0. mín
Staðan í deildinni
Heimamenn sitja í 9. sæti með 11 stig, 3 sigrar, 2 jafntefli og 6 töp. Í síðustu umferð töpuðu þeir grannaslagnum gegn Leikni 2-1. Víðir Freyr Ívarsson er markahæsti leikmaður ÍR í Lengjudeildinni.
Afturelding situr í öðru sæti með 22. stig, einu stigi frá fyrsta sæti. 7 sigrar, 1 jafntefli og 3 töp hingað til á mótinu. Í síðustu umferð spilaði Afturelding gegn Ægi og unnu þeir 8-1, Holtan skoraði þrennu. Holtan er markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar með 8 mörk.


0. mín
11 marka leikur í byrjun móts
Afturelding og ÍR spiluðu gegn hvor öðrum í byrjun móts á heimavelli Aftureldingar. Þann leik vann ÍR 4-7. Ír skoraði 4 mörk á 17 mínútna kafla í fyrri hálfleik, Stefán Pálsson og Emil Nói skoruðu báðir tvennu í leiknum. Þetta var mikið sjokk fyrir heimamenn.

0. mín
Lengjan kallar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þráðbeina lýsingu frá leik ÍR og Aftureldingar á Þarfaþingsvellinum í Breiðholti. Það er komið að 12. umferð Lengjudeildarinnar.







