of seinn að dæma á hluti og margir voru óssammála á hvað hann dæmdi á og ekki




