28.07.26 - 13:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sölvi Snær í KR (Staðfest) - Semur út 2030

Mynd: KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: KR
Sölvi Snær Ásgeirsson er genginn í raðir KR en hann kemur frá Grindavík. Hann skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning í Vesturbænum.
Sölvi er varnarmaður fæddur 2008 sem spilaði 25 Lengjudeildarleiki með Grindavík á árunum 2023-25. Hann var lánaður til LASK Linz í Austurríki í sumarglugganum í fyrra en meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum og sneri hann til baka til Grindavíkur í vor.
Hann hefur skorað tvö mörk í þrettán leikjum fyrir unglingalandsliðin.
Uppfært 14:12 eftir að KR kynnti Sölva sem nýjan leikmann félagsins.

TENGT EFNI
Sölvi Snær á leið í KR
Tilkynning KR
Sölvi Snær til KR!
Varnarmaðurinn efnilegi Sölvi Snær Ásgeirsson er genginn til liðs við KR frá Grindavík. Sölvi Snær, sem er 18 ára, skrifaði í gær undir fjögurra og hálfs árs samning við félagið!
Sölvi hefur leikið 25 leiki fyrir Grindavík, spilað 13 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim 2 mörk!
Við bjóðum Sölva Snæ velkominn í KR og hlökkum til að sjá hann í svörtu og hvítu!
Jafnframt þökkum við Grindvíkingum fyrir fagmannleg vinnubrögð í tengslum við félagsskiptin.
Tilkynning Grindavíkur
Sölvi Snær hefur gengið til liðs við KR.
Sölvi Snær hefur spilað fyrir Grindavík allan sinn yngri flokka feril og erum við Grindvíkingar afar stolt að sjá uppalinn leikmann fá tækifæri í deild þeirra bestu og óskum við honum góðs gengis á nýjum stað og um leið þökkum við fyrir árin saman.