SKÝRSLAN: Þrautseigjusigur hjá Val
Hvað réði úrslitum?
Í fyrsta lagi undarleg ákvörðun Affi í fyrsta marki Vals og svo þegar Valsmenn komast aftur yfir þegar brotið er á leikmanni Þórs í aðdraganda marksins. Tvö atvik sem ýttu Val yfir línuna en þeir nýttu sér þetta til fullnustu.
Bestu leikmenn
1. Markus Lund
Tvö mörk í fyrri hálfleik og góð barátta allan leikinn. Vann fjölmörk skallaeinvígi og átti eina tilraun til að ná hat trikkinu en skotið var tilnefnt til bjartsýnisverðlauna í kjölfarið
2. Tryggvi Haraldsson
Það komu margir til greina úr báðum liðum en Tryggvi var góður allan leikinn. Síógnandi og vann vel fyrir liðið.
Aðrir tilnefndir: Ási og Greko hjá Þór og Lúkas Logi hjá Val
Atvikið
Það eru þrjú atvik.
1. Þegar Affi leggst á boltann eftir að hafa átt kost á skyndisókn, upp úr þessu skora Valsmenn sitt fyrsta mark.
2. Þegar Stöle sleppur við spjald rétt áður en hann fær spjald. Ef og hefði - hann hefði ef til vill samt fengið seinna spjaldið.
3. Brot á leikmanni Þórs þegar Valur skorar þriðja markið.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Valur er að stimpla sig inn í Evrópubaráttu en Þórsarar sitja sem fyrr í fallsæti.
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir Affi. Hann er fínn í vörn en þegar hann fær boltann á jörðinni og ætlar að gera eitthvað þá er það svo tilviljunarkennt og stundum mjög undarlegt hvað honum dettur í hug að gera. Í þessum leik fór það frekar illa.
Dómarinn - 4
Dómarinn virtist leggja upp með það að gefa ekki spjöld fyrr en í fulla hnefana. Það reyndist illa. Hann sá ekki brotið í innkastinu. Hann var bara alls ekki með á nótunum. Dýrkeypt mistök hjá honum.



