Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
banner
   fös 24. apríl 2026 23:05
Helgi Inguson
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Lengjudeildin
Vonandi skrekkurinn farinn úr mönnum
Vonandi skrekkurinn farinn úr mönnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding laut í lægri haldi fyrir ÍR 4-7 í fyrsta leik liðanna í Lengjudeildinni. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, var svekktur með frammistöðu liðsins.

„Ég hef séð marga leiki í gegnum tíðina og þessi er svona einn af þeim ótrúlegri. Þetta var örugglega skemmtilegt fyrir áhorfendur að horfa á þetta, mikið af mörkum og annað. En ég er auðvitað mjög svekktur með frammistöðu okkar í dag," sagði Maggi í viðtali við Fótbolta.net eftir leikslok.

Lestu um leikinn: Afturelding 4 -  7 ÍR

Þegar hann var spurður hvað fór úrskeiðis í varnarleiknum hafði Maggi þetta að segja þetta að segja:

„Þetta er svo margt og það er ekki hægt að benda á eitthvað eitt. Þetta er bara allt liðið sem þarf að verjast betur, frá fremsta til aftasta manns. Eitthvað sem við þurfum að kafa ofan í. Sum mörkin kannski keimlík og við þurfum bara að taka meiri ábyrgð, allir sem einn. Við erum með marga reynda leikmenn sem spiluðu í Bestu deildinni í fyrra á móti bestu liðum landsins og þar var varnarleikurinn töluvert betri en hann var í dag. Þannig að ég held að það sé nokkuð ljóst að við þurfum að taka til og gera betur í næstu leikjum."

Mosfellingar skoruðu fjögur mörk í leiknum og var Maggi heilt yfir nokkuð sáttur með sóknarleikinn.

„Mér fannst sóknarleikurinn bara allt í lagi. Við skorum þessi fjögur mörk, hefðum getað skorað fleiri en hann varði vel í markinu hjá ÍR nokkrum sinnum. Sóknarlega bara fínt."

Honum var varnarleikurinn efst í huga.

„En eins og ég segi varnarleikurinn hjá liðinu ekki boðlegur og langt frá því sem við höfum sýnt undanfarin ár. Bara versta varnarframmistaða sem ég hef séð hjá Aftureldingarliðinu í mörg ár og eitthvað sem við þurfum að skoða gaumgæfilega fyrir næsta á leik á móti Völsungi á föstudaginn," bætti Maggi við
Slapp
banner
banner
banner