Fotbolti.net
Einar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
Sól og blíða eins og alltaf á Húsavík
Völsungur
Völsungur
2 - 0
Vestri
Vestri
Inigo Albizuri Arruti 80'1 - 0Elfar Árni Aðalsteinsson (víti) 84'2 - 0
Dómari: Sveinn Arnarsson
Leik lokið!
Leik lokið með frábærum sigri Völsungs
Þetta var alvöru baráttusigur heimamanna. Frábær lokakafli þeirra skóp þennan sigur eftir að hafa þurft að hafa verulega fyrir hlutunum.
100. mín
Sjúkrabíllinn er mættur að sækja Marvin sem virðist verulega slasaður. Við óskum honum góðs bata.
Völsungur
98. mín
InnAndri V. Bergmann Steingrímsson
ÚtSergio Parla Garcia
Völsungur
95. mín
InnTryggvi Grani Jóhannsson
ÚtElfar Árni Aðalsteinsson
Elfar Árni fer útaf eftir gott dagsverk. Síðasta sem hann gerði var að böðlast í gegnum þrjá varnarmann og var svo tekinn niður. Hefði hæglega getað fengið annað víti þarna.
93. mín
Leikurinn er að hefjast aftur. Breki Þór Hermannsson er kominn í mark gestanna. Það verður langur uppbótartími. Marvin er borin í burtu en er blessunarlega með meðvitund.
87. mín
Eftir hornspyrnu Völsungs verður harður árekstur milli Marvins í marki Vestra og leikmanns Völsungs. Lítur frekar illa út fyrir Marvin. Hræddur um að það sé sjúkrabíll á leiðinni.
86. mín
Elfar svo nálægt því að ganga frá þessu
Heimamenn eru að keyra yfir gestina! Elfar fékk dauðafæri til að klára þetta endanlega en hann skýtur rétt framhjá!
Völsungur
84. mín
Elfar tvöfaldar forystuna!

Elfar Árni Aðalsteinsson

Elfar fékk góða sendingu innfyrir og var tekinn niður þegar hann ætlaði að láta vaða. Réttilega dæmt víti sem Elfar tekur sjálfur og skorar örugglega.
83. mín
Völsungur fær víti!!
Völsungur
80. mín
Heimamenn leiða!!!!

Inigo Albizuri Arruti (stoðsending: Sergio Parla Garcia)

Sergio Parla tekur hornspyrnu beint á pönnuna á Inigo Albizuri sem stangar boltann inn á fjærstönginni.
79. mín
Johannes Selvén með fínasta langskot rétt framhjá.
Vestri
72. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtElmar Atli Garðarsson
Vestramenn gera líka þrefalda skiptingu.
Vestri
72. mín
InnMarcos Campos Fernandez Marcote
ÚtGunnar Jónas Hauksson
Vestri
72. mín
InnBirkir Eydal
ÚtGuðmundur Arnar Svavarsson
70. mín
Fernando í dauðafæri!
Elfar Árni sendir Fernando aleinan í gegn þar sem hann er í algeru dauðafæri en hann skýtur framhjá!
Þetta var alvöru dauðafæri!
68. mín
Frábær skyndisókn hjá heimamönnum. Eftir fyrirgjöf spila Elfar, Sergio og Gestur sín á milli sem endar með ágætisfæri fyrir Sergio sem skýtur þó yfir.
Völsungur
65. mín
Gult spjald

Elfar Árni Aðalsteinsson

Fer í markmanninn og fær gult.
Völsungur
63. mín
InnModoumatarr Mbye
ÚtTómas Bjarni Baldursson
Vestramenn eru að taka yfir leikinn og Borja þjálfari Völsungs gerir þrefalda breytingu.
Völsungur
63. mín
InnGestur Aron Sörensson
ÚtElmar Örn Guðmundsson
Völsungur
63. mín
InnFernando Jimenez Arranz
ÚtDagbjartur Búi Davíðsson
Vestri
61. mín
InnChriss-Albin Mörfelt
ÚtEmmanuel Agyeman Duah
Vestri
60. mín
Gult spjald

Guðmundur Arnar Svavarsson

Guðmundur tekur Dagbjart niður og fær réttilega gult
58. mín
Arnar Pálmi og Elfar spila vel saman útá kanti og Arnar kemst inn fyrir vörn Vestra og á fyrirgjöf/skot sem endar í netinu en hann er flaggaður rangstæður.
57. mín
Balde í dauðafæri!
Vörn Völsungs er alveg útá þekju og Balde sleppur aleinn í gegn en skýtur framhjá úr algeru dauðafæri.
55. mín
Gunnar Jónas fær hættulegasta færi leiksins fyrir gestina. Vinnur boltann frábærlega af Xabi og kemst inná teig í ágætisfæri en skot hans fer framhjá fjærstönginni.
Vestri
50. mín
Gult spjald

Ibrahima Balde

Balde stígur harkalega á Tómas og fær gult.
49. mín
Elfar Árni á góðan skalla að marki eftir sendingu Elmars en hann er rangstæður.
Vestri
48. mín
InnJohannes Selvén
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
Þórður getur ekki haldið áfram og Johannes Selvén kemur inn í hans stað.
46. mín
Seinni hálfeikur byrjar á góðum spretti hjá Þórði Gunnari en Xabi verst mjög vel. Þórður liggur þó meiddur eftir og þarf aðstoð sjúkraþjálfara.
46. mín
Leikur hafinn
Sveinn flautar seinni hálfleikinn í gang. Það er mjög vel mætt hér á völlinn í dag enda rjómablíða á Húsavík.
45. mín
Hálfleikur
Það gerðist bara nákvæmlega ekkert fréttnæmt hérna síðustu 10 mínúturnar eða svo. Það er hart barist og mikið um einvígi en leikurinn er mjög lokaður og ekkert um færi. Vonandi fáum við aðeins meira líf í seinni hálfleik.
37. mín
Það er mikið jafnræði með liðunum þessa stundina og hvorugt liðið nær að gera sig líklega.
32. mín
Tómas Bjarni á gott samspil við Juan úti hægri megin, Tómas tekur góða gabbhreyfingu og lætur vaða en skot hans er slakt.
28. mín
Verulega illa framkvæmd aukaspyrnu hjá Völsungum sem endar með stórhættulegri skyndisókn Vestra sem ekkert kemur þó úr.
27. mín
Heimamenn eru farnir að bíta aðeins frá sér. Fá nú aukaspyrnu á hættulegum stað.
21. mín
Vestramenn eru frekar að taka yfir leikinn og eru að setja pressu á heimamenn sem áttu þó fína skyndisókn sem þar sem Arnar Pálmi komst í fína stöðu en náði ekki að koma boltanum fyrir.
14. mín
Völsungar hársbreidd frá að ýta boltanum yfir línuna eftir hornspyrna en gestirnir bjarga á síðustu stundu. Heimamenn fá aðra hornspyrnu sem ekkert kemur úr.
12. mín
Hornspyrna Guðmundar er fín en Balde skallar yfir í erfiðri stöðu.
11. mín
Nú fá gestirnir sína fyrstu hornspyrnu.
8. mín
Elfar Árni nær skalla að marki en laus var hann og boltinn dettur ofan á þaknetið.
7. mín
Heimamenn fá fyrstu hornspyrnu leiksins
3. mín
Gestirnir byrja þetta betur. Eru að vinna einvígin og eru að setja smá pressu á heimamenn.
1. mín
Leikur hafinn
Sveinn dómari flautar leikinn á hér í blíðunni á Húsavík.
Fyrir leik
Spáin
Haukur Andri Haraldsson er spámaður vikunnar á fotbolti.net og þetta hafði hann um þennan leik að segja:
Völsungur 1 - 1 Vestri (18:00 í kvöld)
"Dómarinn verður í aðalhlutverki í þessum leik. Mikið af brotum og spjöldum líta dagsins ljós og lítið flæði verður í leiknum. Bæði lið skora eftir vítaspyrnu. Breki Þór neglir á mitt markið og skorar. Marvin Darri mun verja vítið hinum megin en því miður fær Völsungur frákastið og jafnar."

Haukur Andri spáir í 19. umferð Lengjudeildarinnar
Fyrir leik
Gengi liðanna
Heimamenn í Völsungi hafa heldur betur hrokkið í gang og eru með 3 sigra í síðustu 4 leikjum. Þeir unnu sinn fyrsta útileik í síðustu umferð er þeir gerðu góða ferð til Þorlákshafnar.
Völsungur er í 11. sæti deildarinnar með 17 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.

Gengi Vestra hefur verið frekar slakt undanfarið. Þeir unnu vissulega 1-0 sigur á ÍR í síðustu umferð en þar á undan höfðu þeir leikið 10 leiki í öllum keppnum án sigurs.
Ísfirðingar sigla lygnan sjó um miðja deild með 24 stig.
Fyrir leik
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá GPG vellinum á Húsavík þar sem Vestri frá Ísafirði er kominn í heimsókn.
Leikurinn er í 19. umferð Lengjudeildar karla.

mánudagur 17. ágúst
18:00 Völsungur-Vestri (GPG völlurinn)
18:00 Leiknir R.-Ægir (Leiknisvöllur)
18:00 ÍR-Njarðvík (Þarfaþingsvöllurinn)
18:00 Grindavík-Grótta (Stakkavíkurvöllur)
19:15 Þróttur R.-Fylkir (AVIS völlurinn)
19:15 Afturelding-HK (Malbikstöðin að Varmá)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.