SKÝRSLAN: Bæði lið neita að tapa um þessar mundir
Hvað réði úrslitum?
Það var mikið barist á vellinum en jafntefli er niðurstaðan. Nokkrar vörslur frá Ara Petersen og skot í stangir hjá báðum liðum voru það sem sáu til þess að 1-1 væri staðan eftir loka flautið
Bestu leikmenn
1. Kjartan Kári Halldórsson
Leggur upp og ef það var einhver hætta þá get ég lofa að Kjartan Kári var í myndinni. Átti frábært skot og eitt úr aukaspyrnu en bæði varinn. Algjör lykilmaður í þessu FH liðið.
2. Omar Sowe
Kom inná með það sem þurfti, fær 45mín í skrokkinn og heldur betur kraftur sem ÍBV þarf á að halda í framhaldinu
Atvikið
Innkoma Omar Sowe er atvik leiksins. Það er nýbúið að flauta seinni af stað og langur bolti fram sem Jökull mætir í en Omar Sowe einnig með kröftugan sprett og kemur sér fullkomnlega fyrir í að fá boltann í sig og síðan rúllaði tuðran í netið.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV er komið með fimm leiki án taps og ganga nokkuð sáttir frá borði, FH fer úr neðsta sæti þökk sé markatölu en er ennþá í fallsæti. Þrír leikir án taps hjá FH er þó jákvætt fyrir þá.
Vondur dagur
Grasið heldur áfram að stríða, varð smá töf í hálfleik en Eyjamenn voru líka til að byrja með svolítið að renna. Annars lítið vont við þennan dag. Kannski að þrjú stigin fá ekki að fara heim með neinum í dag.
Dómarinn - 7
Það var mikil barátta en hann reyndi eins og hann gat að halda leiknum í gangi. Hefði auðveldlega getað farið í einhverja gula spjalda vitleysu þessi leikur



