Valsarar mæta Íslendingaliði vinni þeir Bosníumennina - Mögulegir andstæðingar Stjörnunnar og Vestra

Mæta Zrinjski Mostar á fimmtudaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í stóru hlutverki hjá GAIS.

Mynd: GAIS

Stjarnan vann einvígið gegn Víkingi Götu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mæta Zrinjski Mostar á fimmtudaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur mætir annaðhvort sænska félaginu GAIS eða dönsku bikarmeisturunum í Nordsjælland vinni liðið einvígið gegn Zrinjski Mostar í 2. umferð Sambandsdeildarinnar.
Valsmenn fá Zrinjski Mostar í heimsókn á Hlíðarenda næstkomandi fimmtudag. Síðari leikurinn fer fram í Bosníu og Hersegóvínu viku síðar.

Róbert Frosti Þorkelsson er leikmaður GAIS og hefur hann verið í stóru hlutverki hjá liðinu á tímabilinu. Þá var Jóhann Berg Guðmundsson orðaður við félagið nýverið.
Hjá Nordsjælland leikur Daníel Ingi Jóhannesson, yngri bróðir Ísaks Bergmanns og sonur Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Daníel kom við sögu í tveimur af síðustu fimm leikjum liðsins á síðasta tímabili.
Þá fór Alexander Rafn Pálmason út til Nordsjælland í upphafi mánaðar eftir að hafa leikið fyrri hluta tímabils með KR í Bestu deildinni.
Ljóst hverjum Stjarnan og Vestri geta mætt
Vinni Stjarnan einvígið gegn finnska liðinu Ilves mæta Garðbæingar sigurvegaranum úr einvígi Rijeka (Tékkland) og Derry City (Norður-Írland).
Þá mætir Vestri lettnesku meisturunum í RFS á fimmtudag í 2. umferð. Sigurvegarinn úr því einvígi mætir sigurvegaranum úr einvígi Jablonec (Tékkland) og Varazdin (Króatía).
Spilað verður í 2. umferð nú á fimmtudaginn og viku síðar, 30. júlí. Leikdagarnir í 3. umferð Sambandsdeildarinnar eru 6. og 13. ágúst.