Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
2 - 2
FH
FH
0 - 112' Helena Maree ErringtonSóley Edda Ingadóttir 14'1 - 11 - 215' Birna Kristín BjörnsdóttirHilmar Andrew McShane 82'Lillý Rut Hlynsdóttir 93'2 - 2
Dómari: Reynir Ingi Finnsson
Leik lokið!
Ótrúlegar senur, mjög skemmtilegur leikur. Ég segi bara takk fyrir mig!

Matti, þjálfari Vals er eitthvað að ræða við dómarann. Vill líklega fá fleiri útskýringar vegna rauða spjaldsins.
Valur
93. mín
MAAAARK!

Lillý Rut Hlynsdóttir

Innkst fyrir Val, Hawkins fær boltan og snýr framhjá varnarmanninum. Hawkins sendir fram fyrir markið á Sonju sem skýtur en skotið fer beint í varnarmann. Boltinn dettur þá á Lillý sem skýtur í fjær hornið.
92. mín
Birna fær boltann fyrir utan teiginn og lætur vaða, skotið fer yfir markið.
90. mín
+5 í uppbótar.
90. mín
Hætta
Fyrirgjöf inn í teig á Sonju sem er ein, skallinn er langt yfir markið, hún verður að gera betur.
89. mín
Elín Björg fær boltann við hliðarlínuna og hleypur upp kantinn í áttina að teig Vals, en hún missir svo boltann frá sér. Þarna var tækifæri til þess að klára leikinn.
86. mín
Elín Björg fær boltann fyrir utan teiginn og skýtur framhjá.
85. mín
Unnur á hægri kantinum, kemur með hættuela sendingu fram fyrir markið sem enginn nær að skora úr.
Valur
82. mín
Rautt spjald

Hilmar Andrew McShane

Hilmar í þjáflarateymi Vals fær rautt fyrir að kvarta. Valur braut af sér í sókn og hann var ekki ánægður með það. Matti var líka vel pirraður á brotinu, ég hélt fyrst að hann myndi fá rautt eða gult.
FH
81. mín
InnRagnheiður Th. Skúladóttir
ÚtHelena Maree Errington
80. mín
Sláin
Hættuleg aukaspyrna fyrir FH, gott tækifæri til þess að skora. Errington lætur vaða, beint í slána og út.
Valur
79. mín
Gult spjald

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir

74. mín
Jónína keyrir inn í teiginn á vinstri kantinum, skýtur í fjærhornið en skotið er í varnarmann.
Valur
73. mín
InnNadía Atladóttir
ÚtMargrét Brynja Kristinsdóttir
70. mín
Dauðafæri
Hár bolti inn í teig FH, boltinn dettur á Hawkins sem skýtur framhjá markinu. Hawkins er fyrir framan markið og á að skora.
69. mín
Horn fyrir FH, sendingin fer á Sandoval sem skýtur yfir markið.
Valur
66. mín
InnSonja Björg Sigurðardóttir
ÚtKolbrá Una Kristinsdóttir
Valur
66. mín
InnKimberley Dóra Hjálmarsdóttir
ÚtÍsabella Sara Tryggvadóttir
FH
66. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtNia Raisa Christopher
64. mín
Errington með langa aukaspyrnu inn í teig Vals, en heimakonur ná að skalla boltanum burt.
61. mín
Hrönn fær boltann rétt fyrir utan teig, skotið fer rétt framjá.
FH
60. mín
InnMackenzie Elyze Smith
ÚtHafrún Birna Helgadóttir
FH
60. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
FH
60. mín
InnHrönn Haraldsdóttir
ÚtAndrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
59. mín
Sláin
Hár bolti yfir vörn FH, Raghneiður fær boltann og skýtur beint í slána.
Valur
57. mín
InnArnfríður Auður Arnarsdóttir
ÚtGlódís María Gunnarsdóttir
56. mín
Ótrúleg Varsla
Hár bolti á Hildi inn í teig Vals, lætur boltann skoppa og skýtur svo á markið. Hildur er fyrir framan Tinnu en hún Tinna ver með fætinum. Hildur verður að skora, en samt órtúleg varsla.
55. mín
Ragheiður tekur aukaspyrnu á vinstri kantinum, veit ekki hvort að þetta var sending eða skot en boltinn fer beint á markmanninn.
53. mín
Hættaaa
Boltinn dettur á Christopher inn í teig en hún nær ekki skotinu, Tinna tekur svo boltann upp.
52. mín
Hafrún reynir að komast framhjá Bryndísi en hún ýtir henni bara burt og fær markspyrnu.
49. mín
Hawkins fer í tæklingu á Jónínu, þetta virðist hafa verið vont. Hawkins skilur ekki dómarann sem dæmir brot, ég er sammála henni.
46. mín
Seinni hálfleikur
Gestirnir byrja.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikurinn er mættur, skemmtilegar 3 mínútur þar sem við fengum þrjú mörk og eitt dauðafæri. Nóg að gera, öll frábær mörk líka. Sjáumst eftir korter.
45. mín
+1
Valur fær horn, Sóley tekur hornið, beint á Hawkins sem nær erfiðum skalla í varnarmann. Boltinn dettur á Raghneiði sem reynir að skjóta í markið en skotið fer líka í varnarmann.
45. mín
+2 í uppbótar.
43. mín
Dauðafæri
Hár bolti yfir vörn FH, Hawkins fær boltann og ætlar að pota framhjá markmanninum en skotið fer líka framhjá markinu.
42. mín
Sigurborg hleypur út úr markinu, sparkar boktanum burt sen sendingin fer ekki langt. Anna Heiða kemur svo boltanum burt.
40. mín
Hætta
Skot fyrir utan teig frá Hafrúni Birnu, Tinna þarf að kýla boltann yfir markið.
39. mín
FH í veseni
Slakur bolti til baka frá Jónínu á Sigurborg í markinu, Sigurborg sparkar boltanum burt en beint í Hawkins sem er að setja pressu á FH vörnina.
37. mín
Málfríður er kominn aftur inn á.
36. mín
Málfríður þarf að fara út af og fá aðhlynningu. FH tekur fund. Valur er með 10 leikmenn inn á núna.
34. mín
Valur fær horn, FH skallar burt og komast í skyndisókn. Hildur og Nia eru tvær á móti einni, sem er Málfríður. Hildur kemur með slaka sendingu til þess að setja Niu í gegn og Málfríður kemur boltanum burt.
30. mín
Hætta
Margrét Brynja keyrir inn í teiginn, lætur vaða en skotið fer í varnarmann.
26. mín
Sóley Edda er að taka horn fyrir Val, skorar hún?

Nei.
23. mín
Ingibjörg er á hægri kantinum, kemur með sendingu inn í teiginn sem fer af varnarmanni. Boltinn dettur á Lillý sem kemur honum burt.
21. mín
Hafrún tekur skotið fyrir utan teiginn, Tinna ver boltann en hann dettur á Ingibjörgu sem tekur skotið en varnarmaður fer fyrir skotið.
19. mín
Hafrún kemur með sendingu inn í teiginn, Nia Raisa reynir að komast í boltann en hún nær ekki að snerta boltann.
FH
15. mín
Hvað er að gerast!!!

Birna Kristín Björnsdóttir (stoðsending: Helena Maree Errington)

Ég var ekki einu sinni búin að ná að lýsa fyrsta markinu það er algjört markaregn á Hlíðarenda.

Helena fær boltann við D bogann og tekur tvö skæri, sendir á Birnu sem er fyrir utan teiginn og hún lætur vaða beint í fjærhornið. Tinna stóð eins og stytta.
Valur
14. mín
MAAAARK!

Sóley Edda Ingadóttir

Valskonur fá horn eftir dauðafærið sitt og Sóley lætur vaða beint úr hornspyrnunni, Sigurborg verður að gera betur í markinu.
13. mín
Dauðafæriii
Margrét Brynja sleppur í gegn, kemst framhjá Sigurborg í markinu og er með markið fyrir framan sig en skotið er varið af línunni, senur!
FH
12. mín
MAAAARK!

Helena Maree Errington (stoðsending: Ingibjörg Magnúsdóttir)

Ingibjörg með sendingu í gegnum vörn Vals, Helena nær boltanum og fer framhjá Tinnu í markinu. Vörn Vals er sofandi og lætur Helenu hlaupa framhjá sér, fatta ekki neitt og byrja ekki að hlaupa til baka fyrr en hún er að fara sóla Tinnu í markinu.
11. mín
Dauðafæri
Hafrún Birna er á vinstri kantinum, kemur með sendingu inn í teiginn á Hildi, þetta var erfitt færi en hún nær skotinu. Hún var alveg ein og enginn varnarmaður var nálægt.
9. mín
Jónína í veseni, of lengi á boltanum og Hawkins nær boltanum af henni, en Birna nær svo boltanum og kemur honum burt.
7. mín
Sóley Edda sleppur í gegn á vinstri kantinum en dómarinn setur upp flaggið.
4. mín
FH í veseni
Skrýtinn bolti frá Jónínu til baka á Önnu Heiðu, þar sem boltinn er hár en Anna Heiða nær að koma boltanum burt áður en heimakonur ná boltanum af vörn FH.
1. mín
Fyrsta skot leiksins
FH fær fyrsta skot leiksins, Hafrún Helga er á vinstri kantinum, cuttar inn og skýtur í áttina að fjærhorninu en Tinna ver skotið.
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur byrja þessa veislu!
Fyrir leik
Leikmennirnir eru komnir inn á völlin í sinni uppáhalds treyju til þess að sýna börnum með krabbamein stuðning. Nóg af mismunandi treyjum, Andrea Rán er mætt í Club America treyju frá Mexíkó og Matti þjálfari er í Newcastle treyju.
Fyrir leik
Áhugavert
Valsarar eru ekki með boltasækjara í dag frá sínum röðum og þurfa að fá boltasækjara frá FH, er það ekki merki um þrot.
Fyrir leik
Umferðin
Fjórir leikir voru spilaðir þann 29. ágúst. Valur FH er síðasti leikur umferðarinnar.

Fram 3-2 Stjarnan
Víkingur R. 3-0 Grindavík/Njarðvík
Þróttur R. 0-0Þór/KA
Breiðablik 1-2 ÍBV
Fyrir leik
Tvö töp í röð
FH var lengi á toppi deildarinnar en undanfarið hefur aðeins dregið úr gengi liðsins. FH hefur tapað síðustu tveimur leikjum, gegn Breiðablik og Víkingi, og skoraði ekki mark í hvorugum leiknum. Það er því mikilvægt fyrir FH að ná í sigur í þessum leik ef liðið ætlar að narta í hælana á Breiðabliki, sem situr í 1. sæti.

FH er í 2. sæti deildarinnar með tíu sigra, þrjú jafntefli og þrjú töp. Liðið er með 33 stig, en Breiðablik er með 36 stig. FH er með lakari markatölu en munurinn er aðeins tvö mörk. FH getur því komist í toppsætið að leik loknum ef liðið vinnur með þriggja marka mun, eftir að Breiðablik missteig sig gegn ÍBV og töpuðu 1-2.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heimakonur í fallsæti
Tímabilið hjá Val hefur ekki verið gott. Liðið situr í botnsætinu með 16 stig eftir fjóra sigra, fjögur jafntefli og átta töp. Aðeins þrjú stig skilja Val að frá 8. sætinu, sem er ekki fallsæti, en Fram situr þar með 19 stig.

Valur á tvo leiki eftir, þennan leik og gegn Grindavík/Njarðvík í lokaumferð fyrir skiptingu. Fallbaráttan getur því orðið æsispennandi þegar upp verður staðið.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þriðja liðið
Reynir Ingi Finnsson er með flautuna, Bryngeir Valdimarsson og Daníel Örn Arnarson verða með flöggin, Óli Njáll Ingólfsson er með skiltið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Vals og FH í 18. umferð Bestu Deild kvenna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.