Leik lokið!
Valur vinnur 4 - 2
Kaflaskiptum leik lokið með sigri Valsmanna.
Leik lokið!
94. mín
Valur klárar þett
Tryggvi Hrafn Haraldsson
Tryggvi vinnur boltann við vítateig og fær að valsa óáreittur þvert yfir teiginn og leggur svo boltann framhjá varnarlausum Aroni93. mín
brot
Christian Jakobsen
90. mín
Viðbót 4 mín
90. mín
horn
Valur fær horn frá vinstri. Þórsarar hreinsa.
88. mín
Valsmenn að stela stigum
Albin Skoglund
Valsmenn fá langt innkast. Þórsara hrint inni í teig þegar Bjarni fleytir boltanum á Skoglund sem setur hann í markið87. mín
Líf og fjör
Eins og ég sagði fyrir leik þá vilja bæði lið 3 stig og það er að sýna sig núna. Sóknir á vixl
86. mín
horn
Þórsarar fá horn frá vinstri sem Valsmenn ná skyndisókn sem Vilhelm kemst fyrir
85. mín
Horn
Þór fær skyndisókn sem Valsarar bjarga í horn vinstra megin. Einar tekur á fjær, skallað frá og Þórsarar ná skoti og fá annað horn
82. mín
Brot
Yann Emmanuel Affi
81. mín
InnKristófer Dagur Arnarsson
ÚtIngimar Torbjörnsson Stöle
Valsmenn gera breytingu
79. mín
Horn hægri
Einar tekur hornið á fjær þar sem Affi skallar framhjá
77. mín
Senter
Ragnar er settur í senterinn enda á hann stutt að sækja markaskorunina.
77. mín
InnRagnar Óli Ragnarsson
ÚtIngimar Arnar Kristjánsson
Skipting
Ingimar meiddist eitthvað við "niðursparkið" eftir markið.
76. mín
Skot Valur
Lúkas Logi reynir skot en beint á Aron
73. mín
Pressa Valur
Valsmenn eru að vakna upp við vondan draum og pressa Þórsarana núna.
70. mín
Þórsarar jafna
Kristófer Kristjánsson
Kristófer og Ingimar spila á mili inni í teig hægra megin, Kristófer fer svo framhjá varnarmanni og setur hann í fjær. Vel gert.67. mín
Horn valur vinstri
Boltinn kemur á nær þar sem skallað er frá en beint á Valsara sem á skot úr þvögu á markið en Ási bjargar á línu. Þórsarar bægja hættunni frá
66. mín
Brot
Bjarni Mark Antonsson
Sparkar Ingimar niður eftir markið66. mín
Þórsarar minnka muninn
Ingimar Arnar Kristjánsson
Valsarar eru að spila í miðjuhringnum og það kemur þversending sem Sigfús rekur tána í og úr verður þessi stórkostlega stungusending á Ingimar sem rekur boltann inn í teig og setur boltann framhjá Friðriki.64. mín
Skot framhjá Valur
Tryggvi fær boltann inni í teig og tekur viðstöðulaust en framhjá
63. mín
Skot Valur framhjá
Jakob Franz fær boltann við eigin vítateig og rýkur upp völlinn alveg að vítateig þar sem hann á laust skot að marki
60. mín
Aukaspyrna Þór
Þór fær aukaspyrnu nálægt hliðarlínu hægra megin en Valur hreinsar og nær svo að losa pressuna
58. mín
Spjald
Ingimar Torbjörnsson Stöle
Þarna var Stöle heppinn að vera ekki kominn með gult57. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtJónatan Ingi Jónsson
Valur Skipting
56. mín
færi
Tryggvi vinnur boltann og stingur inn fyrir á Stöle en Ási vinnur boltann af honum og fer af stað. Stöle rífur hann niður en ekkert spjald. Það er eins og dómarinn hafi það markmið að spjalda ekki
52. mín
Skot yfir
Skoglund vinnur boltann og leggur á Veldman sem á skot yfir
51. mín
Aukaspyrnan
Skot yfir markið
50. mín
Aukaspyrna Valur
Aukaspyrna rétt utan teigs vinstra megin. Tryggvi stillir upp.
49. mín
Aukaspyrna
Þór fær aukaspyrnu fétt utan teigs hægra megin. Einar og Vilhelm gera sig líkleag. Einar tekur skot á nær en framhjá
46. mín
Breyting
Ingimar fer í senterinn en Greko dettur aðeins aftar
46. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtBjarni Guðjón Brynjólfsson
Tvöföld skipting í hálfleik
Sóknarsinnuð skipting hjá heimamönnum
46. mín
InnIngimar Arnar Kristjánsson
ÚtFannar Daði Malmquist Gíslason
Tvöföld skipting í hálfleik
Sóknarsinnuð skipting hjá heimamönnum
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur
45. mín
uppbótartími
Ein mínúta í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Valsmenn hafa haft töglir og hagldir hér á Þórsvellinum og pressað heimamenn nánast allan hálfleikinn. Sanngjörn forysta í hálfleik
42. mín
Góð sókn Þórs
Einar vinnur boltann af Lúkasi Loga og keyrir upp, sendir á Ágúst sem kemst upp að endalínu og leggur boltann inn í teiginn en þar er enginn mættur og Valsmenn hreinsa.
40. mín
Skot eftir skyndisókn
Skoglund vinnur boltann, kemur honum á Lúkas Loga sem sendir á Tryggva sem á skot yfir markið
37. mín
Horn og mark
Markus Lund Nakkim
Jónatan komst upp að markteig og á skot en Aron ver í horn sem er frá hægri. Hornið tekið á nærstöng en Aron kýlir boltann út þar sem Jónatan nær honum og kemur honum aftur inn í beint á kollinn á Markus36. mín
Pressa frá Þór
Fyrsta almennilega pressan frá heimamönnum, ná að halda Völsurum inni í teig í dágóða stund og endar með skoti frá Bjarna en framhjá
32. mín
Aukaspyrna
Mikið klafs við hliðarlínu sem endar á því að Valur fær aukaspyrnu við litla hrifningu stuðningsmanna Þórs, enda var Greko sparkaður niður þegar hann hafði unnið boltann.
29. mín
Skot
Lúkas Logi reynir skot utan teigs en Aron ver auðveldlega
27. mín
InnBjarni Mark Antonsson
ÚtHörður Ingi Gunnarsson
Meiðslin alvarleg
Hörður fer út af
27. mín
Meiðsl
Smá stopp vegna höfuðmeiðsla Harðar Inga
19. mín
Klaufaskapur og mark í kjölfarið
Markus Lund Nakkim
Affi vinnur boltann af Tryggva og rýkur upp völlinn, stoppar og hopar til baka og getur ekkert gert, leggst ofan á boltann og Valur fær óbeina aukaspyrnu sem tekin er inn í teig þar sem Samúel á skalla í slá en Markus nær frákastinu og skorar auðveldlega.18. mín
Skot
Hörður Ingi á skot langt, langt framhjá
17. mín
Aukaspyrnan
Vilhelm á skot/sendingu rétt framhjá fjær stöng
16. mín
Aukaspyrna
Eftir gott spil Þórsara rétt utan teigs brjóta VAlsmenn og Þór á aukaspyrnu rétt utan teigs hægra megin
14. mín
Færi Þór
Á meðan ég var að skrifa rjúka Þórsarar upp og fá sín fyrstu færi er þeir fá tvö færi til að skora en Bjarni á góðan skalla rétt framhjá eftir að hafa náð frákasti.
13. mín
Hætta við Þórsmarkið
Sverrir með skelfilega þversendingu beint á Valsmann sem kemur á ferðinni með boltann og Tryggvi fær hann og skýtur en Aron ver vel
10. mín
hætta
Valsmenn taka þríhyrning inn í teig og Tryggvi er kominn að markteig er Affi stígur hann út og hirðir af honum boltann
7. mín
Skot - Valur
Greko vinnur boltann en sending hans er ónákvæm á Bjarna svo Valsmenn ná honum, krossa yfir allan völlinn á Tryggva sem hamrar á markið en rétt framhjá.
5. mín
Hættulegur leikur
Valsmenn hreinsa innkast hátt í loftið og fram völlinn þar sem Bjarni Guðjón er einn en honum mistekst að ná valdi á boltanum, frekar klaufalegt og Tryggvi hirðir boltann af honum en missir hann aðeins of langt út á kant til að komast beint á markið. Þórsarar komast í vörn og bægja hættunni frá
3. mín
Færi - Valur
Skoglund fær boltann frá Jónatan inni á markteig og á gott skot sem Aron ver og heldur boltanum
1. mín
Leikur hafinn
Byrjað
Valsmenn sparka þessu af stað
Fyrir leik
Allt að verða klárt.
Liðin komin út á völl, sólin farin að skína og aðstæður gætu varla verið betri. Þetta verður hörku leikur.
Fyrir leik
Það er einhvað í loftinu í Þorpinu, Þór yfir 1,5 mark er á stuðlinum 2.22. Ég gef ekki mikið fyrir þetta Valslið.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) June 28, 2026
Fyrir leik
Þjálfararnir
Þjálfarar beggja liða eru undir mikilli pressu.
Siggi Höskulds þarf að fara að snúa við mjög döpru gengi Þórsara og fara að sækja stig. Þolinmæði gagnvart honum er þó nokkur en þegar illa gengur gengur hratt á hana.
Hermann Hreiðars er líka undir mikilli pressu því margir Valsmenn eru óánægðir með spilamennsku liðsins og skilja ekki hver stefnan er í spilamennsku liðsins. Hann þarf að fara að sannfæra Fjósið og aðra Valsmenn um að hann sé sá rétti til að stýra liðinu á Hlíðarenda.
Siggi Höskulds þarf að fara að snúa við mjög döpru gengi Þórsara og fara að sækja stig. Þolinmæði gagnvart honum er þó nokkur en þegar illa gengur gengur hratt á hana.
Hermann Hreiðars er líka undir mikilli pressu því margir Valsmenn eru óánægðir með spilamennsku liðsins og skilja ekki hver stefnan er í spilamennsku liðsins. Hann þarf að fara að sannfæra Fjósið og aðra Valsmenn um að hann sé sá rétti til að stýra liðinu á Hlíðarenda.
Fyrir leik
Mikilvægi leiksins
Valsmenn þurfa þau þrjú stig sem eru í boði í dag til að koma sér upp að hlið Blika og þar með í alvöru Evrópubaráttu. Tap í dag þýðir að Valur er enn í miðjumoði í deildinni.
Þórsarar þurfa stigin þrjú til að koma sér upp að hlið nágrannanna hinum megin Glerár og inn í hóp liðanna sem eru þar rétt ofar. Tap í dag þýðir að bilið í öruggt sæti er enn í smá fjarlægð og það er kunn staðreynd að hvert stig skiptir miklu máli.
Jafntefli í dag eru ekki góð úrslit fyrir liðin, en þó má segja að Þórsarar, svona fyrirfram, myndu þiggja eitt stig.
Þórsarar þurfa stigin þrjú til að koma sér upp að hlið nágrannanna hinum megin Glerár og inn í hóp liðanna sem eru þar rétt ofar. Tap í dag þýðir að bilið í öruggt sæti er enn í smá fjarlægð og það er kunn staðreynd að hvert stig skiptir miklu máli.
Jafntefli í dag eru ekki góð úrslit fyrir liðin, en þó má segja að Þórsarar, svona fyrirfram, myndu þiggja eitt stig.
Fyrir leik
Byrjunarliðin - Valur
Valsmenn gera einnig þrjár breytingar eftir Keflavíkurjafnteflið. Ólafur Stephensen, Kristján Kristjánsson og Jakob Franz Pálssond fá allir að prófa nýju gæðabekkina á Þórsvellinum en Hörður Ingi Gunnarsson, Markus Lund Nakkim og Lúkas Logi Heimisson koma í þeirra stað.
Fyrir leik
Byrjunarliðin - Þór
Eftir jafnteflið við F.H. gera Þórsarar þrjár breytingar á byrjunarliðinu. Kristófer Friðriksson fer út sem og Hermann Rúnarsson og Ingimar Kristjáns. Inn í þeirra stað koma Sverrir Páll Ingason, Greko (Christian Greko Jakobsen) og Bjarni Guðjón Brynjólfsson (verið að verðlauna hann fyrir holu í höggi (eða ekki)). Hermann og Ingimar setjast á bekkinn en Kató er utan hóps.
Fyrir leik
Síðasta umferð
Í síðustu umferð gerðu bæði Þór og Valur jafntefli, Þórsarar við F.H. í botnbaráttuslag og Valsmenn við Keflvíkinga þar sem bæði lið þurftu sigur til að koma sér nær Evrópubaráttu.
Fyrir leik
Þrjár breytingar á báðum liðum
Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá leiknum gegn FH. Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Christian Greko Jakobsen snúa aftur eftir leikbann og Sverrir Páll Ingason kemur sömuleiðis inn í liðið. Hermann Helgi Rúnarsson og Ingimar Arnar Kristjánsson taka sér sæti á bekknum en Kristófer Kató Friðriksson er ekki með í dag. Sigfús Fannar Gunnarsson snýr aftur á bekkinn en Atli Sigurjónsson er ekki með. Isaac Atanga og Aron Ingi Magnússon eru fjarri góðu gamni hjá Þór.
Hemmi Hreiðars, þjálfari Vals, gerir sömuleiðis þrjár breytingar frá leiknum gegn Keflavík. Lúkas Logi Heimisson snýr aftur eftir leikbann og þeir Markus Nakkim og Hörður Ingi Gunnarsson koma einnig inn í liðið. Kristján Oddur Kristjánsson, Jakob Franz Pálsson og Ólafur Flóki Stephensen taka sér sæti á bekknum. Adam Ægir Pálsson er áfram á varamannabekknum. Birkir Heimisson, Patrick Pedersen, Kristinn Freyr Sigurðsson og Dagur Orri Garðarsson eru fjarri góðu gamni hjá Val.
Hemmi Hreiðars, þjálfari Vals, gerir sömuleiðis þrjár breytingar frá leiknum gegn Keflavík. Lúkas Logi Heimisson snýr aftur eftir leikbann og þeir Markus Nakkim og Hörður Ingi Gunnarsson koma einnig inn í liðið. Kristján Oddur Kristjánsson, Jakob Franz Pálsson og Ólafur Flóki Stephensen taka sér sæti á bekknum. Adam Ægir Pálsson er áfram á varamannabekknum. Birkir Heimisson, Patrick Pedersen, Kristinn Freyr Sigurðsson og Dagur Orri Garðarsson eru fjarri góðu gamni hjá Val.
Fyrir leik
Sumarið
Bæði Þór og Valur eru með færri stig eftir fyrri umferðina en væntingar voru um.
Valsmenn hafa ekki náð að stimpla sig í toppbaráttuna eins og margir Hlíðarendagestir vonuðust eflaust eftir. Gengið hefur verið upp og niður þrátt fyrir að þjálfarinn sjái hvern leik sem sigurleik, burtséð frá úrslitunum.
Þórsarar byrjuðu deildina vel og voru komnir með 6 stig í apríl. Lítið hefur gengið í stigasöfnun frá þeim tíma og viljinn til að snúa því sér í hag er örugglega til staðar.
Valsmenn hafa ekki náð að stimpla sig í toppbaráttuna eins og margir Hlíðarendagestir vonuðust eflaust eftir. Gengið hefur verið upp og niður þrátt fyrir að þjálfarinn sjái hvern leik sem sigurleik, burtséð frá úrslitunum.
Þórsarar byrjuðu deildina vel og voru komnir með 6 stig í apríl. Lítið hefur gengið í stigasöfnun frá þeim tíma og viljinn til að snúa því sér í hag er örugglega til staðar.
Fyrir leik
Fyrri leikurinn í sumar
Á besta degi ársins, 12. apríl, í vor heimsóttu Þórsarar Valsmenn og unnu þá 2 - 1 á Hlíðarenda. Margir spekingar hafa ýjað að því að þau úrslit voru undarleg og ósanngjörn. Í dag hafa Þórsarar það í hendi sér að afsanna þessar kenningar spekinga. Reyndar hafa Valsarar líka eitthvað að sanna því þeir vilja örugglega, aldrei þessu vant, sýna spekingunum að þeir höfðu rétt fyrir sér.



