Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
LNK Sporta Parks
RFS
RFS
0 - 0
Vestri
Vestri
Dómari: Aaron Wyn Jones (Wales)
Fyrir leik
Mögulegir andstæðingar sigurliðsins
Sigurvegarinn í einvígi Vestra og RFS mætir annað hvort Jablonec frá Tékklandi eða Varazdin Króatíu.


Fyrir leik
Þriðja liðið kemur frá Wales
Dómari leiksins í dag heitir Aaron Wyn Jones og honum til halds og traust eru Daniel Beckett og Martin Roberts. Fjórði dómari er Bryn Markham-Jones. Aaron Wyn Jones aðeins tvo leiki í undankeppni sambandsdeildarinnar í meistaraflokks fótbolta, það eru einu evrópuleikir hans á meistaraflokkssviði. Hann er ekki reyndur á Evrópusviðinu en í heimalandinu hefur hann dæmt 122 leiki í öllum keppnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Hver er andstæðingur Vestra?
RFS á rætur sínar að rekja til unglingaliðs hjá Skonto FC. Árið 2003 yfirgaf hópur Skotno FC og stofnaði nýtt lið sem hét FSK Daugava.

Árið 2005 var félagið FSK Daugava 90 stofnað. Liðið komst í 1. deild Lettlands árið 2007 og árið 2008 breytti félagið nafni sínu í FK Daugava. Sama ár komst liðið upp í efstu deild, en féll aftur niður árið 2009. Frá 2009 til 2011 starfaði félagið undir nafninu Rigas futbola skola.

Árið 2015 endaði Rigas futbola skola í þriðja sæti í 1. deild Lettlands og missti naumlega af sæti í efstu deild. Árið 2016 missti Skonto FC sæti sitt í efstu deild vegna fjárhagsvandræða og Rigas futbola skola fékk sæti þeirra í Virsliga. Þá byrjaði félagið að nota skammstöfunina RFS og sneri aftur í efstu deild Lettlands.

Eftir að RFS fegnu sæti í efstu deild Lettlands hefur liðið gegnið í gegnum hraðan og árangursríkan uppgang. Árið 2019 vann liðið Lettneska bikarinn. Árið 2022 var RFS fyrsta Lettneska liðið til að komast í lokakeppni í Evrópukeppni UEFA þegar það fór í Sambandsdeildina. Tímabilið 2024/25 komst liðið í lokakeppni Evrópudeildarinna, þar vann liðið Ajax frá Hollandi. Einnig gerði jafntefli við Anderlecht frá Belgíu og Galatasaray frá Tyrklandi.

Í dag situr liðið í 1. sæti efstu deildar Lettlands og kom komið áfram í aðra umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir sigur á Glentoran frá Norður-Írlandi.

Á pappír er RFS verra lið en Qarabag, þrátt fyrir það er liðið gott og hefur farið tvisvar sinnum í lokakeppni Evrópudeilda UEFA. Ljóst er að erfitt einvígi er í vændum en líklega meiri líkur á ákjósanlegum úrslitum fyrir Vestra.
Fyrir leik
Vestri ekki unnið leik í rúman mánuð
Það er öruggt að segja að Evrópuævintýri Vestra hafi haft áhrif á spilamennsku liðsins í Lengjudeildinni. Liðið hefur átt virkilega erfitt uppdráttar í leikjunum á milli Evrópuleikja.

Vestri tapaði 5-2 á heimavelli eftir fyrsta leikinn gegn Qarabag og núna á mánudaginn heimsótti liðið HK og tapaði 6-2. Fyrir það gerði liðið 0-0 jafntefli í Grindavík þar sem nokkrir leikmenn voru hvíldir.

Vestri fá frí frá Lengjudeildinni í 15 umferðinni sem er spiluð 23-25 júlí. Vestri mætti Ægi á Kerecis vellinum þann 17. júní, sá leikur var partur af 15. umferðinni og Vestri unnu 3-2.

Mynd: Vestri

Fyrir leik
Evrópuævintýri Vestra
Vestri byrjaði Evrópusögu sína í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar og fengu þar virkilega erfitt verkefni gegn aserska stórveldinu Qarabag. Einvígið fór 6-0 fyrir Qarabag, sem er nokkuð gott miðað við það að Vestri er í Lengjudeild og Qarabag spilaði í lokakeppni Meistaradeildar Evrópu síðasta vetur.

Vestri er þar með úr leik í forkeppni Evrópudeildarinnar, en þeir fá líflínu og detta niður í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Bikarmeistaraleiðin er næst besta Evrópuleið sem íslenskt lið getur fengið og hún felur í sér að minnsta kosti tvö einvígi, fer eftir árangri.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson



Fyrir leik
Sambandsdeildinn heilsar!
Góðan daginn kæra fólk og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik RFS frá Lettlandi og Vestra í annari umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Leikurinn fer af stað kl 16:30 og ásamt því að vera í textalýsingu er leikurinn sýndur í beinni útsendingu á SÝN Sport.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.