Fotbolti.net
Premier League
Man Utd
Man Utd
0 - 0
Ipswich Town
Ipswich Town
Fyrir leik
Old Trafford
EPA
Fyrir leik
Carrick mjög spenntur fyrir Baleba: Erum í skýjunum

Miðjumaðurinn Carlos Baleba var keyptur til Manchester United frá Brighton í liðinni viku og Michael Carrick, stjóri United, er mjög spenntur fyrir þessum 22 ára Kamerúna.

„Við erum í skýjunum með að hafa fengið Carlos," segir Carrick. „Hann hefur möguleika á að verða enn betri og er mjög spennandi leikmannakaup. Hann kemur með nýja þætti og meira jafnvægi inn í hópinn."

Baleba verður hinsvegar ekki með næstu leiki þar sem hann er að glíma við ökklameiðsli. Amad Diallo er einnig frá eftir að hafa misst af tapleiknum gegn Hull í fyrstu umferð. Þá er það að frétta úr hópnum að Mason Mount er mættur aftur til æfinga.

Carlos Baleba
Manchester United
Fyrir leik
Palacios spilar gegn Man Utd - „Mögnuð kaup“

Exequiel Palacios mun spila með Ipswich gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni en hann kom í vikunni til félagsins frá Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Palacios er 27 ára og var kynntur hjá nýliðunum á fimmtudag. Hann er hluti af liði Bayer Leverkusen sem vann bæði þýsku deildina og bikarinn árið 2024. Hann varð heimsmeistari með Argentínu árið 2022 og var einnig í landsliðshópnum sem vann silfur á heimsmeistaramótinu í sumar.

„Þetta eru mögnuð kaup fyrir félagið," segir Gary O'Neil, stjóri Ipswich. „Já ég er nokkuð viss um að þið fáið að sjá hann spila á sunnudaginn. Hann er hæfileikaríkur leikmaður sem hefur náð miklum árangri undanfarin ár, bæði með landi og liði. Það að fá hann er afrakstur mikillar vinnu sem var lögð í að laða fólk að því verkefni sem við erum í og erum að reyna að byggja upp. Maður finnur að trúin á verkefnið er stöðugt að vaxa."

Exequiel Palacios - Ipswich
Ipswich Town
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.