SKÝRSLAN: Íslandsmeistararnir óstöðvandi
Hvað réði úrslitum?
Víkingur og þeirra rosalega miklu gæði og yfirvegun var það sem skóp þennan risastóra sigur. Framarar voru fínir fyrsta hálftímann en eftir að Víkingar skora úr sínu fyrsta færi í leiknum var þetta í rauninni aldrei spurning.
Bestu leikmenn
1. Elías Már Ómarsson
Skorar þrennu í dag og nýtir öll færin sín vel. Erfitt að velja einhvern annan yfir hann.
2. Daníel Hafsteinsson
Daníel var stórkostlegur á miðjunni í kvöld. Hann og Gylfi stjórnuðu öllu sem fór fram í leiknum og Daníel átti meiri þátt í mörkum Víkings og er því valinn frekar en Gylfi.
Atvikið
Annað mark Víkinga var stórkostlegt. Spilamennskan í því marki var frábær, þar sem Gylfi og Danni spila pressu Framara í sundur áður en Danni teiknar fullkomna sendingu á Kalla sem leggur boltann á Óskar sem gaf fullkomna fyrirgjöf á Elías.
Hvað þýða úrslitin?
Að margra mati þýða úrslitin að Víkingur verði Íslandsmeistari og það er ekkert sem mun stoppa þá. Mótið er auðvitað ekki einu sinni hálfnað en miðað við flugið á Víkingi og stigafjöldann sem þeir eru með virðist vera nokkuð ljóst að þeir muni verða Íslandsmeistarar annað tímabilið í röð.
Vondur dagur
Viktor Freyr í marki Framara fær þetta á sig í kvöld. hann fær á sig fimm mörk og gefur víti. Hann átti alveg einhverjar fínar vörslur en fimm mörk í grillið er aldrei gott að lenda í og hann kemur bara sterkari til baka eftir þetta.
Dómarinn - 7
Heilt yfir fínasta frammistaða og lítið meira um það að segja.



