Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetÍvar Björgvinsson
Besta karla
Meistaravellir
Skýjað og úði
KR
KR
5 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Arnór Ingvi Traustason 25'1 - 0Eiður Gauti Sæbjörnsson 29'2 - 0Eiður Gauti Sæbjörnsson 51'3 - 0Aron Sigurðarson 54'4 - 0Aron Sigurðarson (víti) 61'5 - 0
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Afar sannfærandi KR sigur!
5-0 og í fyrsta sinn sem KR heldur hreinu á tímabilinu, því ber að fagna!
Skýrsla og viðtöl væntanleg.
Ég þakka fyrir mig.
91. mín
DAUÐAFÆRI
Aron Sig sendir boltann á Eið Gauta sem er einn gegn Árna en skýtur í stöngina, síðan fær Fannar frákastið en skýtur fram hjá!
90. mín
Tvær mínútur í uppbótartíma
Stjarnan
90. mín
Gult spjald

Þorri Mar Þórisson

Brýtur á Sigurði Breka.
88. mín
KR dauðafæri!
Stefán Árni fær afbragðsfæri inni í markteignum en sýnist Árni verja þetta, KR fær horn.
Stjarnan
88. mín
Gult spjald

Benedikt V. Warén

Brýtur á Sigurði Breka.
87. mín
Stjarnan haldið í boltann síðustu mínútur en ekki náð að ógna marki KR.
84. mín
Birnir Snær tók spyrnuna fasta meðfram jörðinni en Halldór sá við honum.

Stefnir í fyrsta hreina lak KR á tímabilinu.
KR
84. mín
Gult spjald

Jason Daði Svanþórsson

Brýtur á Árna Vill rétt á hættulegum stað.
82. mín
Góð sókn KR endar með því að Jason Daði kemur með fasta fyrirgjöf inn á teiginn sem enginn KR-ingur nær til.
Stjarnan
80. mín
InnAri Leifsson
ÚtSigurður Gunnar Jónsson
Frumraun Ara fyrir Stjörnuna.
KR
78. mín
InnBirgir Steinn Styrmisson
ÚtFinnur Tómas Pálmason
KR
78. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtGaldur Guðmundsson
KR
78. mín
InnFannar Heimisson
ÚtArnór Ingvi Traustason
76. mín
Spyrnan hátt yfir markið
Aron fékk séns til að ná í þrennuna en klikkaði.
Stjarnan
75. mín
Gult spjald

Alex Þór Hauksson

Tæklar Arnór Ingva rétt fyrir utan teig Stjörnunnar. Aron Sig undirbýr sig að taka spyrnuna.
75. mín
Leikurinn hefur aðeins róast síðustu mínútur en KR undirbýr þrefalda skiptingu.
69. mín
Hætta á teig Stjörnunnar
Varamennirnir strax komnir í boltann en það skapast mikill darraðadans á teignum en enginn nær að koma boltanum á markið.
KR
67. mín
InnSigurður Breki Kárason
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
KR
67. mín
InnJason Daði Svanþórsson
ÚtOrri Hrafn Kjartansson
Frumraun hans fyrir KR
66. mín
Aron nálægt þrennunni!
KR keyrir upp völlinn og Luke rennir boltanum á Aron sem er togaður niður en hann nær að standa þetta af sér og skýtur á markið, boltinn fór í varnarmann og aftur fyrir.
Stjarnan
65. mín
InnÞorri Mar Þórisson
ÚtAndri Rúnar Bjarnason
64. mín
Frábærlega gert hjá KR
Orri Hrafn með skemmtilegan snúning og keyrir upp völlinn, rennir boltanum á Galdur sem kemur með fyrirgjöf sem Eiður skallar að marki en ekki nægilega fast.
KR
61. mín
5-0 og fyrirliðinn nálgast markametið!!

Aron Sigurðarson

Hægri fótur hægra horn. Árni Snær fór í rétta átt en átti ekki möguleika.

Aron kominn með 16 mörk og mótið rétt rúmlega hálfnað.
59. mín
KR fær víti!
Orri Hrafn sækir vítið en þessi sókn hjá KR var stórkostleg. Spiluðu upp allan völlinn með einnar snertingar fótbolta.
KR
58. mín
Gult spjald

Galdur Guðmundsson

Keyrir inn á teiginn og fellur við, ÞÞÞ dæmir dýfu.
57. mín
Mikið fram og til baka þessa stundina
Stjörnumenn eru að reyna að lífga aðeins upp á þetta og KR-ingar hafa lítinn áhuga á að leggjast til baka.
KR
54. mín
Þetta fer að vera vandræðalegt

Aron Sigurðarson

Aron Sig fær boltann í teignum hægra megin og tekur snögga hreyfingu til vinstri og setur hann smekklega í fjærhornið.

4-0 og KR-ingar engu nærri hættir.
KR
51. mín
Eiður að klára leikinn!

Eiður Gauti Sæbjörnsson

Aftur keyra KR-ingar hratt upp völlinn en Luke Rae ætlar að gefa inn fyrir á Eið, boltinn flækist einhvern veginn á Milli Gustav Kjeldsen og Eiðas og hann sleppur einn í gegn og klárar vel á nærstöngina.
48. mín
KR byrjar strax að ógna marki Stjörnunnar en Árni Snær ver vel frá Aroni Sig.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Stjarnan
46. mín
InnGuðmundur Baldvin Nökkvason
ÚtÖrvar Logi Örvarsson
Stjarnan
46. mín
InnBenedikt V. Warén
ÚtÖrvar Eggertsson
Stjarnan
46. mín
InnBirnir Snær Ingason
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
45. mín
KR-ingar leiða mjög sannfærandi
Frábær frammistaða hjá heimamönnum en Garðbæingar hafa ekki ógnað marki KR af neinu viti.
Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
+2
Aron Sig með spyrnuna sem fer yfir vegginn og í þverslána. Árni Snær hreyfðist ekki á línunni.
Stjarnan
45. mín
Gult spjald

Sigurður Gunnar Jónsson

Rígheldur í Eið og þetta virðist eiga að vera víti en ÞÞÞ dæmir aukaspyrnu við teigslínuna.
45. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
45. mín
Bjarki Hauks...
Tekur innkast sem fer rakleiðis útaf, áhugavert.
Stjarnan
44. mín
Gult spjald

Jóhann Árni Gunnarsson

Braut á Hrafni en Aron fékk boltann og reyndi skemmtilega vippu af löngu færi, rétt fram hjá.
43. mín
KR nálægt því að bæta við
Arnór Ingvi með fasta sendingu á Luke Rae sem fer utan á Örvar Loga en skýtur rétt fram hjá.
41. mín
Aftur liggur Örvar eftir en nú virðist hann hafa fengið högg á öxlina, stendur þó fljótt upp.
40. mín
Enginn annar en Örvar sem skallar frá
Góð fyrirgjöf frá Aroni Sig á teiginn sem Örvar nær að skalla í burtu en KR fær horn.
39. mín
Örvar og Eiður skokka hér inn á völlinn í sameiningu þegar KR fær hornspyrnu.
37. mín
Örvar staðinn upp og virðist ætla að halda áfram
Kominn með umfangsmikinn vafning um höfuðið og röltir út af vellinum og þarf að bíða þar í mínútu.
35. mín
Örvar liggur enn niðri en Eiður er staðinn upp. Börur komnar á völlinn.
33. mín
Þungt samstuð
Hornspyrna frá Stjörnunni sem Örvar Eggerts skallar rétt fram hjá en hann og Eiður skella saman og liggja báðir eftir.
32. mín
Áfram sækja heimamenn
Vel spilað hjá Arnóri Ingva og Aroni Sig, taka góðan þríhyrning en Arnór rennir síðan boltanum út á Luke Rae sem er við teiginn en skot hans með vinstri fæti fer hátt yfir markið.
KR
29. mín
Nú var það skyndisókn

Eiður Gauti Sæbjörnsson

Orri stígur Jóhann Árna út og Galdur kemst í boltann á miðjum vellinum og kemur með langa sendingu upp hægri kantinn þar sem KR eru þrír á tvo. Luke rae sker inn á teiginn, með tvo með sér en skýtur beint á Árna sem ver boltann út í teiginn og þar var Eiður Gauti fyrstur á boltann með mann í sér þó.

2-0 KR!!
KR
27. mín
Gult spjald

Finnur Tómas Pálmason

Tæklar Árna Vill ansi hressilega.
KR
25. mín
Frábært mark

Arnór Ingvi Traustason (stoðsending: Galdur Guðmundsson)

Enn ein góð sóknin hjá KR en Galdur var með boltann við endalínuna og nær að lyfta honum inn á teiginn þar sem þrír KR-ingar gerðu sig líklega en það var Arnór Ingvi sem stangaði boltann í fhjærhornið.

Sanngjörn forysta.
22. mín
DAUÐAFÆRI!!
Aron Sig með stórkostlega hælsendingu inn fyrir á Eið Gauta sem var aleinn gegn Árna Vill en skaut langt fram hjá markinu. Ólíkt markaskoraranum að fara svona illa með færi.

Langlangbesta færi leiksins!!!
20. mín
Árni Vill!
Með góða aukaspyrnu sem fer rétt yfir markið. Halldór skutlaði sér í þetta en boltinn virtist vera á leiðinni undir slána.
18. mín
Luke Rae kemur með góðan bolta inn á teiginn sem Eiður Gauti rétt nær til en skallinn hans er fram hjá.
16. mín
KR-ingar halda áfram að sækja
Löng sókn KR þar sem þeir eiga nokkur skot fyrir utan teiginn en Árni varði eitt og annað blokkað áður en Hjalti Sig tekur það þriðja sem fer yfir markið.
14. mín
KR skora!! En rangstæða...
Frábær sókn hjá KR-ingum sem sundurspila vörn Stjörnunnar og Luke Rae kemur með bolta inn á teiginn þar sem Aron Sig rennir honum í tómt markið en er samstundis flaggaður rangstæður.
8. mín
Orri Hrafn!
Fær boltann inni á teignum og nær að koma sér fram hjá Jóhanni Árna og tekur fast skot á nærstöngina en Árni Snær ver vel.
7. mín
Við hornspyrnuna myndast mikil hætta inni á teig Stjörnunnar og einhver köll um hendi en að lokum hreinsar Stjarnan þessu burt.
6. mín
Fyrsta færið!
Stjarnan tapar boltanum í uppspili og Aron Sig rennir boltanum á Galdur sem er í góðu færi en Árni Snær ver boltann yfir markið.
3. mín
Galdur gerir þetta vel
Fer auðveldlega fram hjá Bjarka Haukssyni og kemst inn á teiginn og ætlar að lyfta boltanum á fjærstöngina en Árni Snær kemst í boltann.
1. mín
Gestirnir hefja leik
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn
Stúkan tekur hressilega við sér og klappar vel fyrir leikmönnunum.
Fyrir leik
Markaleikur? Það held ég
Fyrir leik
Nýir leikmenn beggja liða að spila sinn fyrsta leik
Ari Leifsson var kynntur sem nýr leikmaður Stjörnunnar á dögunum en hann hefur verið í atvinnumennsku síðan 2020.


Árni Vilhjálmsson var einnig kynntur sem leikmaður Stjörnunnar en hann var einnig orðaður við heimkomu í Breiðablik.


Jason Daði gekk til liðs við KR í lok júní en má nú spila sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Damir Muminovic, leikmaður Grindavíkur, spáir markaleik:

Þetta verður markaleikur eins og flestir aðrir leikir hjá KR. Stjarnan er að fá nýja menn inn í liðið líka en það mun ekki breyta neinu, held ég, í þessum leik. Öruggur sigur KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna
Liðin mættust í 6. umferð Bestu deildar á Samsungvellinum í rosalegum leik en sá endaði 2-3 fyrir KR. Stjarnan skoraði tvö mörk rétt fyrir hálfleiksflautið en KR-ingar komu til baka í síðari hálfleik þar sem endurkoman var fullkomnuð er Ástbjörn Þórðarson skoraði sigurmark leiksins á 87. mínútu.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Það var síðan fimm dögum síðar sem liðin mættust aftur á Samsungvellinum, þá var það í Mjólkurbikarnum en þar fór Stjarnan með sigur af hólmi, 2-1 enduðu leikar. Það var jafnframt fyrsta tap KR á tímabilinu en tvenna frá Emil Atla gerði gæfumuninn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Dómarateymið
Þórður Þorsteinsson Þórðarson er dómari leiksins en honum til aðstoðar eru þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Antoníus Bjarki Halldórsson. Fjórði dómari er Pétur Guðmundsson og dómaraeftirlitsmaður er Gylfi Þór Orrason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stjarnan
Stjarnan er í 7. sæti en liðið hefur náð í 15 stig í fyrstu 14 leikjum mótsins. Með sigri fer liðið upp fyrir Keflavík og í 6. sætið en þeir spila á morgun gegn Blikum á heimavelli. Stjarnan er með -3 í markatölu þar sem liðið hefur skorað 28 mörk og fengið á sig 31.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
KR
Þetta KR lið er ótrúlegt fótboltalið en eftir 15 leiki er liðið í 3. sæti Bestu deildarinnar með 32 stig, stigi á eftir Fram og átta stigum á eftir toppliði Víkings. KR hefur skorað 53 mörk í leikjum sínum, um 3.5 mörk í leik að meðaltali en liðið hefur hins vegar fengið á sig 36 mörk, næstmest allra liða í deildinni en aðeins botnliðið, Þór Akureyri, hefur fengið á sig fleiri mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Meistaravellir er staðurinn!
Komið sæl fagra fólk og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik KR og Stjörnunnar í 15. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn fer fram í Vesturbænum þar sem KR-ingar freista þess að endurheimta 2. sætið á meðan Garðbæingar geta komist í efri hlutann í fyrsta sinn í langan tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.