Fotbolti.net
Sigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
0 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Fyrir leik
Epicbet
Stuðlarnir sá Epic telur Grindavík aðeins líklegri með 2,37 í stuðul, meðan Leiknir eru með 2,86, og að leikurinn endi jafntefli er 3,60. Þetta er stórhættulegur leikur að setja á að mínu mati og ég læt þennan vera.
Fyrir leik
Leiknismenn
Flugið hefur heldur betur dalað á strákunum úr Breiðholtinu eftir mg fínan fyrri kafla móts. Leiknir í síðustu fjórum leikjum hafa þeir tapað þremur og eitt jafntefli. Leiknir samt sem áður eru bara í ágætis málum miðað við að þeim var spáð fallbaráttu í vetur eru 8 stigum frá fallsvæðinu en 7 stigum upp í umspilssæti, þannig það má segja að þeir geta bráðum bara fengið sér “smoke and a pancake”.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Grindvíkingar
Grindavík hafa svo sannarlega ekki staðið undir væntingum á þessu tímabili, og sitja í 10. Sæti aðeins þremur stigum fyrir ofan Völsung sem eru í fallsæti.
Grindavík hafa aðeins unnið tvo leikji á liðnu tímabili en hafa gert mikið af jafnteflum 8 talsins. Grindavík hafa núna misst tvo leikmenn í burtu í glugganum, Cristan Bjarma sem skrifaði undir hjá Stjörnunni og Sölva Snæ sem krotaði undir hjá KR. Mér finnst ólíklegt að það komi inn styrkingar inn þar sem gluggin lokar í kvöld
Fyrir leik
Þriðja liðið
Byrjum á því að renna yfir þriðja liðið,
Gunnar Oddur Hafliðason er á flautunni,
Antoníus Bjarki og Sveinn Ingi Sjá um flögginn góðu,
Þórður Ingi Guðjónsson er eftirlitsmaður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góða kvöldið!
Verið hjartanlega velkominn á Stakkarvíkurvöllinn í Grindavík. Þar sem mun fara fram leikur milli Grindavíkur og Leiknis í 16. Umferð Lengjudeildar karla.
Mynd: Alexander Tonini

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.