Fotbolti.net
Besta deildin
Helgi Inguson
Besta karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
14 gráður og smá gola
Valur
Valur
4 - 4
KA
KA
0 - 15' Jakob Snær Árnason0 - 216' Hallgrímur Mar SteingrímssonHólmar Örn Eyjólfsson 21'1 - 21 - 339' Jakob Snær ÁrnasonPatrick Pedersen 61'2 - 3Patrick Pedersen 67'3 - 33 - 478' Hallgrímur Mar SteingrímssonTryggvi Hrafn Haraldsson 83'4 - 4
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
Þvílíkur leikur
Schram bjargar Valsmönnum undir restina. Samuel Kroon er illa dekkaður og fær frían skalla en Schram ver frá honum.

Þetta var magnaður leikur hér á Hlíðarenda. Viðtöl og skýrsla væntanleg
95. mín
KA fær hornspyrnu, síðasti séns
93. mín
Sláin!
Hörður Ingi skallar boltann í þverslánna eftir sendingu frá Jónatan
93. mín
Valur fær hornspyrnu
90. mín
Fjórar mínútur í uppbót
86. mín
Næstum því
Lúkas Logi með lúmskt skot í nærhornið sem Ívar ver. Vá hvað ég sá hann inni þarna
85. mín
Aukaspyrna frá Hallgrími Mar fer rétt yfir markið
Valur
83. mín
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA?!?

Tryggvi Hrafn Haraldsson (stoðsending: Lúkas Logi Heimisson)

Lúkas Logi gerir frábærlega. Hann kemur boltanum á Tryggvi inn á teig gestanna sem á frábært skot í fjærhornið
81. mín
Nakkim með fast skot sem Ívar ver vel. Þarna var hætta
Valur
79. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtPatrick Pedersen
Valur
79. mín
InnKristófer Dagur Arnarsson
ÚtBirkir Heimisson
KA
78. mín
Aftur leiða Akureyringar!

Hallgrímur Mar Steingrímsson (stoðsending: Diego Montiel)

Diego Montiel með sendingu inn á teig sem fer af Valsmanni og upp í loftið. Hallgrímur lúrir á fjærstöng og á fast viðstöðulaust skot beint í nærhornið.
73. mín
Aukaspyrna
Tryggvi með frábært skot úr aukaspyrnunni. Ívar Arnbro þarf að hafa sig allan til þess að verja þetta. Valur fær hornspyrnu en Nakkim nær ekki að skalla boltann niður
KA
72. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtJeppe Pedersen
KA
72. mín
InnMarkús Máni Pétursson
ÚtAdam Ægir Pálsson
Valur
67. mín
VALSMENN JAFNA

Patrick Pedersen (stoðsending: Hólmar Örn Eyjólfsson)

Aftur kemur markið eftir langt innkast. Samúel grýtir boltanum inn í teig. Boltinn fer af bakinu á Hólmari og viti menn Patrick Pedersen var fyrstur til boltans.

Haddi er eflaust ósáttur með þennan varnarleik
Valur
61. mín
MAAAARK!

Patrick Pedersen (stoðsending: Samúel Kári Friðjónsson)

Samúel Kári tekur langt innkast inn á teig. Hólmar er í baráttunni og spurning hvort hann nái snertingu á boltann, mér sýnist ekki. Boltinn skoppar a.m.k. á fjærstöng þar sem Patrick lúrir og setur hann í svo gott sem autt markið.
KA
59. mín
InnJakob Héðinn Róbertsson
ÚtGuðjón Ernir Hrafnkelsson
Valur
59. mín
InnShkelzen Veseli
ÚtDagur Orri Garðarsson
59. mín
Dauðafæri
Valsmenn sundurspila KA vörnina. Tryggvi leggur hann á Jónatan sem klúðrar í frábæru færi
57. mín
Guðjón Ernir fær aðhlynningu
52. mín
Þversláin!
Flott aukaspyrna hjá Tryggva. Boltinn fer í þverslánna, erfitt að meta hvort Ívar hafi verið með þetta í markinu
KA
52. mín
InnDiego Montiel
ÚtJakob Snær Árnason
51. mín
Valur fær aukaspyrnu á hættulegum stað
Valur
46. mín
InnHörður Ingi Gunnarsson
ÚtMyles A Veldman
Brazzel gerir breytingu í hálfleik
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks
Mynd: Fótbolti.net

45. mín
Gulir og glaðir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Helgi Mikael flautar til hálfleiks á Hlíðarenda. Flottur fyrri hálfleikur hjá gestunum en Chris Brazzel þarf að ræða við sína menn sem hafa ekki verið nægilega góðir. Tökum okkur fimmtán
45. mín
+1
Veldman sparkar Hallgrím Mar niður. KA fær aukaspyrnu í fínni fyrirgjafarstöðu en ekkert verður úr þessu
45. mín
Einni mínútu bætt við
KA
39. mín
Frábær sókn!!!

Jakob Snær Árnason (stoðsending: Kári Gautason)

KA leysir frábærlega úr slakri pressu Valsmanna. KA er komið í fimm á fjórir stöðu og Adam Ægir velur rétt. Hann rennir honum út til hægri á Kára sem kemur með fastan bolta meðfram jörðinni inn í teig. Jakob Snær klárar færið svo vel.
35. mín
Frábær varsla!
Jónatan keyrir upp hægri kantinn og sendir fyrir á Dag Orra. Hann nær mjög fínu skoti á markið en Ívar sér við honum
34. mín
Aftur bjargar Kári
Góð sending á Dag Orra en Kári nær að komast fyrir skot hans, góð tækling
30. mín
Rangstöðumark
Samuel Kroon með sendingu inn á teig á Hallgrím Mar. Hann á laust skot að marki sem Adam Ægir kemst inn í og nær að pota boltanum inn. Adam er flaggaður rangstæður
29. mín
Valur betra liðið þessa stundina
Samúel Kári tekur langt innkast beint á Hólmar sem flikkar boltanum á fjærstöng. Patrick Pedersen skallar hins vegar yfir
25. mín
Hætta
Nakkim nær ekki til boltans í kjörstöðu. Þarna hefði Valur getað jafnað metin
Valur
21. mín
Hólmar minnkar muninn!

Hólmar Örn Eyjólfsson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)

Boltinn hrekkur aftur til Tryggva eftir hornspyrnu. Hann á frábæra fyrirgjöf með vinstri, beint á pönnuna á Hólmari. KA-maður lá eftir en mér sýndist ekki vera neitt á þetta.
KA
16. mín
Þetta skrifast á Schram

Hallgrímur Mar Steingrímsson (stoðsending: Jeppe Pedersen)

Frederik Schram í alls konar vandræðum. Hann er kominn út úr markinu og kemur Myles Veldman í vandræði sem tapar boltanum. Schram nær þó að skila sér í markið áður en Hallgrímur Mar nær skoti af 25 metra færi. Skotið er ekki fast og ekki út við stöng en fer undir Schram og í netið.
13. mín
Frábær tækling
Tryggvi er kominn í frábæra stöðu en hann nær ekki góðri snertingu á boltann og þá er Kári Gautason mættur. Mikilvæg tækling hjá honum í eigin teig
11. mín
Stuðningsmenn KA láta heyra í sér
9. mín
Birkir með fasta fyrirgjöf sem ratar á pönnuna á Patrick en hann nær ekki að stýra knettinum
KA
5. mín
KA komið yfir!

Jakob Snær Árnason (stoðsending: Adam Ægir Pálsson)

Góð sókn hjá KA. Adam Ægir skiptir boltanum yfir á Jakob Snæ í teig heimamanna. Hann leikur á Birki og setur boltann í nærhornið
4. mín
Jónatan með fyrstu skottilraun leiksins, fínn undirbúningur hjá Lúkasi Loga
1. mín
Leikur hafinn
Patrick Pedersen sparkar þessu af stað
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völl og Played-A-Live með Safari Duo ómar í græjunum. Áfram fótbolti!
Fyrir leik
KA án fyrirliðans
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi!
Brazell, þjálfari Vals, gerir tvær breytingar frá leiknum gegn Nordsjælland. Framherjarnir Dagur Orri Garðarsson og Patrick Pedersen snúa aftur í liðið og þeir Jakob Franz Pálsson og Hörður Ingi Gunnarsson taka sér sæti á bekknum. Bjarni Mark Antonsson er ekki í leikmannahópi Vals í dag en Guðmundur Brynjar Wehmeier, sem fæddur er 2012, er á bekknum.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir þrjár breytingar frá leiknum gegn FH. Hans Viktor Guðmundsson, fyrirliði KA, tekur út leikbann í dag og Birgir Baldvinsson ber því fyrirliðabandið í dag. Kári Gautason, Jeppe Pedersen og Mikael Breki Þórðarson koma inn. Valdimar Logi Sævarsson og Jakob Héðinn Róbertsson taka sér sæti á bekknum. Það vekur athygli að enginn náttúrulegur miðvörður er í liði KA í dag en líkur eru á því að þeir Guðjón Ernir og Birgir verði í hjarta varnarinnar og mögulega Andre Römer með þeim. Það kemur allt í ljós þegar flautað verður til leiks. Miðvörðurinn Markús Máni Pétursson er á bekknum ásamt Danijel Dejan Djuric sem byrjar þriðja leikinn í röð á bekknum.
Fyrir leik
Sjáðu mörkin úr hinum leikjum umferðarinnar
Fyrir leik
Spámaðurinn
Karl Ágúst Karlsson, leikmaður HK, hefur leikið vel í sumar og var fenginn til þess að spá í 19. umferðina.

Valur 2-1 KA
Kári Gauta kemur KA mönnum yfir með frábæru marki en Dagur Orri svarar og setur 2 mörk og vinnur leikinn fyrir þá.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Heimamenn í harðri baráttu
Valsmenn unnu sinn fyrsta deildarleik undir stjórn Chris Brazzel í síðustu umferð. Fyrir sigurinn gegn Breiðabliki hafði liðið tapað fjórum deildarleikjum í röð. Valur er í 7. sæti með 22 stig og er í harðri baráttu um að enda í efra hluta deildarinnar eftir tvískiptingu. Valur tók þátt í Evrópu í sumar en féll úr forkeppni Sambandsdeildarinnar á dögunum eftir stórt tap gegn Nordsjælland.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Gestirnir í fallsæti
KA hefur átt vonbrigðar tímabil. Eftir að hafa styrkt sig í vetur var stefnan sett á topp 6 á Brekkunni. Gengið hefur hins vegar verið slakt og KA situr í 11. sæti deildarinnar með 15 stig. Liðið hefur einungis unnið einn leik af síðustu 11 og staða KA hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Heitt undir Hadda?
Gengi KA hefur verið slæmt og það ætti því að vera óhætt að segja að sæti Hallgríms Jónassonar sé orðið heitt og eru háværar sögusagnir um að KA sé að líta í kringum sig.

Sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson greindi frá gróusögu að norðan á X-síðu sinni þar sem því er haldið fram að KA hafi þegar gengið frá ráðningu á manni sem taki við liðinu að tímabilinu loknu.

Fótbolti.net setti saman lista yfir átta menn sem hafa verið orðaðir við þjálfarasætið.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Þriðja liðið
Helgi Mikael Jónasson dæmir leikinn. Honum til halds og trausts verða þeir Birkir Sigurðarson og Jovan Subic á flöggunum. Viðar Helgason er eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hlíðarendi heilsar
Heil og sæl öllsömul og verið þið hjartanlega velkomin í textalýsingu þráðbeint frá Hlíðarenda. Hér á N1-vellinum mun Valur taka á móti KA í 19. umferð Bestu deildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

mánudagur 17. ágúst
18:00 Valur-KA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Fram-Stjarnan (Lambhagavöllurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.