Leik lokið!
94. mín
Mate Simicic setur boltann hátt yfir markið.
Líklega síðasta tækifæri Keflvíkinga þarna.
Líklega síðasta tækifæri Keflvíkinga þarna.
91. mín
Keflvíkingar að komast í flotta stöðu en Marin Mudrazija með aðeins of þunga snertingu í snúningnum og boltinn endar hjá Jökli.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbót
89. mín
Keflavík með aukaspyrnu fyrir markið en skallinn framhjá markinu.
88. mín
Leikurinn er svolítið bara að fjara út.
83. mín
Keflavík er aðeins að ná að stíga upp völlinn þessa stundina.
81. mín
InnMarin Mudrazija
ÚtÞorlákur Breki Þ. Baxter
79. mín
FH eru stórhættulegir upp hægri vænginn og enn og aftur er Ásgeir Orri að halda gestunum á lífi í þessum leik.
75. mín
Smá spilkafli hjá Keflavík endar með skoti frá Eiði Orra vel framhjá markinu.
74. mín
Ásgeir Orri!
FH sækja upp hægri og koma boltanum fyrir markið á Guðmund Andra sem á fast skot en Ásgeir Orri ver þetta virkilega vel! Hann er að halda Keflavík inni í þessu.
71. mín
Kjartan Kári í þröngu færi og Ásgeir Orri lokar vel á hann.
66. mín
InnMate Simicic
ÚtSindri Snær Magnússon
66. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtAlpha Conteh
66. mín
InnElvis Okello Bwomono
ÚtAxel Ingi Jóhannesson
65. mín
Orrahríð!
Guðmundur Andri kemur sér í gott skotfæri en Ásgeir Orri ver það vel. FH fær annað tækifæri en Marin Brigic bjargar á línu. Kjartan Kári á svo lokatilraun fyrir FH áður en Keflvíkingar koma þessu í horn.
64. mín
FH-ingar hafa verið mun sterkari aðilinn út í seinni hálfleik.
Ekki alveg sami kraftur í Keflavík í seinni hálfleiknum og þeir fyrri.
Ekki alveg sami kraftur í Keflavík í seinni hálfleiknum og þeir fyrri.
59. mín
InnArnór Borg Guðjohnsen
ÚtAdolf Daði Birgisson
59. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtGils Gíslason
57. mín
Harður dómur fannst mér þar sem hann bað nú ekki um neitt sýndist mér.
Dýfa
Adolf Daði Birgisson
Fellur í teig Keflavíkur í baráttunni við Axel Inga og Helgi Mikael rífur upp gult fyrir dýfu.Harður dómur fannst mér þar sem hann bað nú ekki um neitt sýndist mér.
54. mín
Kraftur í FH
FH eru mun hættulegri þessar upphafsmínútur í seinni hálfleik.
52. mín
FH LEIÐA!!
FH TEKUR FORYSTU!
Kjartan Kári Halldórsson (stoðsending: Gils Gíslason)
Gils Gíslason með frábæran sprett upp hægri vænginn og kemur sér inn á teig þar sem hann lyftir boltanum svo fyrir markið á Kjartan Kára sem skallar boltann í netið!FH LEIÐA!!
49. mín
Kjartan Kári tekur spyrnuna og lyftir boltanum yfir markið.
49. mín
FH fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teig.
Kjartan Kári og Baldur Kári standa yfir boltanum.
Kjartan Kári og Baldur Kári standa yfir boltanum.
47. mín
Sindri Snær með tilraun en dregur hann vel framhjá markinu.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
FH sparkar þessu af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
+1
Erlingur Agnarsson loka fyrri hálfleiknum með föstu skoti rétt yfir nánast opið markið í þröngum vinkli eftir að Ásgeir Orri hafði hlaupið út í bolta og misst af honum.
Leikurinn verið fínasta skemmtun til þessa og vonandi heldur þetta áfram í seinni hálfleiknum og við fáum fleiri mörk í þetta.
Tökum okkur korter og snúum svo aftur með seinni!

Einni mínútu bætt við fyrri hálfleikinn
42. mín
Brotið sem slíkt var allavega ekki mikið að mínu mati.
Gult spjald
Sindri Snær Magnússon
Allar líkur á að þetta sé frekar eitthvað uppsafnað en ekki hjá Sindra þó svo að Jóhannes Kristinn hafi fundið vel fyrir þessu.Brotið sem slíkt var allavega ekki mikið að mínu mati.
40. mín
Leikurinn verið nokkuð jafn þó Keflvíkingar hafa aðeins síðustu mínútur verið að halda betur í boltann.
36. mín
Eiður Orri með fast skot fyrir utan teig framhjá markinu fyrir Keflavík eftir að Keflavík hafði fengið hornspyrnu. Keflvíkingar hættulegir í föstum leikatriðum.
34. mín
InnArngrímur Bjartur Guðmundsson
ÚtBirkir Valur Jónsson
Meiðsli hjá FH.
34. mín
Gult spjald
Gils Gíslason
Brotlegur í baráttunni við Ásgeir Pál.31. mín
Þetta er rokk og ról hérna í Krikanum. Bæði lið sækja á mörgum mönnum.
27. mín
ALLT JAFNT!
FH JAFNA!!
Gils Gíslason (stoðsending: Erlingur Agnarsson)
Þung sókn frá FH endar með því að boltinn fellur fyrir fæturna á Gils sem nær að stilla sér upp og þrumar boltanum í þaknetið! Erlingur Agnarsson í baráttunni nær að pikka boltanum til hliðar á Gils.ALLT JAFNT!
23. mín
FH vildu fá brot þegar Stefan Ljubicic æðir fram en fengu ekki.
KEFLAVÍK TEKUR FORYSTU!
Stefan Alexander Ljubicic
Stefan Ljubicic og Oliver Stefánsson eru í einhverjum barningi á miðjum vellinum. Helgi Mikael beitir hagnaði fyrir Keflavík þegar Stefan Ljubicic rykkir svo fram og æðir í átt að marki og lætur vaða rétt fyrir utan teig fast skot út við stöng og kemur Keflavík yfir.FH vildu fá brot þegar Stefan Ljubicic æðir fram en fengu ekki.
20. mín
Alpha Conteh með fyrirgjöf sem Muhamed Alghoul skallar yfir markið.
16. mín
Mátti ekki miklu muna!
Tómas Orri með tilraun rétt framhjá markinu! Flott samspil við Baldur Kára og munaði örlitlu að þessi myndi syngja í samskeytunum.
11. mín
Skemmtileg byrjun á þessum leik þar sem bæði lið eru snögg að keyra á hvert annað þegar þau tapa boltanum.
9. mín
Keflavík fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
8. mín
Keflavík að komast í hættulega stöðu en Stefan Ljubicic er flaggaður rangstæður.
5. mín
Adolf Daði keyrir inn á teig og reynir að koma boltanum fyrir markið en Ásgeir Orri hendir sér á boltann.
3. mín
FH leita af opnunum á þéttri Keflavíkurvörn en komast lítið áleiðis.
1. mín
Leikur hafinn
Keflavík sparkar okkur af stað
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
FH er með óbreytt lið frá jafnteflinu gegn ÍA í síðustu umferð.
Keflavík gerir eina breytingu á sínu liði frá sigurleiknum gegn ÍBV en Alpha Conteh kemur inn í byrjunarliðið fyrir Dag Inga Valsson sem fær sér sæti á bekknum í dag.

Keflavík gerir eina breytingu á sínu liði frá sigurleiknum gegn ÍBV en Alpha Conteh kemur inn í byrjunarliðið fyrir Dag Inga Valsson sem fær sér sæti á bekknum í dag.

Fyrir leik
Innbyrðisviðreignir
Þessi lið hafa mæst 91 sinni í mótsleikjum á vegum KSÍ samkvæmt vef KSÍ.
Keflvíkingum hefur gengið erfiðlega með FH-inga og þá sérstaklega í Kaplakrika. Miðað við vef KSÍ kom síðasti sigurleikur Keflavíkur í Kaplakrika á Íslandsmóti gegn FH 1980 eða fyrir 46 árum síðan.
FH hefur 48 sinnum hrósað sigri í baráttu á milli þessara liða.
Keflavík hefur 23 sinnum átt sigurorðið.
Liðin hafa þá skilið jöfn 20 sinnum.

Fyrri leikur liðana í sumar endaði með sigri FH sem var jafnframt þeirra fyrsti sigur í Bestu deildinni í ár.

Spámaður umferðarinnar
Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson, sem er líka mikill Framari og Luton maður, spáði í leikina sem eru framundan.
FH 1 - 0 Keflavík
„Þar munu þeir einir vera að ég hirði aldrei þótt drepist“, sagði Mörður Valgarðsson í Njálu og átti líklega við Fimleikafélagið og Keflavík. Slysalegt mark heimamanna í blálokin mun spilla fyrir því markmiði þeirra að gera jafntefli í öllum sínum leikjum. Bræðurnir setja á ís tillögu sína um að endurvekja tveggja stiga regluna.

Staðan í deildinni fyrir leiki dagsins
Við erum að sigla inn í 21. umferð sem er jafnframt næst síðasta umferð fyrir skiptingu.
Einum leik er lokið í umferðinni en Þór Akureyri vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á ÍBV í gær sem gaf baráttunni í neðri hlutanumenn meiri spennu.
Svona lítur þetta út fyrir 21. umferð:
Spilað í gær:
ÍBV 0-1 Þór Akureyri
Leikir dagsins:
FH-Keflavík 17:00
Fram-KA 17:00
Valur-ÍA 19:15
Mánudaginn 31. Ágúst:
Breiðablik-Stjarnan 19:15
Þriðjudagurinn 1.September:
KR-Víkingur R. 17:30
1.Víkingur - 51 stig
2.KR - 43 stig
3.Fram - 43 stig
4.Breiðablik - 30 stig
5.Keflavík - 28 stig
6.ÍA - 26 stig
------------------------
7.Stjarnan - 24 stig
8.Valur - 23 stig
9.FH - 18 stig
10.Þór Akureyri - 18 stig
-------------------
11.ÍBV - 17 stig
12.KA - 16 stig

FH
FH hafa verið ólseigir eftir erfiða byrjun á tímabilinu og unnið sig hægt og rólega úr fallsæti en þeir eru í hörku pakka við botn deildarinnar. FH getur með sigri í dag farið í 21 stig og gefið sér smá andrými frá rauðu línunni sem ógnar þeim.

Fyrir leik
Keflavík
Keflvíkingar eru búnir að vinna þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum í deildinni og eru komnir vel á veg með að tryggja sig inn í efri hluta deildarinnar fyrir skiptingu.
Með sigri hér í dag tryggir Keflavík sig endanlega inn í efri hlutann fyrir síðustu umferð svo það er til mikils að vinna fyrir Keflvíkinga í dag.

Með sigri hér í dag tryggir Keflavík sig endanlega inn í efri hlutann fyrir síðustu umferð svo það er til mikils að vinna fyrir Keflvíkinga í dag.

Fyrir leik
Dómarateymið
Helgi Mikael Jónasson fær það verkefni að halda utan um flautuna í dag og honum til aðstoðar verða Guðmundur Ingi Bjarnason og Eysteinn Hrafnkelsson.
Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson er fjórði dómari og sérstakur tæknimaður á skiltinu góða.
Eftirlitsmaður KSÍ er svo Gylfi Þór Orrason.

Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson er fjórði dómari og sérstakur tæknimaður á skiltinu góða.
Eftirlitsmaður KSÍ er svo Gylfi Þór Orrason.

Fyrir leik
Kaplakriki heilsar!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik FH og Keflavíkur í 21. umferð Bestu deild karla sem fram fer á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í dag.

Kaplakrikagrýlan heldur áfram að hrella Keflvíkinga.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.