SKÝRSLAN: Grýla send til fjalla eftir 18 ára samfellda veru
Hvað réði úrslitum?
Elja Keflvíkinga og glæsimark Alpha Conteh. Það leit allt út fyrir að liðin myndu fara heim með hvort sitt stigið úr þessum leik en Keflvíkingar sýndu kraft á lokamínútunum og keyrðu á KR-inga. Conteh rak svo smiðshöggið á 90. mínútu.
Bestu leikmenn
1. Marin Mudrazija - Keflavík
Það er ekki hægt að horfa framhjá tveggja marka manni. Mudrazija kom sér í góðar stöður og uppskar tvö hugguleg mörk.
2. Davíð Helgi Aronsson - Keflavík
Hversu margar álitlegar sóknir stöðvaði Davíð? Hann stóð sig hrikalega vel í dag og spilaði ungi maðurinn eins og hann hefði margra ára reynslu,
Hér væri einnig hæft að nefna Arnór Ingva Traustason sem var sífellt ógnandi fyrir KR-inga og skoraði gott mark. Galdur Guðmundsson átti líka góða spretti.
Atvikið
Sigurmarkið, og þvílíkt mark. Bylmingsskot Alpha Conteh upp í hægra hornið framhjá Halldóri Snæ í marki KR í kjölfarið á því að Eiður Orri keyrir á vörn KR og lætur verja frá sér á línu.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða það að Keflavík sigrar KR í fyrsta sinn síðan 2008 og kveða KR-Grýluna loksins í kút.
KR-ingar sitja enn í 2. sæti deildarinnar með 28 stig, 5 stigum á undan liði Fram sem eiga tvo leiki til góða á KR. Keflvíkingar eru enn í 7. sæti deildarinnar líkt og fyrir leik en tapi Skagamenn á morgun færast þeir upp um eitt sæti.
Vondur dagur
Það væri hægt að setja þetta á liðsheild KR-inga. Eins og sagt var í viðtölum eftir leik þá vantaði ákefð í liðið og voru menn svolítið á hælunum lungan af leiknum.
Dómarinn - 8
Flott frammistaða hjá Gunnari og hans teymi. Leikurinn fékk að fljóta vel og lítið út á þriðja liðið að setja.



