Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Lengjudeild karla
Leiknisvöllur
Leiknir R.
Leiknir R.
6 - 1
Ægir
Ægir
Axel Freyr Harðarson 10'1 - 0Anton Fannar Kjartansson 16'2 - 0Axel Freyr Harðarson 24'3 - 0Kári Steinn Hlífarsson 39'4 - 04 - 141' Harley Bryn WillardAxel Freyr Harðarson 58'5 - 1Axel Örn Kjartansson 70'6 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Himininn, hafið og Ægir er fallinn

Hvað réði úrslitum?

Leiknir hafði gríðarlega yfirburði. Það var himinn og haf milli þessara liða alveg frá upphafsflauti. Ægismenn hafa verið í frjálsu falli og trúin innan liðsins var engin.

Bestu leikmenn

1. Axel Freyr Harðarson - Leiknir

Bjó til vandræði fyrir Ægi frá fyrstu mínútu og kláraði vinnudaginn með þrennu.

2. Daði Bærings Halldórsson - Leiknir

Fyrirliðinn gríðarlega mikilvægur og hefur lagt sitt að mörkum í að skapa mörk.

Atvikið

Kári Steinn vann boltann og sá að markvörður Ægis var kominn vel út úr markinu, lét vaða rétt fyrir utan miðjuhringinn og boltinn fór í háan boga og endaði í markinu! Alvöru þvælumark.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknir kemur sér fjær fallsætunum og siglir nokkuð lygnan sjó í söunda sætinu en fallhættan er samt enn til staðar. Ægismenn eru langneðstir með átta stig og eru formlega fallnir aftur niður í 2. deild.

Vondur dagur

Enn einn vondi dagurinn fyrir Ægismenn sem eru formlega fallnir niður í 2. deild eftir sjöunda tapleikinn í röð. Þeir byrjuðu tímabilið á nokkuð öflugan hátt en það var fljótt að fjara undan því.

Dómarinn - 9

Twana og hans teymi fóru leikandi létt í gegnum þennan leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.