Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta karla
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
0 - 0
Keflavík
Keflavík
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Fyrir leik
Keflavík búin að missa tvo lykilleikmenn fyrir leikinn
Eiður Orri Ragnarsson, leikmaður Keflavíkur, fékk tvö gul spjöld og þar með rautt í síðasta leik gegn KA, þegar Kaflavík vann 3-0. Fyrra spjaldið fékk hann fyrir að stöðva mögulega skyndisókn KA í fyrri hálfleik og seinna gula spjaldið fékk hann fyrir meintan leikaraskap. Í viðtali við Fotbolta.net fannst honum dómurinn vera ósanngjarn.

Miðvörðurinn Marin Brigic verður einnig í banni gegn Stjörnunni vegna uppsafnaðra spjalda. Brigic fékk gult í KA, snemma í seinni hálfleik fyrir peysutog.

Þetta eru tveir lykilleikmenn sem Keflavík hefur misst fyrir þennan leik, það verður fróðlegt að sjá hvort að þetta muni hafa áhrif á leikinn.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikmaður til þess að fylgjast með
Alpha Conteh hefur verið í lykilhlutverki hjá Keflavík í Bestu deildinni í sumar. Hann kom fyrst til Keflavíkur á láni frá Stjörnunni fyrr í sumar, en í sumarglugganum var hann keyptur til Keflavík. Conteh skrifaði undir samning sem gildir út tímabilið 2029.

Conteh hefur spilað 11 leiki, skorað 2 mörk og lagt upp 3 mörk. á síðasta ári fyrir Stjörnuna spilaði hann 7 leiki, skoraði engin mörk en lagði upp eitt mark.

Conteh er 26 ára kantmaður og kemur frá Síerra Leóne.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Conteh lenti í slagsmálum við Muhamed Alghoul í síðustu viku og að Muhamed nefbrotnaði. Sagt hefur líka að sættir hefðu ekki náðst. Halid Alghoul, yngri bróðir Muhamed Alghoul fór frá félaginu í vikunni. Í síðasta leik var Muhamed Alghoul ekki í hóp gegn KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Komnir/farnir
Stjarnan

Komnir
Árni Vilhjálmsson frá Sádi-Arabíu
Ari Leifsson frá Danmörku
Christian Bjarmi Alexandersson frá Grindavík
Sigurður Gunnar Jónsson frá HK úr láni

Farnir
Bjarki Hrafn Garðarsson til Dortmund
Haukur Örn Brink á láni til Aftureldingar
Alpha Conteh seldur til Keflavíkur (var á láni)

Keflavík

Komnir
Alpha Conteh keyptur frá Stjörnunni (var á láni)

Farnir
Davíð Helgi Aronsson á láni til Lyngby (var á láni frá Víkingi)
Guðjón Pétur Stefánsson í Leikni
Edon Osmani í Víði
Halid Alghoul
Mirsad Basic
Fyrir leik
Besta Deildin heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa beina lýsingu frá leik Stjörnunnar og Keflavíkur. Leikurinn hefst kl 18:00 og er á heimavelli Stjörnunnar, Samsungvellinum. Við vonum eftir stemmingu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.