Fotbolti.net
Besta deildin
Magnús Atlason
Besta karla
Lambhagavöllurinn
11°, logn, bjart yfir og mikil stemming.
Fram
Fram
2 - 2
KA
KA
0 - 114' Guðjón Ernir HrafnkelssonKyle Douglas Mc Lagan 33'1 - 11 - 250' Adam Ægir PálssonKristófer Konráðsson 80'2 - 2
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Leik lokið!
2-2 niðurstaðan hér í dag. Sterkt stig fyrir KA í fallbaráttunni en Framarar líklega ósáttir. Viðtöl og skýrsla detta inn seinna í kvöld. Ég þakka fyrir mig.
90. mín
Aukaspyrna í fyrirgjafastöðu hjá Fram
Barningur í teignum en þetta sleppur fyrir horn fyrir KA.
90. mín
Að lágmarki þremur mínútum bætt við
89. mín
ÚFF
Ægir Jarl fær boltann óvaldaður í teignum og tekur skotið í fyrsta en boltinn framhjá markinu. Þarna hafði hann mátt leyfa sér að eina snertingu áður en hann lætur vaða.

Algjört dauðafæri.
85. mín
Fáum við sigurmark í þetta?
84. mín
Kristófer stendur yfir boltanum fullur sjálfstrausts eftir markið. Skotið í nærhornið en rétt framhjá.
KA
84. mín
Gult spjald

Mikael Breki Þórðarson

Brýtur á sér rétt fyrir utan teig.
KA
82. mín
InnDiego Montiel
ÚtAdam Ægir Pálsson
Fram
80. mín
VAAAAÁÁÁÁÁ

Kristófer Konráðsson

Kristófer hleður í skot fyrir utan teig, boltinn smellur í slánni, niður í jörðina og svo upp í þaknetið aftur. Þvílík negla.

Allt jafnt á nýjan leik.
80. mín
Framarar kalla eftir víti en Gunnar segir nei. Áhorfendur ósáttir.
78. mín
DDD reynir hjólhestaspyrnu fyrir utan teig en boltinn í fangið á Ívari. Skemmtileg tilraun og ekki sú versta.
Fram
77. mín
InnJakob Byström
ÚtRóbert Hauksson
75. mín
Fínasta tilraun hjá Snorra en boltinn yfir markið.
73. mín
Framarar hafa legið á KA þessar síðustu mínútur og það verður að teljast líklegt að það verði saga þessa leiks.
72. mín
Stórhættuleg sókn Framara en varnarmenn KA henda sér fyrir öll skot áður en boltanum er hreinsað frá.
KA
70. mín
Gult spjald

Snorri Kristinsson

Framarar ósáttir. Komnir í fínasta skotfæri þegar Gunnar flautaði.
69. mín
Fram bankar en það hefur reynst erfitt að ná skotum á markið.
KA
65. mín
InnDanijel Dejan Djuric
ÚtValdimar Logi Sævarsson
63. mín
Framarar skyndilega komnir í góða stöðu en snertingin hjá Vuk var ekki góð og sóknin rennur út í sandinn.
Fram
62. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtÞorri Stefán Þorbjörnsson
Fram
62. mín
InnSimon Tibbling
ÚtKyle Douglas Mc Lagan
57. mín
Tæpt var það
Róbert hársbreidd frá því að stela boltanum af Ívari sem var lengi að athafna sig. Róbert nær til boltans en Ívar nær valdi á honum aftur.
54. mín
Guðjón Ernir í færi eftir frábæra móttöku, skotið varið og flaggið á loft.
KA
50. mín
Adam Ægir opnar markareikninginn fyrir KA

Adam Ægir Pálsson

KA menn leysa úr tíundu hornspyrnu Fram. Sending kemur í gegn og Adam Ægir er sloppinn einn í gegn og er fljótari en tveir Framarar sem elta hann. Hann rennur svo boltanum á milli fóta Viktors og í netið.

Aftur er það skyndisókn eftir hornspyrnu Fram.
50. mín
10-0 í hornspyrnum
Framarar fá enn eina hornspyrnuna en aftur skapa þeir sér ekki neitt.
46. mín
Adam með fast skot fyrir utan teig en það er beint á Viktor í markinu.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Vuk kemur þessu aftur af stað.
45. mín
Hálfleikur
Gunnar flautar til hálfleiks hér í Úlfarsárdal. Við tökum okkur korter og vonumst svo eftir fleiri mörkum í seinni.
45. mín
45+2
Gunnar hefur verið að leyfa leiknum að fljóta. Það er harka í þessu.
45. mín
Þremur mínútum bætt við
42. mín
Adam Ægir reynir skotið fyrir utan teiginn en boltinn yfir markið.
40. mín
Róbert Hauksson tekur á sprett og er kominn að vítateignum en þá er Markús Máni mættur og kemur með hörkutæklingu. Þessi þurfti að vera hnitmiðuð og hún var það.
39. mín
Áfram fá Framarar hornspyrnur sem gefa þeim ekki neitt. Þeir vilja líklega frekar innköst!
Fram
33. mín
Þvílíkur skalli

Kyle Douglas Mc Lagan (stoðsending: Kennie Knak Chopart)

Kennie Chopart tekur langt innkast inn á teiginn og Kyle McLagan nær á einhvern ótrúlegan hátt að skalla fyrir utan markteig og í fjærhornið. Alvöru kraftur sem hann náði í þennan skalla.

Mjög óvenjulegt mark. Allt jafnt!
29. mín
Kristófer gerir vel og vinnur enn eina hornspyrnu Framara en skallinn úr henni hátt yfir markið.
26. mín
Fram fær aukaspyrnu á hættulegum stað en skot Kennie Chopart fer af veggnum og yfir. Hornspyrna.
22. mín
Þessi leikur hefur farið hratt af stað. Framarar byrjuðu betur en KA búnir að vinna sig betur inn í leikinn eftir markið.
KA
20. mín
InnSnorri Kristinsson
ÚtKári Gautason
Áfall fyrir KA
Haddi búinn að missa tvo menn í meiðsli á jafn mörgum mínútum.
18. mín
Nú liggur Kári Gautason eftir eftir tæklingu við varamannaskýlin. Framarar vilja leikinn af stað aftur og að aðhlynningin eigi sér stað utan vallar.
KA
18. mín
InnJeppe Pedersen
ÚtJakob Snær Árnason
Hefur eitthvað tognað eftir skyndisóknina og hann getur ekki haldið leik áfram.
KA
14. mín
MAAARKKKK

Guðjón Ernir Hrafnkelsson (stoðsending: Hallgrímur Mar Steingrímsson)

KA menn hreinsa eftir hornspyrnu Fram og boltinn var ekki lengi að berast upp völlinn. Hallgrímur sendir svo út á vítateigshornið á Guðjón sem tekur eina snertingu, og klárar svo snyrtilega í fjærhornið framhjá Viktori.

Frábær skyndisókn hjá gestunum.
13. mín
Framarar með sína fimmtu hornspyrnu ef ég hef talið rétt. Beint á kollinn á Ægi sem nær ekki að beina boltanum á rammann.
10. mín
Mikill barningur inn í teig KA eftir hornspyrnu en gestirnir ná að hreinsa afturfyrir og Framarar fá annað horn.
8. mín
Framarar klaufar í uppspilinu og Mikael Breki nær til boltans. Hann er fljótur að senda inn í teiginn þar sem Adam Ægir lúrir en skallinn framhjá markinu.

Þessi leikur hefur farið fjöruglega af stað.
5. mín
Hornspyrna framara á fjærstöngina þar sem Róbert Hauksson á skalla yfir markið. Sendingin líklega aðeins og há en fyrsta færi leiksins er heimamanna.
1. mín
KA hefur leik
Adam Ægir sparkar þessu af stað!
Fyrir leik
Treyjudagurinn
Liðin ganga inn á í sinni uppáhalds treyju til styrktar börnum með krabbamein. Fallegt framtak.
Fyrir leik
Kristalkúlan hefur talað
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Byrjunarliðin hafa verið birt. Rúnar Kristinsson heldur liði sínu óbreyttu frá sigrunum gegn Blikum en þjálfarar KA gera tvær breytingar frá tapinu gegn KR.

Birgir Baldvinsson og Samuel Karl Kroon sem byrjuðu leikinn gegn KR eru ekki í hóp. Í stað þeirra koma þeir Markús Máni Pétursson og Valdimar Logi Sævarsson.

Nafn Eiðs Smára sést ekki á skýrslu hjá KA en það var vegna bilunar á vef KSÍ. Hann er á svæðinu og er annar af þjálfurum liðsins.

Fyrir leik
Innbyrðisviðureignir
Liðin mættust síðast þann 15. júní fyrir norðan í 10. umferðinni. Framarar unnu þá 4-3 sigur í hörkuskemmtilegum leik.

Sjáðu allt það helsta úr leiknum.



Þegar litið er yfir sögu innbyrðisviðureigna þessara liða er allt jafnt. Liðin hafa bæði unnið og tapað 28 leikjum en jafntefli liðanna hafa verið 13. Fyrsti leikur liðanna var á Íslandsmótinu árið 1932 en þá unnu Akureyringar 2-0 sigur á gamla góða Melavellinum.
Fyrir leik
Framarinn spáir Fram 4-1 sigri
Stefán Pálsson var fenginn til þess að spá fyrir um leiki umferðarinnar. Stefán spáir 4-1 endurkomusigri Framara í dag.


"Við Framarar erum enn aumir eftir sumarið 2024 þegar KA vann okkur í þrígang. Það hefðu þeir ekki átt að gera. Aulamark gulklæddra í blábyrjun mun valda tímabundnu stressi í Dal draumanna en Vuk, Byström, Sigurjón og Freyr skora hver sitt markið á stuttum kafla sitthvoru megin við hlé. "
Fyrir leik
KA
Gengi KA í sumar hefur ekki verið upp á marga fiska. Eftir sigur Þórs á ÍBV í gær situr KA á botni deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæt en pakkinn á botninum er mjög þéttur. Það munar ekki nema tveimur stigum á neðstu fjórum liðunum.

Í síðustu 5 hafa Akureyringarnir gert tvö jafntefli og tapað þremur. 5-3 tapið fyrir KR í síðustu umferð var fyrsti leikurinn með Eiði Smára innanborðs. Hann fær því annað verðugt verkefni fyrir liðið hér í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Fram
Gengi Framara í sumar hefur verið frábært. Þeir sitja í þriðja sæti deildarinnar, jafnir að stigum við KR með 43, og átta stigum á eftir toppliði Víkings en ljóst er að a.m.k. annað þessara liða tapar stigum í þessari umferð.

Í síðustu 5 leikjum hafa þeir unnið þrjá, gert eitt jafntefli og tapað einum. Þeir sóttu sterkan 4-3 sigur gegn Breiðablik í síðustu umferð og þeir leita því eftir þriðja sigrinum í röð hér í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Tríóið
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna í dag og honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Jovan Subic. Hreinn Magnússon er fjórði dómari og dómaraeftirlitsmaður KSÍ er enginn annar en Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
21. umferðin
Leikurinn er hluti af 21. umferð deildarinnar. Hún hófst í gær með fallslag ÍBV og Þórs og heldur svo áfram í dag og á morgun. Umferðinni lýkur svo með risaleik á þriðjudag þegar KR-ingar taka á móti Víkingum.

Umferðin öll:

Laugardagur 29. ágúst
ÍBV 0-1 Þór
Sunnudagur 30. ágúst
Fram - KA (17:00)
FH - Keflavík (17:00)
Valur - ÍA (19:15)
Mánudagur 31. ágúst
Breiðablik - Stjarnan (19:15)
Þriðjudagur 1. september
KR - Víkingur R. (17:30)
Fyrir leik
Lambhagavöllurinn heilsar
Góðan daginn kæru lesendur og verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Lambhagavellinum í Úlfarsárdal þar sem Fram tekur á móti KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.