SKÝRSLAN: Mannlegir Víkingar jarðtengdir á Kópavogsvelli
Hvað réði úrslitum?
Mikið jafnræði var með liðunum og var ekki mikið um frábær færi, varnir beggja liða lokuðu vel á sóknir hins liðsins. Því var ljóst að það lið sem refsaði betur myndi bera sigur úr býtum og var það Kópavogsliðið í dag. Fyrsta mörk Blika kemur eftir lélega hreinsun Sveins Gísla og frábærlega útfærða skyndisókn. Annað markið kemur sömuleiðis eftir lélega hreinsun. Ágúst Orri bætti svo kirsuberinu ofan á kökuna með þriðja marki Blika eftir skyndisókn.
Bestu leikmenn
1. Ágúst Orri Þorsteinsson
Gulltryggði Blikum í úrslitin og lagði upp fyrra markið. Hreinlega frábær í dag.
2. Gabríel Snær Hallsson
Gerist varla stærra en að koma uppeldisfélaginu yfir í undanúrslitum bikarsins með fyrsta markinu í meistaraflokki.
Atvikið
Davíð Ingvarsson formlega skaut Blikum í úrslitaleik Mjólkurbikarsins er hann skoraði annað mark liðsins.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar fara á Laugardalsvöll í úrslitaleik bikarsins og mæta þar annað hvort Aftureldingu eða Fylki. Fyrsta sinn sem Breiðablik fer í úrslit í átta ár. Víkingar fara súrir heim með fyrsta tap sumarsins á bakinu.
Vondur dagur
Sveinn Gísli á slaka hreinsun til baka í fyrsta marki Breiðabliks og þá hefði Aron Snær sömuleiðis átt að verja skotið. Þá var sóknarleikur Víkings nokkuð hugmyndasnauður, þeir Elías Már, Erlingur Agnarsson og Óskar Borgþórsson hafa allir átt mun betri daga.
Dómarinn - 5
Þokkalega erfiður leikur að dæma. Mér fannst þó línan skrítin og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Útlit var fyrir að Sigurður væri að fara missa þennan leik úr böndunum en hann á hrós skilið fyrir að halda þessu í skefjum í seinni hálfleik. Hárrétt rangstaða dæmd í marki Víkings undir lok leiks. Þá fékk Jóhannes Kristinn greinilega boltann í hendina í eigin vítateig en ekkert dæmt. Mun aldrei skilja hvenær er hendi og ekki hendi en vonandi dæmdi Sigurður rétt þarna.



